Byrjuð að laga „frægustu gangstéttina í Grafarvogi“ Lovísa Arnardóttir skrifar 23. júní 2026 14:01 Aðstæður voru erfiðar á gangstéttinni. Vísir/Bjarni Í dag hófst vinna við lagfæringar á gangstétt við Langarima 4 í Grafarvogi. Stéttin var afar illa farin. Kona á tíræðisaldri slasaðist alvarlega í síðustu viku þegar hún flaug úr hjólastól sínum á sprunginni gangstéttinni beint á andlitið.
Hermann Guðmundsson, framkvæmdastjóri og sonur konunnar, skrifaði færslu um málið á Facebook um helgina og kallaði eftir viðbrögðum frá borgaryfirvöldum. Þau hafa nú brugðist við og mættu vinnuvélar á staðinn í morgun. Varað var við brotholum. Vísir/Bjarni „Stóra fréttin í dag er að vinnan er byrjuð við að laga frægustu gangstéttina í Grafarvogi. Það er ánægjulegt að sjá sterkt viðbragð og stjórnun þegar svona skellur kemur óvænt. Takk, Sjálfstæðismenn,“ segir Hermann í færslu á Facebook-síðu sinni í dag. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri segir að ákveðið hafi strax eftir að fréttir bárust að bregðast við. „Við fórum fram á að viðhaldi á þessari gangstétt við Langarima yrði flýtt og framkvæmdin sett í forgang. Strax var farið af stað í vinnu við upprif á stéttinni og framkvæmdin mun svo halda áfram næstu daga. En þetta er sannarlega ekki eina gangstéttin í borginni sem komin er á viðhald og víða hafa orðið slys. Það hefur í raun safnast upp gríðarleg innviðaskuld á gangstéttum um alla borg. Það er hluti af verkefnalista nýs meirihluta að ráðast í viðhaldsátak á gangstéttum og við munum tryggja til þess fjármagn í næstu fjárfestingaáætlun. Nú þarf hreinlega að forgangsraða í innviði og þjónustu við íbúana, annað þarf að bíða,“ segir Hildur um málið. Fleiri slys á gangstéttinni Í frétt Vísis um málið um helgina kom fram að mörg slys hafi orðið á gangstéttinni á hlaupahjólum, barnavögnum og núna hjólastólum. „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð. Nú skora ég á félaga mína í Sjálfstæðisflokknum að forða því strax að fleiri svona slys verði á þessum stað. Ábendingum íbúa hefur aldrei verið sinnt,“ sagði Hermann um helgina en starfsmaður Eirar var á leið með móður hans í klippingu þegar slysið varð. Vinnuvélin mætt. Vísir/Bjarni Hermann sagði nágranna sem urðu vitni að slysinu hafa drifið sig á staðinn þegar slysið varð til að hlúa að móður hans. „Og koma henni til hjálpar og þá koma fram þessar upplýsingar að þarna hafi margoft orðið slys, fólk með barnavagna, á hlaupahjólum og á reiðhjólum. Þetta er ekkert grín,“ sagði hann í samtali við Vísi um helgina. Fréttin hefur verið uppfærð með athugasemd frá borgarstjóra klukkan 14:22.
Reykjavík Eldri borgarar Umferðaröryggi Skipulagsmál Vegagerð Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Sjá meira