Semja við leikmanninn sem var með 34 stig að meðaltali á móti þeim í fyrra Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. júní 2026 13:00 Jadakiss Guinn spilar áfram á Íslandi en færir sig frá Suðurlandinu og í Hafnarfjörð. Vísir/Anton Haukar hafa styrkt liðið sitt fyrir komandi tímabil í kvennakörfunni og sömdu við leikmann sem reyndist Haukaliðinu afar erfið í Bónusdeildinni á síðustu leiktíð.
Jadakiss Guinn hefur skrifað undir samning um að leika með Haukaliðinu á næstu leiktíð. Jada er kraftmikill bakvörður sem lék með Hamar/Þór síðasta vetur. Guinn var með 24,1 stig, 7,7 fráköst og 5,6 stoðsendingar að meðaltali í leik en í leikjunum tveimur á móti Haukum var hún aftur á móti með 34,5 stig, 7,5 fráköst og 6,5 stoðsendingar að meðaltali í leik. Guinn skoraði 37 stig á verðandi heimavelli sínum í Ólafssal á Ásvöllum þar sem hún hitti úr 16 af 21 skoti sínu eða 76 prósent skotanna. Guinn spilaði í fjögur ár í Tennessee Tech University við góðan orðstír en færði sig svo yfir í Chattanooga-háskólann og kláraði fimmta háskólaárið sitt þar. Þar hjálpaði hún skólanum sínum að vinna deildina sem þau spiluðu í og var valin MVP mótsins. „Jada er sigurvegari og kemur með mikil gæði til Hauka og mun efla bæði sóknar- og varnarleikinn okkar. Við erum að fá leikmann sem skapar bæði fyrir sig og aðra og mun því hjálpa liðinu mikið,“ sagði Viktor Marinó Alexandersson, nýr aðalþjálfari Hauka. Þess má geta að í Haukum hittir hún fyrrum liðsfélaga sinn, Sigrúnu Björgu Ólafsdóttur sem lék með henni í Chattanooga-skólanum, sem hafði þetta að segja um Jada: „Jada er frábær liðsfélagi og hæfileikaríkur leikmaður, ég er mjög spennt að spila með henni aftur.“ View this post on Instagram A post shared by Haukar_karfa (@haukar_karfa)
Bónus-deild kvenna Haukar Mest lesið Kona fótboltamanns fórnaði lífi sínu til að bjarga eins árs dóttur þeirra Fótbolti Albert um KA: „Eins og þú hafir verið fullur í Football Manager“ Íslenski boltinn Hollendingar klikkuðu á þremur vítum og eru á leið heim af HM Fótbolti Hótað lífláti og öryggisgæslan stóraukin Fótbolti „Mér finnst það bara algjört bull“ Íslenski boltinn Íslensk dóttir á heimsleikunum í fyrsta sinn í þrjú ár Sport Eiginkona og tvö börn fótboltamanns létust Fótbolti Allir Paragvæar fá frí í dag til að fagna Fótbolti Undir rannsókn fyrir nauðgun á miðju heimsmeistaramóti Fótbolti Halldór Árna: Víkingar sáu hið fullkomna tímabil en þetta er fljótt að breytast Íslenski boltinn Fleiri fréttir Semja við leikmanninn sem var með 34 stig að meðaltali á móti þeim í fyrra Keflavík sækir liðsstyrk „Alltaf sami tómleiki þegar fjölskyldan er ekki þar“ Ný lið bætast við Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Kristinn fer til Spánar Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Martin fékk stóra rós í hnappagatið Okeke farinn frá Álftanesi Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Sjöfaldur NBA-meistari mætir til landsins í ágúst Dabbi kóngur tekur við kvennaliði Þórs Argentínskar landsliðskonur á Krókinn og önnur var valin í WNBA Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Martin þýskur meistari eftir lygilega endurkomu Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Sjá meira