Velferð þarf rými Þorvaldur Davíð Kristjánsson skrifar 27. júní 2026 10:01 Reykjavík á að vera borg fyrir alla. Það er fallegt og gott markmið, en það má ekki vera orðin tóm. Borg fyrir alla þarf líka að virka fyrir þau sem standa höllum fæti, fyrir fólk í neyð og fyrir þau sem þurfa á stuðningi samfélagsins að halda þegar lífið verður flókið. Umræða síðustu daga um Kaffistofu Samhjálpar minnir okkur á þetta. Kaffistofan sinnir mikilvægu hlutverki fyrir fólk sem á erfitt með að sjá sér fyrir nauðsynjum dagsins. Þjónustan snýst ekki aðeins um mat heldur um mannlega reisn, öryggi og hafa stað til að leita á þegar allt annað bregst. Þegar slík starfsemi stendur frammi fyrir óvissu um framtíðaraðstöðu sína er eðlilegt að borgin taki stöðuna alvarlega. Opinber kerfi geta ekki leyst öll verkefni ein og sér. Öflugt samfélag byggir líka á sterkum félagasamtökum sem njóta trausts og ná til fólks á annan hátt en hið opinbera getur. Það þýðir ekki að Reykjavíkurborg eigi sjálfkrafa að taka yfir rekstur félagasamtaka eða leysa húsnæðismál þeirra. En það þýðir að borgin eigi að vera tilbúin að leita lausna í samstarfi við þá sem reka þjónustuna, íbúa í nágrenni og aðra hagaðila. Slík vinna þarf þó að vera vönduð. Þegar þjónusta við viðkvæma hópa er annars vegar skiptir miklu máli að undirbúningur sé faglegur, málsmeðferð skýr og samtal við nærumhverfið raunverulegt. Traust byggist ekki upp með flýtimeðferð heldur með gagnsæi, virðingu og vandaðri stjórnsýslu. Þetta er velferðarpólitík í sinni raunverulegu mynd. Hún snýst ekki um yfirlýsingar heldur um það hvort þjónustan virki. Hvort fólk komist þangað sem hún er veitt. Hvort úrræðin séu staðsett þar sem þörfin er og hvort jafnvægi ríki milli þarfa þjónustuþega og hagsmuna nærumhverfis. Á fyrsta fundi nýs velferðarráðs samþykkti ráðið tillögu frá fulltrúum Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks um að kanna með hvaða hætti Reykjavíkurborg geti, í samstarfi við Rauða krossinn, komið að lausn á húsnæðismálum Ylju. Tillagan felur ekki í sér fyrirfram ákveðna niðurstöðu heldur að málið verði skoðað af ábyrgð. Hvaða möguleikar eru fyrir hendi? Hvernig getur borgin lagt sitt af mörkum? Og hvernig tryggjum við að tekið sé fullt tillit til þjónustuþega, nærumhverfis og vandaðrar málsmeðferðar? Við eigum hvorki að loka augunum fyrir vanda né lofa lausnum áður en þær liggja fyrir. Við eigum að taka vandann alvarlega, afla upplýsinga og taka ákvarðanir á málefnalegum grunni. Það er ábyrg velferðarpólitík. Við eigum að byggja samfélag þar sem fólk fær tækifæri til að standa á eigin fótum en er ekki skilið eftir þegar það þarf stuðning. Í því felst líka að viðurkenna mikilvægi félagasamtaka sem sinna ómetanlegu starfi í nærumhverfi borgarbúa. Samhjálp, Rauði krossinn og önnur slík samtök ná oft til fólks sem opinber kerfi eiga erfiðara með að ná til og minna okkur á að velferð er fyrst og fremst mannlegt verkefni. En samstarf við slík samtök þarf að byggja á skýrum ramma. Borgin á að vera traustur samstarfsaðili, ekki tilviljanakenndur bjargvættur. Við þurfum að vita hvað við erum að gera og hvers vegna. Kaffistofa Samhjálpar og Ylja eru ólík úrræði, en umræðan um þau snýst í grunninn um sömu spurninguna: Hvernig borg viljum við vera þegar fólk í erfiðustu aðstæðunum þarf á okkur að halda? Mitt svar er einfalt. Borg sem sýnir mannúð, en líka ábyrgð. Borg sem leitar lausna í samstarfi við aðra, byggir ákvarðanir á fagmennsku og tekur bæði tillit til þeirra sem þurfa þjónustuna og þeirra sem búa í nærumhverfinu. Reykjavík verður ekki borg fyrir alla nema hún sé líka borg fyrir þau sem eiga erfiðast með að láta í sér heyra. Til þess þarf góðan vilja. Til þess þarf ábyrgð. Og til þess þarf rými. Velferð þarf rými. Höfundur er fulltrúi Viðreisnar í Velferðarráði Reykjavíkurborgar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þorvaldur Davíð Kristjánsson Viðreisn Reykjavík Mest lesið Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson Skoðun Skoðun Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi þess að lifa æskuna af Einar Torfi Einarsson Reynis skrifar Skoðun Hvað ef svarið hefði verið já? Eva Magnúsdóttir skrifar Skoðun Húsnæðisstefnan sem gerði ungt fólk að leiguliðum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Veist þú í raun hvernig gervigreind virkar? Bjarki Sigurjónsson Thorarensen skrifar Sjá meira
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar