„Þurfum að passa okkur að vera ekki einföld“ Sunna Sæmundsdóttir skrifar 18. júní 2026 14:00 Halla Hrund Logadóttir, er flutningsmaður þingsályktunartillögu um jarðarkaup útlendinga. vísir/Vilhelm Þingforseti hvatti þingmenn til þess að vera á tánum í þingsal í dag í röð atkvæðagreiðslna. Til stendur að ljúka þingstörfum á morgun og þrjú þingmál stjórnarandstöðunnar verða jafnframt tekin til umræðu. Þingmaður Framsóknar vonar að þingsályktunartillaga um greiningu á jarðakaupum erlendra aðila nái í gegn.
Þingmenn eru nú á lokasprettinum. Gert er ráð fyrir að þingstörfum ljúki á morgun og þó nokkrar atkvæðagreiðslur eru á dagskrá í dag. Þingfundur hófst með einni slíkri - um frumvarp um hækkun stofnframlaga ríkisins en málið er hluti af aðgerðapakka ríkisstjórnarinnar í húsnæðismálum. Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, hvatti þingmenn til að hafa hraðar hendur á tökkunum. „Forseti bendir háttvirtum þingmönnum á að í dag verða margar atkvæðagreiðslur og fólk verður að vera á tánum,“ sagði Þórunn áður en frumvarpið var samþykkt. Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, hvatti þingmenn til þess að vera á tánum.vísir/Vilhelm Á morgun stendur til að taka umræðu í þingsal um þingmannamál stjórnarandstöðuflokka. Frá Sjálfstæðisflokknum er það frumvarp um afnám stimpilgjalda við kaup á íbúðarhúsnæði eða lögbýli. Frá Miðflokkunum er undir frumvarp um lengri gildistíma ökuskírteina hjá eldra fólki og hjá Framsókn er það þingsályktunartillaga um stofnun sérfræðihóps þvert á ráðuneyti sem yrði falið að útfæra lagabreytingar með það að markmiði að takmarka jarðakaup erlendra aðila. Halla Hrund Logadóttir, flutningsmaður tillögunnar, segir málið afar mikilvægt með tilliti til auðlinda landsins. „Þetta eru í kringum eitt hundrað og fimmtíu jarðir og kannski nær tvö hundruð, það eru ekki til nákvæmar tölur en við þurfum að passa upp á þessar girðingar þannig að við vöknum ekki upp eftir tíu ár eða tuttugu og að þá sé kominn einhver nýr veruleiki í þessum auðlindamálum sem við eigum erfitt með að vinda ofan af,“ segir Halla Hrund. Mörg ríki tekið skref til baka Fyrri umræðu um þingsályktunartillgöuna er lokið og Halla vonar að hún verði samþykkt. „Við erum að tala um nýjan veruleika þar sem nú er miklu meiri ásókn í alþjóðlegar fjárfestingar í landi og í fjárfestingar í auðlindum og við þurfum að passa okkur að vera ekki einföld hér og halda að það sé hægt að vera með of víðar reglur í þessu samhengi. Það voru tekin mjög djörf skref með EES-samningnum og síðan hafa mjög mörg ríki tekið skref til baka, eins og flest ríki á Norðurlöndunum, og verið að setja stífari skilyrði. Við höfum verið ákveðnir eftirbátar og tekið minni skref. En það er nauðsynlegt fyrir okkur að klára þessa vinnu þar sem svona þróun gerist yfir tíma og það er erfitt af vinda ofan af henni,“ segir Halla.
Alþingi Framsóknarflokkurinn Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Jarðakaup útlendinga Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira