Verkin tala Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar 29. júní 2026 08:01 Á nýliðnu þingi voru samþykkt fimmtán mál á Alþingi úr dómsmálaráðuneytinu. Fjögur frumvörp um breytingar á útlendingalögum urðu að lögum sem er meiri árangur í málaflokknum á einu þingi en náðst hefur í níu ár. Það skiptir máli vegna þess að of lengi hefur íslenskt kerfi verið óskýrt, framkvæmdin veik og reglurnar rýmri en á hinum Norðurlöndunum. Við höfum nú tekið stór skref til að breyta því. Þessi árangur er ekki tilviljun. Ríkisstjórnin hefur einsett sér að ná stjórn á málaflokknum og færa íslenskt regluverk nær öðrum. Markmiðið er einfaldlega að byggja upp skynsamlegt regluverk og kerfi sem nær fram markmiðum um að hafa stjórn á málaflokknum og ekki síður að taka vel á móti því fólki sem hér sest að. Afturköllun verndar nú raunhæfur möguleiki Nú er hægt að afturkalla alþjóðlega vernd hjá þeim sem brjóta alvarlega eða ítrekað af sér. Þessi regla skiptir máli. Hún felur í sér skýr skilaboð um að fólk sem hingað kemur verður að fara að þeim lögum sem hér gilda. Hin séríslenska 18 mánaða regla, sem gat veitt sjálfkrafa dvalarleyfi eingöngu vegna tafa á málsmeðferð, hefur verið afnumin. Skilyrði fyrir námsmannaleyfum hafa verið hert og málsmeðferð atvinnu- og dvalarleyfa einfölduð. Á þessu þingi voru líka samþykktar mikilvægar breytingar sem styrkja landamærin í gegnum Schengen-samstarfið. Þá hefur brottfararstöð verið lögfest sem lokaúrræði þess minnihlutahóps sem neitar að virða ákvarðanir stjórnvalda um að fara úr landi. Ísland hefur sætt gagnrýni fyrir að vera eina Schengen ríkið sem ekki rekur slíkt úrræði. Slíkt úrræði mun vonandi verða til þess að enn fækkar í þeim hópi sem neita að virða ákvarðanir stjórnvalda. Kærufrestir hafa verið styttir, skimun á landamærum styrkt og gjaldskrár færðar nær því sem tíðkast á Norðurlöndum. Þetta eru löngu tímabærar breytingar. Í haust mun ég kynna frumvarp um heildarendurskoðun á reglum um dvalarleyfi. Jafnframt er starfandi hópur sem rýnir nú lög og framkvæmd við veitingu íslensks ríkisborgararéttar og mun skila tillögum um breytingar. Fólksfjölgun kallar á skýra stefnu Frjálsir fólksflutningar hafa skipt miklu fyrir hagvöxt Íslands. Sem samfélag reiðum við okkur mjög á það fólk sem hingað kemur til þess að starfa við mikilvæg störf, allt frá heilbrigðisþjónustu til byggingaiðnaðar. En stjórnvöld mega ekki horfa fram hjá því að fólksfjölgun hefur verið hraðari en uppbygging húsnæðis, skóla og heilbrigðisþjónustu. Ísland hefur á undanförnum árum veitt hlutfallslega fleiri dvalarleyfi en aðrar Norðurlandaþjóðir. Þetta gerðist án þess að samfélagsleg áhrif væru metin af nægilegri festu. Þegar innviðir ráða ekki við vöxtinn skapast álag, togstreita og óöryggi. Ábyrg stjórnvöld bregðast við því. Af sömu ástæðu er ríkisstjórnin jafnframt að auka fjárframlög til íslenskukennslu til þeirra sem hingað setjast að til þess að gefa fólki sem hingað kemur raunveruleg tækifæri til þátttöku í samfélaginu. Í haust mun ég leggja fram frumvarp um heildarendurskoðun reglna um dvalarleyfi. Jafnframt er unnið að endurskoðun reglna um veitingu ríkisborgararéttar. Markmiðið er skýrt: sanngjarnt kerfi, skýr skilyrði og traust framkvæmd. Öruggara Ísland Hvað varðar löggæslu höfum við sömuleiðis tekið stór skref. Kastljósinu er beint að skipulagðri glæpastarfsemi en slík starfsemi er raunveruleg ógn við íslenskt samfélag og birtist meðal annars í fíkniefnaviðskiptum, peningaþvætti, mansali og ofbeldi. Með Öruggara Íslandi var í fyrsta sinn sett fram heildstæð aðgerðaáætlun gegn skipulagðri brotastarfsemi. Ný lög um endurheimt ólögmæts ávinnings af afbrotum styrkja baráttuna gegn skipulögðum glæpum og gera stjórnvöldum kleift að ganga fastar eftir fjármunum sem rekja má til glæpa. Þetta skiptir sköpum. Skipulögð brotastarfsemi er nánast alltaf rekin í hagnaðarskyni. Þess vegna verður að taka fjárhagslegan ávinning af þeim sem stunda þessa glæpi. Á næsta þingi mun ég jafnframt leggja fram frumvarp sem beinist sérstaklega gegn skipulagðri brotastarfsemi. Þolendur eiga að upplifa öryggi Við höfum líka tekið nauðsynleg skref til að vernda brotaþola. Í vor voru samþykkt lög sem heimila notkun ökklabanda við rafrænt eftirlit vegna brota á nálgunarbanni. Það er tímabært og mikilvægt mál. Það eru ekki mannréttindi að fá að ofsækja fólk. Konur sem upplifað hafa ofbeldi í nánum samböndum eru stór hluti þeirra sem upplifa óöryggi vegna þess að fyrrverandi maki virðir ekki friðhelgi þeirra. Við viljum að lögregla og réttarkerfið hafi úrræði til að tryggja öryggi þolenda. Það var með stolti sem ég kynnti fyrstu landsáætlun Íslands um aðgerðir gegn kynbundnu ofbeldi. Ríkisstjórn Viðreisnar, Samfylkingar og Flokks Fólksins mun halda áfram að láta verkin tala. Í haust mun ég leggja fram frumvörp til að tryggja lög og rétt í landinu, efla öryggi landsmanna og ekki síst þolenda ofbeldis. Gleðilegt sumar, kæru landsmenn. Höfundur er dómsmálaráðherra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir Mest lesið Hafa íslensku lífeyrissjóðirnir staðið sig nógu vel? Kjartan Björgvinsson Skoðun Pólitísk ábyrgð hlýtur að hafa afleiðingar Erna Bjarnadóttir Skoðun Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir Skoðun Þegar Alþingi er beygt í duftið Sigurður Sigurðsson Skoðun Goðarnir fóru aldrei – þeir skiptu bara um nafn Ragnar Thorarensen Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson Skoðun Skoðun Skoðun Hafa íslensku lífeyrissjóðirnir staðið sig nógu vel? Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Pólitísk ábyrgð hlýtur að hafa afleiðingar Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar Alþingi er beygt í duftið Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Sammála – leggjum þjóðinni ekki orð í munn Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Goðarnir fóru aldrei – þeir skiptu bara um nafn Ragnar Thorarensen skrifar Skoðun Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Spírallinn Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir skrifar Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir skrifar Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen skrifar Skoðun Getur maður verið rasisti án þess að gera sér grein fyrir því? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Sjá meira
Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar