Thule lækkar í prósentu Agnar Már Másson skrifar 1. júlí 2026 10:59 Fyrir og eftir. Thule verður núna léttur bjór. Samsett Mynd Bjórinn Thule mun lækka í prósentu. Hann hættir að vera 5 prósenta bjór og verður frekar 4,4 prósenta „lite“ bjór. Hann mun samt áfram heita Thule. Coca Cola á Íslandi segist gera þetta til að mæta breyttum áherslum neytenda sem leiti í auknum mæli að léttari bjór.
Nýr Thule verður fáanlegur á næstu dögum og vikum á börum, veitingastöðum, í netverslunum og í Vínbúðinni, að sögn félagsins. Frá þessu er greint í tilkynningu frá Coca Cola á Íslandi, sem bruggar bjórinn, en þar er þessi nýja „staðfærsla“ sögð byggja á skilaboðunum: „Thule er alltaf léttur. Alltaf Lite.“ Þetta þýðir að fimm prósenta Thule-bjórinn, sem bruggaður hefur verið á Akureyri í sextíu ár, verður ekki lengur framleiddur sem slíkur, heldur verður aðeins hægt að fá hann sem léttan bjór en hann mun þó áfram heita Thule. „Við vildum gera Thule meira Thule,“ er haft eftir Atla Sigurði Kristjánssyni, framkvæmdastjóra markaðssviðs Coca-Cola á Íslandi, í fréttatilkynningu. „Nú erum við að skerpa á því og færa vöruna nær því sem neytendur eru að leita að í dag.“ Í tilkynningunni segir að Thule verði glútenfrír, með minna af kolvetnum og færri kaloríum „en gengur og gerist“, og það án þess að fórna bragði eða upplifun. Brugghúsið segist gera þetta til að mæta breyttum áherslum neytenda sem leiti í auknum mæli að léttari valkostum. Þá hyggst Coca Cola ráðast í auglýsingaherferð vegna breytinganna en Hugleikur Dagsson grínisti skrifar handritin í þeirri herferð, samkvæmt tilkynningunni.
Áfengi Neytendur Mest lesið Thule lækkar í prósentu Neytendur Mango opnar í Kringlunni Viðskipti innlent Má gefa börnunum sínum peninga? Viðskipti innlent Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar Viðskipti innlent Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Viðskipti innlent Á bak við stórar framkvæmdir eru stórar vélar Samstarf Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Viðskipti innlent Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Viðskipti innlent Enn ríður Indó á vaðið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Thule lækkar í prósentu Gert að afhenda kúnnanum nýjan eyrnahreinsi með myndavél Lækkandi markaðsverð hafi ekki skilað sér í lítranum Súkkulaði hækkað um tæpan þriðjung á tveimur árum Einungis sjö bílar kallaðir inn Kaupmáttur heldur áfram að aukast Taka ekki upp gjaldskyldu við Kringluna Taka upp gjaldskyldu við Smáralind Að fólk skilji garðhúsgagnabúslóðirnar eftir heima Spá örlítilli hjöðnun verðbólgu Íslendingar borgi 55 prósent meira fyrir matvöru Innkalla vegna aðskotahlutar Svona kemur þú í veg fyrir tvær kröfur vegna kílómetragjalds Ölgerðin hækkar verðin Segir sjaldan hafa verið auðveldara að vera fyrsti kaupandi Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Innkalla pipar vegna eiturs Sjá meira