Viðskipti erlent

Hefja rann­sókn á Ryanair

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Forsvarsmenn Ryanair segja að um falska rannsókn sé að ræða.
Forsvarsmenn Ryanair segja að um falska rannsókn sé að ræða. Getty

Samkeppnis- og markaðseftirlit Bretlands hefur hafið rannsókn á breska lággjaldaflugfélaginu Ryanair vegna gjalda sem farþegar þurfa að greiða svo foreldrar og börnin þeirra geti setið saman í flugferð.

Eftirlitið hefur til rannsóknar hvort að stefna flugfélagsins um að leggja átta punda gjald, rúmar þrettán hundruð krónur, á hverja flugferð svo foreldrar og börn sitji saman sé sanngjörn og í samræmi við neytendalög. Í skilmálum Ryanair segir að sé barnið á aldrinum tveggja til ellefu ára þurfi foreldri að sitja við hlið þess samkvæmt umfjöllun BBC.

Ryanair sé eina stóra breska flugfélagið sem leggur á slíkt gjald á meðan önnur flugfélög bjóði upp á að börn sætu við hlið foreldris eða forráðamanns án gjalds. 

Tekið er fram að einungis sé verið að hefja rannsóknina og er ekki komin niðurstaða um hvort Ryanair hafi í raun brotið lög með gjaldinu. 

Forsvarsmenn Ryanair gáfu lítið fyrir fregnirnar og sögðu í yfirlýsingu að um væri að ræða falska rannsókn.

„Þessi falska rannsókn Samkeppnis- og markaðseftirlitsins er misheppnuð tilraun Starmer-stjórnarinnar til að þykjast bera umhyggju fyrir neytendum þegar henni hefur mistekist að afnema ADP [flugfarþegagjald] sem myndi strax skila lægri fargjöldum fyrir alla neytendur,“ segir í yfirlýsingunni.

„Ryanair hlakkar til að hrekja þessar fölsku fullyrðingar eftirlitsins í þessari fölsku rannsókn.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×