„Úr penna þeirra manna streymir gamalt fullyrðingarusl“ Jakob Bjarnar skrifar 23. júní 2026 13:20 Ljóst er að orð skálda vega enn þungt á Íslandi. Hannes Pétursson hellir sér yfir Morgunblaðið og Ólaf Ragnar Grímsson vegna komandi þjóðaratkvæðagreiðslu og furðar sig á heiftinni sem honum þykir lita afstöðu þeirra. vísir/valli Hannes Pétursson skáld skrifar grein á Vísi þar sem hann fer hörðum orðum um heift Nei-sinna í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort taka eigi upp viðræður við Evrópusambandið.
Ljóst má vera að orð skáldsins eru þung á metum, Hannesi finnst vert að málið sé borið undir þjóðina en furðar sig jafnframt á hitanum sem er í mótstöðumönnum atkvæðagreiðslunnar. Greinin birtist í morgun og er nú lang mest lesin allra viðhorfsgreina. „Til að mynda hefur nú viku eftir viku og mánuð eftir mánuð gefið að líta hvar mótstöðumenn atkvæðagreiðslunnar koma trítlandi héðan og þaðan og raða sér á síður Morgunblaðsins eins og sauðir á garða, sumir nokkuð stilltir, þótt úrtölur og vífilengjur séu við suðumark innra með þeim, aðrir svo vanstilltir að furðu gegnir. Úr penna þeirra manna streymir gamalt fullyrðingarusl, áþekkt því sem skall á hlustum alþjóðar þegar þráttað var um EES-samninginn. Reyndar hefur það rusl hlaðist upp við og við allar götur síðan,“ skrifar Hannes. Áhrifavaldar á borð við Grím Atlason framkvæmdastjóra kunna sér ekki læti og eru meðal þeirra sem taka skrifum Hannesar fagnandi. Þjóðinni virtist ekki viðbjargandi en þá kom Hannes Pétursson til bjargar en grein hans sé sem frelsandi vin í eyðimörk andleysis og einstaklingshyggju. „Þruglið sem kokkarnir í Hádegismóum hafa fengið að spúa yfir okkur í tengslum við Evrópusambandið er með algjörum ólíkindum. Í kommentakerfi blaðsins veður síðan fólk uppi og leggur til að hinn og þessi verði dæmdur fyrir landráð. Hvernig þar er talað um fólk er með öllu óskiljanlegt og að blaðið hafi þessa umræðu án nokkurrar ritstýringar er enn óskiljanlegra,“ skrifar Grímur meðal annars og vitnar í Hannes. Ólafur Ragnar fær á baukinn Þá þykir Grími eftirtektarverð einkunn sem Hannes gefur „okkar mikla leiðtoga“ Ólafi Ragnari Grímssyni, fyrrverandi forseta. „Eftirtektarvert var að í viðtali þessu vék fyrrverandi forseti vor ekkert, svo ég muni, að sjálfsákvörðunarrétti Grænlendinga, né heldur heyrði ég hann gagnrýna hið minnsta þann dólgshátt sem Donald Trump og sumir menn í valdaklíku hans hafa sýnt grænlensku þjóðinni hvað eftir annað. Grímur Atlason framkvæmdastjóri segir að sér hafi virst sem þjóðinni væri ekki viðbjargandi, en þá mætti Hannes Pétursson á vettvang.Vísir/Vilhelm Við lá að þessi þögn fæli í sér að Monroe-kenningin, tveggja alda gömul, gengi framar þeim alþjóðalögum sem nú eru í gildi. Þó tók út yfir þegar hinn postullegi leiðbeinandi ráðlagði Íslendingum að hafa nú sem hægast um sig í utanríkismálum, bíða þetta Grænlandsstórviðri af sér í felum, þannig að Trump tæki alls ekki eftir því að þeir væru til; og rökstuddi hann þá skoðun með orðskvið. Þarna var talað af reynslu. Eftir fjármálahrunið 2008, þegar víkingarnir hlupu rassbrenndir út og suður, sló skyndilegri þögn yfir Bessastaði, húsin þar, tún og traðir, svo hnausþykkri þögn að okkur Álftnesinga suma langaði til að skera úr henni sneiðar til minja – og vísa ég þá lauslega til kafþoku í gamalli flökkusögu. Einhvers staðar inni í þessari þykku þögn beið forsetinn af sér verstu óveðursbylgju fjármálahrunsins og upplausn útrásarglamursins. Steinhljóð handan við dag og veg var eina skjólið.“ Mikill fögnuður meðal þeirra sem styðja Já-ið í komandi kosningum Grímur hvetur menn til að lesa grein Hannesar og það gerir Illugi Jökulsson rithöfundur einnig: „Það dregur til tíðinda þegar Hannes Pétursson skrifar aðra eins grein. Lesið hana vandlega.” Sigmar Guðmundsson þingmaður Viðreisnar er að vonum ánægður: „Frábær grein. Rökföst og beitt. Höfundur kann að beita penna eins og alþjóð veit. Stílsnilld.“ Óhætt er að segja að greinin hafi slegið í gegn meðal þeirra sem hyggjast segja „Já“ meðan hún ýfir fjaðrir á þeim sem eru eindregið þeirrar skoðunar að það beri að merkja við „Nei“ í kjörklefanum 29. ágúst næstkomandi. „Fullyrðingaruslið er markað beisku hatri í garð Evrópusambandsins. Ekkert er við það að athuga þótt menn séu andvígir því sambandi frekar en öðru hér á jörðu. En ég leyfi mér að spyrja: Hvað hefur ESB gert á hlut Íslendinga svo að það verðskuldi slíkt hatur?“ spyr Hannes.
Fjölmiðlar Samfélagsmiðlar Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fleiri fréttir Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Sjá meira