Mannúðin sett í varðhald í brottfararbúðum Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar 11. júní 2026 07:04 Það var sorglegt að fylgjast með því þegar meirihluti þingmanna á Alþingi samþykkti í vikunni sérstök lög dómsmálaráðherra Viðreisnar um brottfararbúðir. Mál sem er svo umdeilt að allir 33 umsagnaraðilar vöruðu við því að í frumvarpinu væru umdeild lagaatriði og bentu margar stofnanir og félagasamtök réttilega á að lagafrumvarpið bryti alþjóðlega sáttmála og jafnvel alþjóðleg lög. Enda snýst lagafrumvarpið í grunninn um að fólk sem leitað hefur til Íslands eftir alþjóðlegri vernd og hefur ekki sinnt því þegar yfirvöld hafa úrskurðað að vísa beri þeim burt, sé svipt frelsi sínu og sett í brottfararbúðir. Með samþykki þingmannanna er brotið blað á Íslandi í meðferð útlendinga og fólks á flótta. Fordæmi gefið sem erfitt verður að snúa við enda er ríkisstjórn Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Flokks fólksins með þessum lögum að byggja upp kerfi til að svipta fólk frelsi sem hefur ekki framið refsiverðan verknað, heldur er í stjórnsýslulegu ferli sem útlendingar að leita eftir alþjóðlegri vernd. Sem er ekki glæpur. Frelsi einstaklinga er meginreglan í íslenskum lögum. Samt byggir lagafrumvarpið um brottfararstöð einmitt á gangstæðri nálgun sem er að frelsissvipta fólk í viðkvæmri stöðu. Allra gagnrýniverðast er að með lögunum er heimilað að frelsissvipta börn vegna stöðu foreldra þeirra. Við erum því að setja fólk og börn á bak við læstar dyr, ekki vegna þess hvað það hefur gert, heldur hver staða þess er í íslensku stjórnkerfi. Frelsissvipting á fólki sem hefur ekki framið glæp Lagafrumvarpið heimilar afar víðtækar og matskenndar heimildir til embættis Lögreglustjórans á Suðurnesjum til að að beita agaviðurlögum svo sem einangrun vistmanns, leit og inngrip í friðhelgi einkalífs og notkun belta, fót- og handreima. Starfsfólk búðanna voru nefndir “fangaverðir” þegar frumvarpið kom fyrst fram frá dómsmálaráðherra en því var breytt af hálfu ráðuneytisins eftir harða gagnrýni mannréttindasamtaka. Eðli starfa sem starfsfólkið á að inna af hendi var þó ekki breytt. Þá er sérstök heimild í lögunum um valdbeitingu gegn börnum ef það þykir nauðsynlegt í þágu lífs, heilsu eða verndar og geta þau verið vistuð í öryggisklefa í „brýnustu neyð”. Aðrar heimildir eru í lögunum að frelsisvipta börn í allt að 9 daga. Brottfararbúðir “rauð lína” fyrir Viðreisn Framganga Viðreisnar í málinu, flokki sem stærir sig jafnan af því að vera frjálslyndur stjórnmálaflokkur sem umhugað er um mannréttindi, er afar umhugsunarverð svo ekki sé dýpra í árinni tekið. Áhersla dómsmálaráðherra Viðreisnar, á harðari nálgun í útlendingamálum en fyrirrennar hennar úr Sjálfstæðisflokki, hefur vakið mikla athygli. Líklega stóðu kjósendur Viðreisnar ekki í þeirri trú að hörð nálgun ráðherrans á útlendingamál yrðu forgangsmál hennar. Kjósendur Viðreisnar hljóta líka að velta því rækilega fyrir sér hvort skýr yfirlýsing formanns Viðreisnar í fjölmiðlum síðla árs 2024 um að “brottfararbúðir væri rauð lína” fyrir flokkinn séu nú dæmi um marklaus orð eða innihaldsleysu. Samfylkingin hreykir sér af hörkunni í útlendingamálum Á meðan þessi framganga Viðreisnar veldur furðu og vonbrigðum, er framganga Samfylkingarinnar - Jafnaðarmannaflokks Íslands merki um þá beygju sem flokkurinn hefur tekið í mannréttinda - og útlendingamálum. Strax eftir samþykkt lagafrumvarpsins um brottfararbúðirnar birti flokkurinn auglýsingu á samfélagsmiðlum þar sem Samfylkingin hreykir sig af meiri hörku í útlendingamálum með yfirskriftinni; “ Við styrkjum Ísland með ábyrgð í útlendingamálum”... Flokkurinn sem áður barðist ötullega fyrir réttindum flóttafólks og útlendinga, hreykir sig af því að geta nú sett börn og fjölskyldur í brottfararbúðir ! Væri ekki nær hjá báðum þessum flokkum að rifja upp eigin stefnu um jöfnuð, réttlæti og mannréttindi frekar en að elta stefnu annarra hægriflokka sem stöðugt boða meiri hörku í útlendingamálum og ala á ótta og útilokun fólks af erlendum uppruna ? Önnur úrræði en varðhald til Sem dæmi gæti Samfylkingin - Jafnaðarmannaflokkur Íslands, í stað þess að setja brottfararbúðir í forgang þingmála sem þarf að klára á vorþinginu, kynnt til sögunnar að leggja ætti áherslu og fjármuni í úrræði fyrir fólk áður en kemur til jafn alvarlegs úrræðis og frelsissviptingu. Þær áherslur og úrræði geta verið fjölmörg. Til að mynda er hægt að efla tilkynningarskyldu, búsetuskyldu, jafnvel styrkja eftirlit með fólki sem vísa á úr landi. Ef flokkurinn er á annað borð svo umhugað um að vísa fólki úr landi frekar en að styðja við fólk fóta sig hér á landi. Mun betra væri þó ef ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur myndi kynna til sögunnar önnur og mannúðlegri samfélagsleg úrræði fyrir fólk sem hingað kemur að leita eftir