Fjármálaráðherra veldur fyrrverandi varaformanni Viðreisnar vonbrigðum Tómas Arnar Þorláksson skrifar 14. júní 2026 13:14 Þorsteinn Víglundsson, formaður SI og fyrrerandi ráðherra Viðreisnar, segir fjármálaáætlun fjármálaráðherra valda sér miklum vonbrigðum. vísir/einar/anton Fyrrverandi varaformaður Viðreisnar segir fjármálaáætlun núverandi varaformanns Viðreisnar, Daða Más Kristóferssonar fjármálaráðherra, mikil vonbrigði.
Í fjármálaáætlun er til að mynda gert ráð fyrir að hækka skatt á fyrirtæki í fjármálageiranum. Nánari útfærsla skattheimtunnar hefur ekki verið kynnt en gert er ráð fyrir að innheimtan aukist um sex milljarða. Í nýlegri greiningu IFS ráðgjafar er reiknað hvaða áhrif sú skattlagning myndi hafa á virði bankanna. Samkvæmt greiningunni myndi virði viðskiptabankanna dragast saman um í kringum fjögur prósent. Mestu áhrifin yrðu á Íslandsbanka en virði hans myndi dragast saman um 12,4 milljarða. Þorsteinn Víglundsson, formaður Samtaka iðnaðarins og fyrrverandi ráðherra og fyrrverandi varaformaður Viðreisnar, segir það auðséð að auknar álögur muni bitna á kjörum almennings. „Ég held að það sé algjörlega viðbúið að slíkur viðbótarskattur komi úr vasa heimila og fyrirtækja. Skattar sem lagðir eru á fyrirtæki auka kostnað þeirra og enda gjarnan hjá viðskiptavinum þeirra á endanum. Með sama hætti og breytingar á virðisaukaskatti til hækkunar eða lækkunar skila vöruverðsbreytingum til hækkunar eða lækkunar. Þetta virkar ekkert öðruvísi og algjörlega viðbúið að þetta endi á heimilunum og fyrirtækjunum.“ Hann ítrekar að nú þegar sé um erfiða stöðu að ræða fyrir byggingargeirann og telur að aukin skattheimta muni ekki bæta þar úr. Hann reiknar með enn frekari kólnun á komandi misserum. „Það er viðkvæm staða núna á byggingamarkaði og þar er hvers kyns hækkun á fjármögnunarkostnaði ofan í þann samdrátt sem þar er að eiga sér stað mjög óheppileg og því til viðbótar áformar ríkisstjórnin að gera enn frekari breytingar til lækkunar á hérna endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna vinnu á byggingarstað sem er bein kostnaðaraukning á íbúðarhúsnæði við mjög erfiðar kringumstæður.“ Hann segir það mikil vonbrigði að ríkisstjórnin hafi ekki brugðist við þeirri gagnrýni sem spratt upp þegar fjármálaáætlun var kynnt í vor. Hann bætir við að skattar á álögur séu nú þegar hærri en í samanburðarlöndum Íslands. „Sér í lagi þegar horft er til þess að það er að teiknast upp mun erfiðara efnahagsástand en gert var ráð fyrir. Við þessar kringumstæður er bara mikilvægt að ríkið gæti aðhalds í eigin rekstri en leggi ekki viðbótarálögur á fyrirtæki og heimili. Þegar þessi ríkisstjórn var mynduð og þá var talað um stóraukið aðhald í ríkisrekstri, en því miður virðumst við vera að sjá fyrst og fremst stórauknar álögur á fólk og fyrirtæki og mjög víðtækar skattahækkanir sem gripið hefur verið til núna á þessu eina og hálfa ári sem þessi stjórn hefur verið við völd.“ Hann tekur fram að hann hafi miklar mætur á fjármálaráðherra og telur hann Daða hafa góðan og breiðan skilning á hagkerfinu. Niðurstaðan sé þó vonbrigði. „Þetta er ríkisstjórnin í heild og málamiðlun þar á milli og auðvitað er í kringumstæðum eins og þessum alltaf þrýstingur úr einstökum ráðuneytum á aukin útgjöld. Það er alveg ljóst að það er ekki fjármálaráðherra einn sem ber ábyrgð á þessari fjármálaáætlun heldur ríkisstjórnin í heild og það veldur bara einfaldlega vonbrigðum að sjá að ekki sé stigið fastar niður gagnvart frekari útgjaldaþenslu.“ Hann segir að endurskoða þurfi nálgun ríkisfjármálanna frá grunni. Hann segir ríkisstjórnina ekki styðja með nægilega góðum hætti við atvinnulífið og hagkerfið í heild.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Fjármálafyrirtæki Skattar, tollar og gjöld Alþingi Viðreisn Tengdar fréttir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hagnaður af rekstri Íslandsbanka nam 7,5 milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungi og arðsemi eigin fjár á ársgrundvelli var 13,6 prósent, sem er í báðum tilvikum yfir spám greinenda fyrir fjórðunginn. Aukning í vaxtatekjum, sem var rúmum 11 prósentum yfir spám greinenda, skýrir að stórum hluta aukinn hagnað samanborið við fyrsta ársfjórðung síðasta árs. 7. maí 2026 16:07 Mest lesið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Viðskipti innlent Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Viðskipti innlent Man varla fundinn í gær: Starfsfólk heldur jafnvel að það sé að fá Alzheimer Atvinnulíf Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Viðskipti innlent Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Viðskipti innlent Stjórnendur þurfa líka stuðning og FOBO á vinnustöðum eykst Atvinnulíf Samherji selur Margréti til Færeyja Viðskipti innlent Spá óbreyttum vöxtum Viðskipti innlent Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Viðskipti innlent Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Loka Krambúðinni á Húsavík Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Verulegur samdráttur hjá Isavia 50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Mikill munur á afkomu almannatengla Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Selja fyrir 400 milljónir í Síldarvinnslunni Setja upp fjörutíu smáhýsi í Þjórsárdal Sextán starfsmönnum sagt upp á Siglufirði Vilja að 23 lóðir verði seldar undan Vatnsendaerfingja Launahækkanir gætu orðið upptaktur að harðri lendingu Sjá meira
Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hagnaður af rekstri Íslandsbanka nam 7,5 milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungi og arðsemi eigin fjár á ársgrundvelli var 13,6 prósent, sem er í báðum tilvikum yfir spám greinenda fyrir fjórðunginn. Aukning í vaxtatekjum, sem var rúmum 11 prósentum yfir spám greinenda, skýrir að stórum hluta aukinn hagnað samanborið við fyrsta ársfjórðung síðasta árs. 7. maí 2026 16:07