Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Sigurgeir Þorkelsson skrifar 25. júní 2026 16:09 AP Bachelorette-sería mormónaskvísunnar Taylor Frankie Paul kann að vera tekin til sýninga strax í næsta mánuði. Það er slúðurmiðillinn TMZ sem greinir frá og hefur eftir heimildarmönnum að eftirvinnsla þáttanna hafi aldrei verið stöðvuð heldur hafi klipparar haldið áfram að vinna þættina. Strax og greint hafði verið frá vali framleiðenda á Paul sem einhleypu seríunnar greindi Vísir frá því að valið þætti umdeilt og átti málið sannarlega eftir að vinda upp á sig en Piparmeyjarþáttaröð hennar var kippt af dagskrá ABC-stöðvarinnar aðeins þremur dögum fyrir frumsýningu. Frægðin hófst með Mom Tok Taylor Frankie Paul hlaut heimsfrægð í raunveruleikaþættinum The Secret Lives of Mormon Wives. Þættirnir fylgja hópi kvenna í Utah-ríki í Bandaríkjunum sem allar tilheyra Kirkju Jesú Krists hinna síðari daga heilögu, eða Mormónakirkjunni. Konurnar öðluðust fyrst frægð á TikTok þar sem þær kölluðu sig sameiginlega sem hóp Mom Tok. Þar sýndu þær frá daglegu lífi sínu en gríðarleg forvitni er oft og tíðum um líf eiginkvenna mormóna. Það var síðan þegar Paul birti myndband þar sem hún ræddi „swing“-senuna innan mormónasamfélagsins sem áhorfstölur hennar á miðlinum ruku upp, en flestir tengja mormóna eflaust við hefðbundin, kristin fjölskyldugildi. Tekin úr sýningu með aðeins þriggja daga fyrirvara Birting TMZ á myndbandi þar sem Paul og þáverandi sambýlismaður hennar, Dakota Mortensen, sáust takast á varð til þess að þáttaröðin var tekin úr sýningu. Í myndbandinu birtist Paul sem árásaraðilinn og sést meðal annars grýta barstól í átt að Mortensen. Paul var í kjölfarið handtekin og ákærð fyrir alvarlega líkamsárás og heimilisofbeldi. Hún játaði sekt í einum ákærulið, sem sneri að líkamsárás, en hinir voru felldir niður og hlaut hún þriggja ára skilorðsbundinn dóm. Handtakan og eftirmálar hennar voru til umfjöllunar í The Secret Lives of Mormon Wives þó að myndefnið hefði ekki verið sýnt. Paul lýsti því yfir í kjölfar birtingar myndbandsins að það væri tekið úr samhengi og væri hluti af áralangri herferð Mortensen sem snerist um að sverta mannorð hennar. Sagði hún að samband þeirra hefði einkennst af andlegu og líkamlegu ofbeldi af hans hálfu og hegðun hans í kjölfar sambandsslita þeirra væri áframhaldandi birtingarmynd þess. Mortensen og Paul eru í dag bæði með virkt nálgunarbann gagnvart hinum aðilanum. Paul hefur síðustu mánuði leitast við að birta nýja og endurbætta útgáfu af sér á samfélagsmiðlum þar sem hún talar um andlegan vöxt sinn og bataferlið í kjölfar þess sem á undan hefur gengið Í þessari frétt er fjallað um heimilisofbeldi. Verðir þú fyrir heimilisofbeldi eða ef grunur vaknar um slíkt er bent á lögreglu í síma 112, Kvennaathvarfið í síma 561-1205 og hjálparsíma Rauða krossins í 1717. Raunveruleikaþættir Hollywood Heimilisofbeldi Tengdar fréttir Piparjónkan tekin af dagskrá þremur dögum fyrir frumsýningu Sjónvarpsstöðin ABC hefur ákveðið að taka nýjustu þáttaröð The Bachelorette af dagskrá eftir að myndskeið af raunveruleikastjörnunni Taylor Frankie Paul, piparjónku seríunnar, að beita fyrrverandi kærasta sinn heimilisofbeldi, fór í dreifingu. Frumsýna átti þáttaröðina eftir þrjá daga. 19. mars 2026 21:35 Taylor segir myndbandið hluta af rógsherferð en Dakota vill nálgunarbann Raunveruleikastjarnan Taylor Frankie Paul segir myndband af henni beita fyrrverandi kærasta sinn, Dakota Mortensen, ofbeldi tekið úr samhengi, það sé hluti af áframhaldandi ófrægingarherferð gegn henni og hann hafi beitt hana ofbeldi. Mortensen hefur aftur á móti farið fram á nálgunarbann á hendur Paul og hafnar öllum ásökunum hennar. 20. mars 2026 15:15 Mest lesið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið „Ég er enn að venjast andlitinu á mér“ Bíó og sjónvarp Hinsegin ást í loftinu Lífið Arnór Sig kominn á fast Lífið Íslensk listakona sló í gegn í Miami Lífið Iceguys beint á toppinn og íslenska bíóárið mallar Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið „Erum bara vinir“ Lífið Fleiri fréttir Hinsegin ást í loftinu Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Íslensk listakona sló í gegn í Miami Safna í minningu Johns Snorra fyrir munaðarlaus börn Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir „Erum bara vinir“ Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Sjá meira
