Tímamót hjá Klettaskóla: „Allir mjög peppaðir“ Freyja Þórisdóttir skrifar 30. júní 2026 15:55 Arnheiður Helgadóttir segir það vera gleðiefni að frístundin Hekla, sem er fyrir nemendur á miðstigi eða í fimmta til sjöunda bekk, verði flutt í húsnæði sem er á skólalóðinni. Sem stendur er frístundin til húsa við Þorragötu í Reykjavík. Vísir/Vilhelm Skólastjóri Klettaskóla er spennt fyrir flutningum á hluta starfsemi skólans úr Hlíðunum í Reykjavík í Staðahverfi í Grafarvogi. Kærkomið verði að færa frístund nemenda á miðstigi nær skólanum og rýmka almennt um starfsemina sem hafi sprengt húsnæðið algjörlega utan af sér.
Klettaskóli er grunnskóli fyrir börn með miðlungs-, alvarlega- og djúpa þroskahömlun með eða án viðbótarfatlana. Tilkynnt var um flutning á hluta starfseminnar í apríl og segir Arnheiður Helgadóttir skólastjóri flutningana á áætlun að því er best hún viti. Útlit sé fyrir að skólastarf hefjist í nýuppgerða húsnæðinu í ágúst. Arnheiður segir starfsfólk, nemendur og foreldra hafa tekið vel í flutningana enda verði þeir til þess að aðstæður fyrir nemendurna verði miklu betri. Fjörutíu börn muni hefja skólaárið í nýuppgerða húsnæðinu. „Í haust verður þetta áttundi til tíundi bekkur sem að flyst þarna upp eftir,“ segir hún í samtali við blaðamann en í apríl þessa árs var tilkynnt um að Borgarráð Reykjavíkur hefði samþykkt að opna nýja starfseiningu Klettaskóla í fyrrum Korpuskóla frá og með haustinu 2026. Sjöundi bekkur verði svo fluttur upp eftir og verði frá og með haustinu 2027 í Korpuskóla. Ákvörðunin var tekin í kjölfar mikils plássleysis í Klettaskóla en í tilkynningunni kom fram að síðasta skólaár hafi hundrað fjörutíu og einn nemandi verið skráður í Klettaskóla, þrátt fyrir að húsnæði skólans hafi upphaflega verið hannað fyrir áttatíu til níutíu nemendur. Ljóst sé að nemendafjöldi hafi vaxið hratt og fyrir haustið 2026 hafi legið fyrir umsóknir frá fjörutíu og einum nýjum nemanda. Mjög peppuð fyrir flutningunum Í haghóp sem skilaði áliti árið 2023, og ákvörðun um flutninga var tekin út frá, sátu fulltrúar starfsfólks Klettaskóla, foreldrafélags, skólaráðs, Þroskahjálpar, Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og foreldra nemenda. „Ég hef ekki heyrt neitt annað en að allir séu mjög sáttir við þetta. Þannig að hvort sem það eru nemendur, foreldrar eða bara starfsfólk þannig að við erum mjög peppuð fyrir þessu öllu saman,“ segir Arnheiður Helgadóttir skólastjóri Klettaskóla. Korpuskóli hefur ítrekað verið nýttur fyrir nemendur annarra skóla sem geta ekki dvalið í skólabyggingunni vegna ýmissa ástæðna. Skólahaldi var hætt í Kelduskóla árið 2020 en hann var áður sá fámennasti í Reykjavík.Sýn/Sigurjón Hún greinir einnig frá því að búið sé að ráða Elínu Arndísi Gunnarsdóttur, sem er sett til árs, sem skólastjóri Korpuskóla en hún var áður aðstoðarskólastjóri Klettaskóla og að það sé jafnframt búið að ráða aðstoðarskólastjóra Korpuskóla. Annars þurfi ekki að ráða marga nýja inn vegna þess að hluti af starfsfólkinu fari upp eftir. „Þetta er kannski smá leið fyrir suma, það eru allir bara til í það og ég meina það er úr leið fyrir einhverja á sama tíma og það styttist verulega leiðin fyrir aðra,“ segir hún. Þurfi ekki lengur að fara svona langt á milli Það sé einna jákvæðast við flutningana að Hekla, frístund fyrir miðstig, færist í það húsnæði sem Askja, frístund fyrir elsta stig, hefur verið í en sú starfsemi færist yfir í Korpuskóla. Þannig þurfi ekkert barn að fara langa leið eftir skóla til þess að fara í frístund. „Við fáum til okkar krakkana sem hafa þurft að vera í húsnæði alla leið yfir á Þorragötu hérna síðastliðin ár eftir skóla. Þau eru að koma í hús til okkar,“ segir Arnheiður. Hún bætir við að sér þyki líklegt að mikill þroski muni hljótast af breytingunni og að þetta sé „hollt og gott fyrir þau og virkilega þroskandi að vera ákveðinn tíma í Klettaskóla og flytja svo yfir í annan skóla þegar þú ert orðinn unglingur“. Aðspurð hvort hún telji flutningana erfiða fyrir nemendur segist hún vongóð um að þeir gangi vel. „Það getur alveg tekið smá tíma að koma sér fyrir en með miklum stuðningi þá er ég sannfærð um að það verður ekki vandamál til lengri tíma,“ segir Arnheiður.
Börn og uppeldi Skóla- og menntamál Grunnskólar Reykjavík Mest lesið Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Innlent „Mistök að fela honum forystu“ Innlent Hafði ekkert með átök sundþjálfaranna að gera Innlent Fleiri fréttir Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsisvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Hafði ekkert með átök sundþjálfaranna að gera Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku „Það er skilgreiningin á því að pissa í skóinn sinn“ Sorpa skoðar að fara í mál við grenndargámasóða „Mistök að fela honum forystu“ „Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Uppselt á opnunarmyndina í tveimur sölum Mundaði hníf og skotinn með rafbyssu í Hagkaup á Eiðistorgi Lögregluembættum fækkað verulega Tjón á tveimur bílum þegar tré fauk Mikill vatnsstrókur í Miðfirði Sex skriðuviðvaranir í gildi Sjá meira