Annmarkar á fleiri en einu stigi málsins Áróra L Davíðsdóttir skrifar 18. júní 2026 15:26 Vöruskemma við Álfabakka 2a, „græna gímaldið“ svokallaða, hefur vakið mikið umtal og reitt marga til reiði. Innri endurskoðun og ráðgjöf (IER) telur að annmarkar hafi verið á stjórnsýslu- og leyfisferlum í tengslum við uppbyggingu vöruskemmu við Álfabakka, „græna gímaldinu“ svokallaða. Úttektin var kynnt á fundi borgarráðs í morgun.
Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Rekjavíkurborgar. Borgarstjórn fól Innri endurskoðun og ráðgjöf að gera úttekt á skipulagsferli við Álfabakka í janúar 2025. Niðurstaða úttektarinnar, sem kynnt var á fundi borgarráðs í morgun, sé að stjórnsýslulegir annmarkar hafi komið fram á fleiri en einu stigi málsins yfir langt tímabil. „Einkum hafi verið um að ræða veikleika í skýrleika og gæðum skipulagsskilmála og skipulagsgagna, rekjanleika ákvarðanatöku og samræmingu og fagmennsku í framkvæmd skipulags-, mats- og leyfisferla,“ segir í tilkynningunni. Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hafnaði kröfum Búseta, sem á blokkina að Árskógum 5-7, um að „græna gímaldið“ svokallaða í Álfabakka yrði rifið í október 2025. Innri endurskoðun og ráðgjöf hafi lagt fram tólf úrbótatillögur til meðferðar á umhverfis- og skipulagssviði. Borgarráð hafi samþykkt tillögurnar tólf en þær miði að því að styrkja skipulags-, leyfis- og stjórnsýsluferli Reykjavíkurborgar. Borgarráð hafi einnig samþykkt að hefja formlegar viðræður við eigendur og leigutaka Álfabakka 2a um mótvægisaðgerðir sem geti dregið úr áhrifum ásýndar skemmunnar. „Það er auðvitað löngu tímabært að bregðast við þessu erfiða máli en tillögunum er ætlað að tryggja að mistök sem þessi endurtaki sig ekki. Samhliða úrbótatillögum innri endurskoðunar fylgjum við málinu eftir með tillögum sem snúa að því að hefja samtal við húseigendur um bætta ásýnd byggingarinnar, meta áhrif umferðar um svæðið og hugsa skipulag Mjóddarinnar í heild til framtíðar. Mjóddin er auðvitað þungamiðja verslunar og þjónustu fyrir Breiðholtið, þar er jafnframt kröftugt íþróttastarf og mikilvægt að framtíð svæðisins sé hugsuð heildstætt með þarfir íbúa að leiðarljósi,” er haft eftir Hildi Björnsdóttur, borgarstjóra, í tilkynningunni.
Vöruskemma við Álfabakka Reykjavík Borgarstjórn Tengdar fréttir Reykjavíkurborg játar ranga upplýsingagjöf en umboðsmaður segir spurningum enn ósvarað Fulltrúar Reykjavíkurborgar hafa viðurkennt að hafa veitt Umboðsmanni Alþingis rangar upplýsingar um afgreiðslu umsagnar er varðaði vörugeymsluna við Álfabakka. 27. febrúar 2026 11:53 Græna gímaldið ljótast Niðurstöður liggja fyrir í kosningu Arkitektúruppreisarinnar, áhugamannahóps um framtíð arkitektúrs, um nýbyggingu ársins, bæði þá fallegustu og ljótustu. Græna gímaldið við Álfabakka 2a var valin ljótasta nýbyggingin og Hafnarstræti 75 á Akureyri sú fallegasta. 30. desember 2025 11:22 Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Kourani farinn úr landi Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent Fleiri fréttir Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Sjá meira
Reykjavíkurborg játar ranga upplýsingagjöf en umboðsmaður segir spurningum enn ósvarað Fulltrúar Reykjavíkurborgar hafa viðurkennt að hafa veitt Umboðsmanni Alþingis rangar upplýsingar um afgreiðslu umsagnar er varðaði vörugeymsluna við Álfabakka. 27. febrúar 2026 11:53
Græna gímaldið ljótast Niðurstöður liggja fyrir í kosningu Arkitektúruppreisarinnar, áhugamannahóps um framtíð arkitektúrs, um nýbyggingu ársins, bæði þá fallegustu og ljótustu. Græna gímaldið við Álfabakka 2a var valin ljótasta nýbyggingin og Hafnarstræti 75 á Akureyri sú fallegasta. 30. desember 2025 11:22