Yfir þúsund látnir í hitabylgjunni í Evrópu og hitamet falla víða Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 29. júní 2026 06:25 Íbúar í Kraká í Póllandi eru meðal þeirra sem hafa orðið fyrir barðinu á hitanum síðustu daga. EPA/Lukasz Gagulski Hitamet hafa fallið víða í Evrópu síðustu daga og eru um 1300 manns látnir vegna hennar, samkvæmt framkvæmdastjóra Alþjóðaheilbrigðastofnunarinnar. Hann segir að evrópsk heimili, vinnustaðir og skólar séu ekki byggðir fyrir slíkan hita sem mælst hefur í álfunni síðan í síðustu viku.
Í umfjöllun breska ríkisútvarpsins kemur fram að hitamet hafi fallið víða í álfunni, meðal annars í Þýskalandi, Póllandi og í Tékklandi. Tedros Adhanom Ghebreyesus framkvæmdastjóri Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar segir að hiti líkt og þessi geti haft alvarleg áhrif í för með sér á heilsufar fólks. Tedros segir að evrópsk heimili, vinnustaðir og skólar hafi ekki verið byggðir fyrir slíkt hitastig. Evrópa sé sú heimsálfa þar sem hiti hafi hækkað mest undanfarin ár, tvöfalt á við það sem gerist að meðaltali í heiminum. BBC segir frönsk heilbrigðisyfirvöld tengja um þúsund andlát við hitann frá því síðasta miðvikudag. Flestir sem látist séu yfir 65 ára. Í gær sunnudag féll hitamet í Þýskalandi en í austari hluta landsins skammt frá landamærum landsins að Póllandi mældist hitinn 41,7 gráður. Þá féll hitamet einnig í Póllandi þar sem hitinn mældist 40,5 gráður. Tedris segir ljóst að bregðast þurfi við. „Af völdum loftslagsbreytinga og hlýnunar jarðar er fyrirbærið „hitabylgja sem áður gekk yfir einu sinni á mannsaldri“ nú að verða nær árlegur viðburður,“ skrifaði Tedros. Hann hvetur Evrópulönd til að „innleiða aðgerðaáætlanir vegna hitabylgna“ sem lið í því að vernda heilsu fólks í ljósi loftslagsbreytinga.
Veður Heilsa Hitabylgja í Evrópu í júní 2026 Mest lesið Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Fleiri fréttir Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Yfirhershöfðingja Úkraínuhers vikið úr embætti Minnst tólf létust í árásum Ísraelshers Handtakan þyrfti að byggja á alþjóðalögum Sjá meira