Beta aldrei upplifað annað eins Aron Guðmundsson skrifar 11. júní 2026 15:45 Elísabet Gunnarsdóttir, landsliðsþjálfari Belgíu Vísir/Getty Elísabet Gunnarsdóttir, landsliðsþjálfari Belgíu, segir aldrei hafa upplifað annan eins landsleikjaglugga og þann sem nú er nýafstaðinn. Belgía náði ekki markmiði sínu en á enn séns á að tryggja sér sæti á HM næsta árs. „
Þessi landsleikjagluggi var öðruvísi en nokkuð annað sem ég hef upplifað áður,“ skrifar Elísabet í færslu á samfélagsmiðlinum Instagram þar sem að hún gerir upp undankeppnina. View this post on Instagram A post shared by Elisabet Gunnarsdóttir (@elisabetgunnarz) Belgía spilaði í B-deild Þjóðadeildarinnar sem í þetta skipti var beintengd undankeppni HM. Belgar háðu harða baráttu um toppsæti síns riðils í B-deildinni en þurfti að bíta í það súra að enda í öðru sæti riðilsins með sama stigafjölda en lakari markatölu en Skotland. „Þessi gluggi var andleg áskorun fyrir okkur og krafðist mikils af okkur.“ Elísabet er bæði stolt og vonsvikin. „Stolt af vinnunni, skuldbindingunni og samheldninni í liðinu. Sem og afar stolt af þeim hágæða marktækifærum sem við sköpuðum okkur vitandi það að við þyrftum að skora mörg mörk. Vonsvikin því við náðum ekki markmiðum okkar að tryggja okkur sæti í A-deild Þjóðadeildarinnar.“ Belgía hefur ekki tapað leik í síðustu níu leikjum sinum. Liðið vann síðasta leik sinn í undankeppninni 7-0 á móti Lúxemborg. Sigurinn hins vegar ekki nægilega stór því Skotland vann á sama tíma 5-1 sigur á Ísrael. Það nægði Skotum til að vinna riðilinn. Belgía fer í umspil fyrir HM og markmiðið er skýrt. „Að tryggja okkur sæti á HM. Við munum halda áfram að leggja hart að okkur, trúa á verkefnið og leggja okkur allar fram við að ná því.“
Þjóðadeild kvenna í fótbolta HM 2027 í Brasilíu Mest lesið Keyptu kynlífsþjónustu fyrir dómara með korti sambandsins Fótbolti Stuðningsmenn Liverpool vilja útskýringu á kaupum Jeff Bezos Enski boltinn Ronaldo gifti sig í fámenni Fótbolti Gunnlaugur Árni setti heilsuna í fyrsta sæti Golf Nú á að okra á miðum á Ólympíuleikana Sport Notar ekki þrjá af bestu mönnunum sínum í úrslitaleiknum Enski boltinn Handtekinn fyrir að skrifa falsfrétt Fótbolti Olli árekstri í miðjum fótboltaleik Fótbolti Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Körfubolti Kallar eftir naflaskoðun í norskum handbolta: „Bilið í fremstu þjóðir hefur aukist“ Handbolti Fleiri fréttir Brann leggur inn kvörtun vegna rauða spjaldsins sem Kristall fékk Handtekinn fyrir að skrifa falsfrétt Stuðningsmenn Liverpool vilja útskýringu á kaupum Jeff Bezos Olli árekstri í miðjum fótboltaleik Keyptu kynlífsþjónustu fyrir dómara með korti sambandsins Segir að Guardiola hafi verið „mjög nálægt“ því að taka við Ítalíu Ronaldo gifti sig í fámenni Kristall Máni skoraði og fékk rautt í dramatískum Evrópusigri Notar ekki þrjá af bestu mönnunum sínum í úrslitaleiknum Mátti ekki koma á HM en fær sviðsljósið annað kvöld Íslensku strákarnir byrjuðu á bekknum þegar AGF steinlá í Aserbaísjan Eyddi samfélagsmiðlum sínum PSG kvartaði yfir of litlum búningsklefa fyrir Ofurbikarinn Valgeir hefur neitað ýmsum liðum í sumar Inter Milan gerir tilboð í Spence Sjáðu öll 64 mörk KR í sumar Sveinn Aron spilar með Víkingi eins og afi sinn Fær ekki leyfi til að spila fyrir Liverpool Mæta kýpversku meisturunum í fyrstu Evrópuleikjunum „Búið að gerast á frekar fyndinn hátt hjá mér síðustu ár“ Dómarastjóri UEFA um VAR: „Þetta er fótbolti, ekki PlayStation“ Stúkumönnum fannst ósanngjarnt að reka Conteh út af Sjáðu KR bæta markametið gegn Fram Trump segir að það væru skelfileg mistök að koma Infantino frá völdum Mourinho hringdi í Ferguson og grét Sannaði að draumar geta ræst með gamalli mynd „Mér líður frábærlega“ Kennie: Við töpuðum leiknum á fyrstu 25 mínútunum Iraola segir leikmenn Liverpool ekki hafa orku í níutíu mínútur „Ætlaði þetta að vera einn af þessum dögum?“ Sjá meira