Vasaþjófar sem herja á ferðamenn engir amatörar Áróra L Davíðsdóttir skrifar 2. júlí 2026 12:55 Á Gullfossi, Geysi, Seljalandsfossi og Þingvöllum eru útköll lögreglu vegna vasaþjófnaðar nú hversdagslegt verkefni. Vísir/Vilhelm Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir tilkynningum um vasaþjófnað hafa fjölgað síðastliðna daga og vikur og segir þjófnaðinn vera „þaulskipulögð brotastarfsemi“ brotahópa sem koma til landsins. Lögreglan á Suðurlandi hefur gripið til aukinna aðgerða vegna viðvarandi vasaþjófa á helstu ferðamannastöðum. Meðal annars sinni ómerktir lögreglumenn eftirliti.
Ásmundur Rúnar Gylfason, stöðvarstjóri lögreglustöðvar eitt sem sinnir meðal annars verkefnum í miðborginni, segir fleiri tilkynningar hafa borist síðastliðna daga og vikur en tilkynningar um slík mál komi í bylgjum. Brotahópar komi til landsins í þeim tilgangi að ræna úr vösum ferðamanna sem séu uppteknir við að virða fyrir sér kennileiti landsins. Þjófar herji á vinsæla ferðamannastaði, þar sem fólk stendur þétt saman og í þröngum rýmum verslana. Stundum bjóðist þjófar til þess að taka myndir af hópum og þá sé laumast í vasa ferðamanna á meðan þeir stilli sér upp. „Þetta er bara það klassíska sem við öll þekkjum,“ segir hann. „Þaulskipulögð brotastarfsemi“ Brotahópar komi til landsins í þeim tilgangi að stunda vasaþjófnað og dvelji hérlendis í einhvern tíma. Stundum nái lögreglan að standa í hárinu á þeim og þeim sé þá brottvísað úr landi. Hann segir ekki endilega um sömu einstaklingana að ræða sem komi hér til lands í þeim tilgangi að stunda vasaþjófnað en að þeir tilheyri yfirleitt skipulagðri brotastarfsemi og að hóparnir séu oft tengdir hver öðrum. Skjáskot af meintum vasaþjófi við Gullfoss fara ofan í bakpoka ferðamanns og hafa af honum mikið fé. Erlendir ferðamenn verði helst fyrir barðinu á þjófunum en tilkynningar komi yfirleitt frá vinsælum ferðamannastöðum í miðbæ Reykjavíkur, á Skólavörðuholti við Hallgrímskirkju, Skólavörðustíg og á Laugavegi. Símum, veskjum og greiðslukortum sé oftast stolið en einnig vegabréfum fólks. Í fyrra var komið upp svokölluðum varðturnum á ýmsa staði í miðborginni, sem vöktu mismikla lukku meðal íbúa, en þeir voru teknir niður skömmu síðar. Ásmundur segir þá alltaf hafa átt að vera tímabundna ráðstöfun en að þeir hafi sannarlega skilað árangri „því að þeir höfðu ákveðin svona fælingaráhrif.“ Vasaþjófarnir engir amatörar Svipaða sögu er að segja frá Suðurlandi en Einar Sigurjónsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi, segir vasaþjófa hafa verið viðvarandi á helstu ferðamannastöðum í einhvern tíma. Á Gullfossi, Geysi, Seljalandsfossi og Þingvöllum séu útköll lögreglu vegna vasaþjófnaðar nú hversdagslegt verkefni. Hann tekur undir að slík mál komi í bylgjum og nú standi yfir bylgja sem hafi varað í nokkrar vikur. Bjarki Oddsson, lögreglufulltrúi á Suðurlandi, segir Lögregluna á Suðurlandi þegar hafa komð á fót átaki og lagt aukinn þunga í eftirlit og rannsóknir á vasaþjófnaði. Hann segir aukinn lögregluviðbúnað verða á helstu ferðamannastöðum á næstunni. Bæði verði merktir og ómerktir lögreglumenn að sinna eftirliti. Lögreglan sé að kortleggja hvaða aðgerðir skili mestum árangri. Bjarki segir eftirlitið og rannsóknina á vasaþjófnaði vera mjög flókna. „Þetta er náttúrulega bara skipulögð brotastarfsemi, þeir vita nákvæmlega hvað þeir eru að gera og vita hvernig þeir eiga að bera sig að. Aðferðin er flókin og erfið að eiga við. Þetta eru sko engir amatörar,“ segir hann.
Lögreglumál Árneshreppur Reykjavík Ferðaþjónusta Þingvellir Geysir Gullfoss Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Innlent Fleiri fréttir Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Sjá meira