Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 11. júní 2026 20:02 Sólveig guðrún Hannesdóttir rektor er með ýmsar getgátur varðandi merkingu skilaboðanna. Vísir/Samsett Torlæs skilaboð rituð með krít komu í ljós við framkvæmdir í Menntaskólanum í Reykjavík. Skilaboðin gætu verið hátt í tvö hundruð ára gömul. Starfsmenn skólans leita nú á náðir almennings við að leysa gátuna.
Gamli skóli Menntaskólans í Reykjavík er eitt helsta kennileiti miðborgarinnar. Hann var fyrsta þartilgerða skólahús landsins, reist á árunum 1843 til 1846, hefur auk menntaskólans hýst Alþingi Íslendinga og aðalstöðvar breska landnámshersins. Síðustu þrjú ár hefur verið unnið endurbætum á völdum skólastofum með það að marki að bæta loftgæði og hljóðvist en einnig að koma stofunum í eins upprunalegt horf og auðið er. Allt að 180 ára gamalt Ein þessara stofa er hin svokallaða castría sem hýsti lengi vel nemendur á öðru námsári. Klæðningin var rifin niður með það í huga að taka kennslustofuna aftur í notkun sem slíka eftir að hafa lengi verið notuð undir fatahengi og síðar skrifstofur. Við það komu krítaráletranirnar í ljós. Veggirnir voru upphaflega klæddir með reyr sem múrað var svo yfir. Upphaflega reyrinn á sjá með því að píra augun og leita þar sem loftið og veggirnir mætast. „Þessi áletrun er annað hvort frá því að húsið er reist upphaflega. 1846 er skólinn settur í fyrsta skipti þann 1. október. Hann á 180 ára afmæli núna í ár. Þetta gæti verið alveg síðan þá. Mjög líklega væri þetta þá kannski á dönsku eða norsku. Það er Dani sem teiknar þetta hús og svo er þetta norskir smiðir sem byggja húsið,“ segir Sólveig Guðrún Hannesdóttir rektor Menntaskólans í Reykjavík. Hinn möguleikinn er sá að áletrunin sé frá síðari hluta sjötta áratugarins þegar síðast var ráðist í framkvæmdir í stofunni. Verkstjóri, stígur og Kristinn Ármannsson meðal getgáta Áletrunin er gerð með skrautlegum skrifstöfum sem torveldar lesturinn. Sérstaklega þegar hugsanlegt er að hún hafi verið gerð fyrir 180 árum síðan. „Þetta gæti verið einhver danska. Mottager eða stiger,“ segir Sólveig en það síðarnefnda telur hún hugsanlega geta vísað til svokallaðs stiger sem er danskt orð yfir verkstjóra einhvers konar. Við yfirborðskennda rannsókn virðist það þó aðallega vísa til verkstjóra í námugreftri. Áletrunin dularfulla.Menntaskólinn í Reykjavík „Sumir hafa haldið að þetta sé stígur eða Amtmannsstígur sem er auðvitað gatan hér. Aðrir hafa spáð í því hvort þetta sé K og hvort þetta sé þá nafnið á rektor þess tíma, Kristinn Ármansson.“ Starfsmenn skólans hafa ýmsar kenningar og hafa einnig leitað aðstoðar almennings á samfélagsmiðlum við að leysa ráðgátuna. Lesendur eru hvattir til rýna í myndirnar og spreyta sig á að ráða letrið.
Framhaldsskólar Mest lesið Fólk eigi ekki að vera feimið við sleipiefnið Heilsa „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ Lífið Skósveinarnir hafi ekki þjónað Hitler Bíó og sjónvarp Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei Lífið Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Lífið Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Lífið Allir og amma þeirra á Ítalíu Lífið „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Lífið Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island Lífið Melabúðin fagnar sjötíu árum Lífið Fleiri fréttir Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Sjá meira