Fótbolti

Maður dagsins: Þjáfari hans hjálpaði honum að þroskast

Andri Broddason skrifar
Gonzalo Plata tryggði Ekvador í 32-liða úrslit heimsmeistaramótsins í fótbolta eftir að hafa skorað sigurmark gegn Þýskalandi í gær.
Gonzalo Plata tryggði Ekvador í 32-liða úrslit heimsmeistaramótsins í fótbolta eftir að hafa skorað sigurmark gegn Þýskalandi í gær. Mattia Ozbot/Getty Images

Gonzalo Plata gerði sér lítið fyrir og tryggði Ekvador áfram í 32-liða úrslit heimsmeistaramótsins í fótbolta með því að skora sigurmark þeirra gegn Þýskalandi í gær. Hann er því valinn maður dagsins á HM.

Gonzalo Plata er 25 ára og ólst upp í Ekvador og spilaði þar fyrir félagið Independiente del Valle. Þegar Plata var yngri var hann óreglusamur drengur en með hjálp þáverandi þjálfara liðsins kom hann sér á beinu brautina.

Juan Carlos Leon var þáverandi þjálfari Independiente del Valle og lagaði hann hugarfar Plata sem hann átti í vandræðum með. Honum varð oft heitt í hamsi og lét andstæðingana sína fara í taugarnar á sér og fékk mikið af rauðum spjöldum.

Plata hafði ekki heldur gaman af því að hlaupa og var latur leikmaður inni á vellinum. Leon sýndi honum mikilvægi þess að hlaupa og hvatti hann til þess að gera meira af því. Leon hjálpaði því Plata að þroskast og verða að manninum sem hann er í dag.

Plata hefur spilað með ýmsum liðum út um allan heim en hann fór frá Ekvador til Sporting Lisbon í Portúgal þar sem hann var í nokkur ár. Núna spilar hann fyrir Flamengo í Brasilíu en hann hefur einnig spilað á Spáni og í Katar.

Á Spáni spilaði hann með Real Valladolid en þar lenti hann í vandræðum við félagið. Plata lenti í árekstri árla morguns eftir að hafa heimsótt skemmtistaði alla nóttina. Real Valladolid fordæmdi áreksturinn og hegðun Plata en hann sá eftir ákvörðunum sínum og tók fulla ábyrgð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×