Strax og greint hafði verið frá vali framleiðenda á Paul sem einhleypu seríunnar greindi Vísir frá því að valið þætti umdeilt og átti málið sannarlega eftir að vinda upp á sig en Piparmeyjarþáttaröð hennar var kippt af dagskrá ABC-stöðvarinnar aðeins þremur dögum fyrir frumsýningu. Frægðin hófst með Mom Tok Taylor Frankie Paul hlaut heimsfrægð í raunveruleikaþættinum The Secret Lives of Mormon Wives. Þættirnir fylgja hópi kvenna í Utah-ríki í Bandaríkjunum sem allar tilheyra Kirkju Jesú Krists hinna síðari daga heilögu, eða Mormónakirkjunni. Konurnar öðluðust fyrst frægð á TikTok þar sem þær kölluðu sig sameiginlega sem hóp Mom Tok. Þar sýndu þær frá daglegu lífi sínu en gríðarleg forvitni er oft og tíðum um líf eiginkvenna mormóna. Það var síðan þegar Paul birti myndband þar sem hún ræddi „swing“-senuna innan mormónasamfélagsins sem áhorfstölur hennar á miðlinum ruku upp, en flestir tengja mormóna eflaust við hefðbundin, kristin fjölskyldugildi. Tekin úr sýningu með aðeins þriggja daga fyrirvara Birting TMZ á myndbandi þar sem Paul og þáverandi sambýlismaður hennar, Dakota Mortensen, sáust takast á varð til þess að þáttaröðin var tekin úr sýningu. Í myndbandinu birtist Paul sem árásaraðilinn og sést meðal annars grýta barstól í átt að Mortensen. Paul var í kjölfarið handtekin og ákærð fyrir alvarlega líkamsárás og heimilisofbeldi. Hún játaði sekt í einum ákærulið, sem sneri að líkamsárás, en hinir voru felldir niður og hlaut hún þriggja ára skilorðsbundinn dóm. Handtakan og eftirmálar hennar voru til umfjöllunar í The Secret Lives of Mormon Wives þó að myndefnið hefði ekki verið sýnt. Paul lýsti því yfir í kjölfar birtingar myndbandsins að það væri tekið úr samhengi og væri hluti af áralangri herferð Mortensen sem snerist um að sverta mannorð hennar. Sagði hún að samband þeirra hefði einkennst af andlegu og líkamlegu ofbeldi af hans hálfu og hegðun hans í kjölfar sambandsslita þeirra væri áframhaldandi birtingarmynd þess. Mortensen og Paul eru í dag bæði með virkt nálgunarbann gagnvart hinum aðilanum. Paul hefur síðustu mánuði leitast við að birta nýja og endurbætta útgáfu af sér á samfélagsmiðlum þar sem hún talar um andlegan vöxt sinn og bataferlið í kjölfar þess sem á undan hefur gengið Í þessari frétt er fjallað um heimilisofbeldi. Verðir þú fyrir heimilisofbeldi eða ef grunur vaknar um slíkt er bent á lögreglu í síma 112, Kvennaathvarfið í síma 561-1205 og hjálparsíma Rauða krossins í 1717.
Í þessari frétt er fjallað um heimilisofbeldi. Verðir þú fyrir heimilisofbeldi eða ef grunur vaknar um slíkt er bent á lögreglu í síma 112, Kvennaathvarfið í síma 561-1205 og hjálparsíma Rauða krossins í 1717.
Raunveruleikaþættir Hollywood Heimilisofbeldi Tengdar fréttir Piparjónkan tekin af dagskrá þremur dögum fyrir frumsýningu Sjónvarpsstöðin ABC hefur ákveðið að taka nýjustu þáttaröð The Bachelorette af dagskrá eftir að myndskeið af raunveruleikastjörnunni Taylor Frankie Paul, piparjónku seríunnar, að beita fyrrverandi kærasta sinn heimilisofbeldi, fór í dreifingu. Frumsýna átti þáttaröðina eftir þrjá daga. 19. mars 2026 21:35 Taylor segir myndbandið hluta af rógsherferð en Dakota vill nálgunarbann Raunveruleikastjarnan Taylor Frankie Paul segir myndband af henni beita fyrrverandi kærasta sinn, Dakota Mortensen, ofbeldi tekið úr samhengi, það sé hluti af áframhaldandi ófrægingarherferð gegn henni og hann hafi beitt hana ofbeldi. Mortensen hefur aftur á móti farið fram á nálgunarbann á hendur Paul og hafnar öllum ásökunum hennar. 20. mars 2026 15:15 Mest lesið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið „Ég er enn að venjast andlitinu á mér“ Bíó og sjónvarp Hinsegin ást í loftinu Lífið Arnór Sig kominn á fast Lífið Íslensk listakona sló í gegn í Miami Lífið Iceguys beint á toppinn og íslenska bíóárið mallar Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið „Erum bara vinir“ Lífið Fleiri fréttir Hinsegin ást í loftinu Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Íslensk listakona sló í gegn í Miami Safna í minningu Johns Snorra fyrir munaðarlaus börn Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir „Erum bara vinir“ Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Sjá meira
Piparjónkan tekin af dagskrá þremur dögum fyrir frumsýningu Sjónvarpsstöðin ABC hefur ákveðið að taka nýjustu þáttaröð The Bachelorette af dagskrá eftir að myndskeið af raunveruleikastjörnunni Taylor Frankie Paul, piparjónku seríunnar, að beita fyrrverandi kærasta sinn heimilisofbeldi, fór í dreifingu. Frumsýna átti þáttaröðina eftir þrjá daga. 19. mars 2026 21:35
Taylor segir myndbandið hluta af rógsherferð en Dakota vill nálgunarbann Raunveruleikastjarnan Taylor Frankie Paul segir myndband af henni beita fyrrverandi kærasta sinn, Dakota Mortensen, ofbeldi tekið úr samhengi, það sé hluti af áframhaldandi ófrægingarherferð gegn henni og hann hafi beitt hana ofbeldi. Mortensen hefur aftur á móti farið fram á nálgunarbann á hendur Paul og hafnar öllum ásökunum hennar. 20. mars 2026 15:15
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“