alþjóðlegri vernd. Sá fjöldi hefur dregist verulega saman undanfarin misseri. Með þesskonar nálgun myndi Samfylkingin og ríkisstjórn sem hún leiðir virða bæði Evrópurétt og alþjóðleg mannréttindasjónarmið sem byggja á meðalhófi en ekki ítrustu lagaákvæðum á borð við frelsissviptingu. Börn sem verða vistuð í brottfararbúðum bera þess merki Þingmenn sem samþykktu lagafrumvarpið um brottfararbúðir þurfa að gera sér grein fyri því að börn eiga aldrei að sæta innilokun vegna stöðu sinnar í innflytjenda - eða alþjóðlegu verndarferli. Þetta bentu bæði Rauði krossinn og Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) og Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna ( UNICEF ) á í umsögnum sínum um málið, enda er þessi grundvallar afstaða til barna skýr í alþjóðlegum mannréttindalögum og sáttmálum. Íslenskir þingmenn sem samþykktu lagafrumvarpið hafa vonandi spurt sig hvort íslenskt samfélag sé virkilega tilbúið til að setja börn í lokað varðhaldsúrræði vegna þess að foreldrar þeirra bíða brottvísunar? Því það er nákvæmlega það sem þeir samþykktu. Það er þau áhrif sem lögin munu hafa. Til viðbótar við heimildina til að halda börnum í varðhaldi, er rétt að minna á umsögn Rauða krossins um skaðleg áhrif varðhalds á andlega og líkamlega heilsu fullorðins fólks og vísar Rauði krossinn til rannsókna sem sýna að jafnvel stutt tímabil í lokuðu varðhaldi geta haft veruleg áhrif á heilsu fólks. Sérstakar áhyggjur eru af fólki sem hefur þegar upplifað stríð, ofsóknir, pyntingar eða önnur áföll á flótta. Að auki bentu aðrir umsagnaraðilar á að sérstaklega viðkvæmir hópar geta lent í brottfarararbúðunum. Þessar staðreyndir er eitt af því sem mannréttindasamtök hafa talið hvað alvarlegast við lagafrumvarpið. Á sama tíma og valdheimildir ríkisins gagnvart einstaklingum eru auknar í lögunum, eru réttarúrræði og vernd einstaklinga veikt. Það gengur gegn öllum megingrunni mannréttinda. Það er grundvallaratriði að réttarvernd einstaklinga beri að styrkja þegar ríkið eykur vald sitt gagnvart einstaklingum. Því er ekki fyrir að fara í þessum lögum heldur er varðhaldsúrræðið gert að mjög aðgengilegu stjórntæki. Ísland tekur upp kerfi sem hefur verið harðlega gagnrýnt erlendis Það er ljóst að margra ára reynsla frá öðrum Evrópuríkjum þar sem sambærileg brottfarar- og varðhaldsúrræði hafa verið reynd, eins og í Noregi frá árinu 2017, hafa sætt stöðugri og ítrekaðri gagnrýni vegna mannréttindabrota gagnvart börnum og fjölskyldum og slæmra áhrifa á fólk. Þrátt fyrir leikherbergi og fótboltavelli. Af hverju er Ísland að ákveða nú að feta sömu slóð og þessi ríki? Sem hafa þegar fengið á sig alvarlega gagnrýni fyrir samskonar brottfararbúðir? Hver er nauðsynin og þörfin ? Brottfararbúðirnar eru einfaldlega prófsteinn á það hvernig samfélag við viljum vera. Hvort við mætum fólki á flótta af mannúð og virðingu eða með innilokun og frelsissviptingu. Vinstri græn velja hið fyrrnefnda. Höfundur er formaður Vinstri grænna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Rósa Björk Brynjólfsdóttir Brottfararstöð fyrir útlendinga Mest lesið Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Umskiptingar Flokks fólksins á Alþingi Júlíus Valsson skrifar Skoðun Okkar fé í Heimum Bergur Hauksson skrifar Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir skrifar Skoðun Er alveg sama hvað Ísland er dýrt? Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Krossinn er ekki matseðill Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Við mælum hávaða en mælum við óskýrleikann? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Hvað gerist í síðari hálfleik? Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson skrifar Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson skrifar Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Arfurinn og réttur ríkisins til skattheimtu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Undir sömu stjörnu – ópera fyrir alla þjóðina Sævar Þór Halldórsson skrifar Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Ísland á ekki að verða land gjaldhliða Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson skrifar Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar Skoðun Nýtum betur gagnreyndar aðferðir í skólum Skúli Helgason skrifar Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman skrifar Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lögfræði er engin eðlisfræði – fullveldi er ekki þyngdarkraftur Bergur Hauksson skrifar Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson skrifar Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar Sjá meira
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar
Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar
Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman skrifar
Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun