„Óheppilegt“ fyrirkomulag hjá Beru sem getur aukið hættu á hagsmunaárekstrum
Gildi hefur efasemdir um að það standist ákvæði laga um hlutafélög að nýkjörinn stjórnarformaður Beru, Andri Þór Guðmundsson, geti fengið greitt allt að 4,3 milljónir króna í þóknun á mánuði til að vinna að einstökum verkefnum fyrir félagið og segir þetta „óheppilega“ fyrirkomulag geta aukið hættu á hagsmunaárekstrum.
Tengdar fréttir
Kallar eftir umræðu um hvort stjórnarformenn verði kosnir beint af hluthöfum
Stjórnarformaður eins stærsta lífeyrissjóðs landsins telur rétt að taka umræðu um hvort það eigi að hverfa frá því fyrirkomulagi að stjórnarmenn skráðra félaga ákveði það sjálfur hver gegnir formennsku og þess í stað að fara þá leið að kjósa um stjórnarformann í beinni kosningu á aðalfundum. Þá furðar hann sig á sjónarmiðum sem hafa komið nýlega frá Þorsteini Pálssyni, sem gagnrýndi greinaskrif forstjóra Icelandair og Heima, og segir þau fela í sér ákall um að „afnema mannréttindi stjórnenda“ skráðra félaga til að tjá sig um samfélagsmál.
Gagnrýnir umbun stjórnenda ef ávöxtun „nær að skríða“ yfir áhættulausa vexti
Stærsti hluthafi Haga var gagnrýninn á „umfang og útfærslu“ nýs kaupréttarkerfis smásölurisans og beindi þeirri spurningu til stjórnar félagsins á nýafstöðnum hluthafafundi af hverju hún teldi rétt að umbuna lykilstjórnendum með kaupréttum ef þeir næðu að skila ávöxtun sem væri vel undir ávöxtunarkröfu ríkisbréfa. Tillaga stjórnar Haga, sem er að stórum hluta í eigu lífeyrissjóða, að kaupréttarkerfi var samþykkt með nokkuð naumum meirihluta.
Telur „æskilegt“ að fleiri lífeyrissjóðir taki upp sömu áherslur og Gildi
Stjórnarformaður Gildis, sem hefur iðulega beitt sér gegn því sem sjóðurinn hefur talið vera „óhóflegar“ bónusgreiðslur eða kaupréttarsamningar hjá félögum í Kauphöllinni, kallar eftir því að aðrir lífeyrissjóðir fylgi í sömu fótspor og Gildi. Sjóðurinn taldi ástæðu til að framfylgja hluthafastefnu sinni af „meiri þunga en áður“ á nýafstöðnum aðalfundum skráðra félaga, að hans sögn.
Þurfa að gæta sín mjög vel þegar eignarhald þverast yfir samkeppnismarkaði
Umræða um kaupréttarkerfi skráðra félaga er „óþroskuð“ hjá fjárfestum og stjórnum, meðal annars vegna skorts á upplýsingum og rökræðu, segir framkvæmdastjóri eins af stærri lífeyrissjóðum landsins í ítarlegu viðtali við Innherja, og gagnrýnir jafnframt þau vinnubrögð þegar breytingartillögur eru gerðar með skömmum fyrirvara á hlutahafafundum. Hann geldur varhug við að lífeyrissjóðum sé beitt sem „hreyfiafli“ þegar ekki liggja fyrir neinar meginreglur um hvernig slíku samstarfi ætti að vera háttað og telur þess í stað mikilvægt að sjóðirnir fari gætilega þegar eignarhald þeirra í fyrirtækjum þverast yfir samkeppnismarkaði.