Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar 3. júlí 2026 17:17 Arnar Sigurðsson sem titlar sig sem einn eigenda «áfengisverslunarinnar Sante» skrifar grein á vísi.is hinn fyrsta dag júlímánaðar; Reikningsdæmi handa Ögmundi. Það sem Arnar vill að ég geri er að reikna út hvort ég geti ekki fallist á að rétt sé sú niðurstaða hans að ríkið tapi umtalsverðum fjármunum á því að annast smásöluverslun með áfengi fyrir tilstilli ÁTVR. Staðreyndin sé sú að tóbakssalan niðurgreiði áfengissöluna sem sé rekin með tapi. ÁTVR sé óþarfur milliliður og hagnaður ríkisins liggi ekki í smásölu áfengis heldur í áfengisgjaldinu. Það gjald kæmi til með að renna til ríkisins eftir sem áður þótt ÁTVR yrði lögð niður. Arnar segir víst vera að þegar áfengisdreifingin væri alfarið komin í sínar hendur og sinna líka, yrði úrvalið meira og verðlagið lægra. Augljóst er að þetta byggir á meira en lítilli óskhyggju og fyrir bragðið líkindareikningi sem engan veginn fær staðist. Samanburður á reikningsskilum áfengis og tóbaks hjá ÁTVR hefur stundum áður komið til tals og minnist ég þess að hafa grennslast fyrir um hið sanna í þessi efni og sannfærðist þá um að þessi staðhæfing stæðist ekki hvað þá heldur að ríkissjóður hagnaðist eingöngu á áfengisgjaldinu. Ekki þarf annað en að fletta upp í fjárlögum til þess að komast að raun um að árlega skilar ÁTVR rekstrarhagnaði í ríkissjóð og nam hann 750 milljónum á síðasta ári. Þessar hagnaðargreiðslur voru hærri áður en verslunin fór að dragast saman hjá ÁTVR og hagnaðurinn þar með að renna í vasa ólöglegra keppinauta. Arnar upplýsti opinberlega á miðju ári 2024 að stefndi í tveggja milljarða veltu á því ári en ljóst er að hún hefur stóraukist síðan þá. Ég get ekki sagt að það komi mér á óvart að til séu þeir sem vilji komast yfir slíkar fúlgur þótt ekki sé það siðlegt. Mjög ósennilega tel ég vera þá ágiskun Arnars að með niðurlagningu ÁTVR yrði verðlag lægra og úrval meira. Hér gæti verið gagnlegt að horfa til þeirrar þróunar sem einkennir verslunarrekstur almennt. Kaupmaðurinn á horninu/Santebúðin víkur fyrir stórmörkuðunum, stærri einingar færast síðan á færri hendur, til verður fákeppni og oftar en ekki einokun. Við slíkar aðstæður og vel að merkja þar sem gróði er eina markmiðið, er hætt við því að sett verði í hillurnar sú vara sem best selst og gefur sem mestan hagnað. Það er ekki ávísun á mikið úrval. Litla búðin á horninu neyðist til að hafa verð hærra en í stórum keðjum. Þetta þekkja Íslendingar erlendis frá hvort sem er á Spáni, Danmörku eða annars staðar. Og er þá komið að kjarnanum í boðskap Arnars Sigurðssonar. Í fjölmiðlum hefur hann lýst því yfir að á fámennum sölusvæðum geti orðið erfitt að hafa hagnað af sölu áfengis. Þó væri hann vongóður um að slíkt megi takast með því að auka áfengissöluna, eða með hans eigin orðum þegar Sante opnaði verslun á Fáskrúðsfirði: „Við erum að veðja á að geta aukið veltuna“. (Morgunblaðið 27.06.269. Ástæða þess að ég vil standa vörð um ÁTVR er ekki sú að ég hafi vantrú á Arnari og félögum hans. Hún byggir á hinu gagnstæða. Ég tel einmitt að þeir verði harðdrægari og fyrir vikið duglegri að koma áfengi ofan í þjóðina en núverandi kerfi býður upp á. Ég vil taka það fram að stundum hef ég – ekki síst á árum áður – fundið að því við ÁTVR þegar mér hefur þótt einkasalan of áköf að koma vörum sínum á framfæri. Slíkum aðfinnslum var ævinlega tekið vel. Gagnvart Arnari og félögum verður hins vegar engu tauti við komið. Það kennir reynslan, meðal annars margítrekuð brot þeirra á auglýsingabanni. Þarna er ekki aðeins við eigendur nýju ólöglegu áfengisverslananna að sakast heldur einnig marga framleiðendur og heildsala að ógleymdum fjölmiðlunum sem selja æru sína með þessum hætti. Það er því varla mjög sannfærandi þegar sömu aðilar og brjóta lögin og hundsa það brotakennda eftirlit sem þó er til, stíga nú fram og vilja telja okkur trú um markaðurinn muni starfa í samræmi við lög og reglur og virða eftirlit í hvívetna!Í framhaldi af þessu er vert að íhuga að með tilkomu netverslana hefur aðgengi unglinga að áfengi stóraukist með tilheyrandi óæskilegum afleiðingum. Þarna treysti ég lögbrjótunum engan veginn. Hitt má Arnar Sigurðsson vita að ég hef trú á því að hann sé einlægur í þeim ásetningi sínum að auka neyslu á áfengi í landinu. Í því hlutverki hef ég mikla trú á honum. Höfundur er fyrrverandi ráðherra og alþingismaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ögmundur Jónasson Tengdar fréttir Reikningsdæmi handa Ögmundi Ögmundur Jónasson skrifar betur en flestir sem eru honum sammála og margir sem eru það ekki. Nýjasta grein hans um ÁTVR og Íslandspóst er engin undantekning: hún er vel byggð, einlæg og röng. Ekki röng í smáatriðum. Röng í bókhaldinu. 1. júlí 2026 23:32 Mest lesið Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal Skoðun Sjáum hvað landsbyggðunum býðst Sæunn Gísladóttir Skoðun Kostnaður og ávinningur af ESB-aðild – um 15-faldur miðað við brúttóframlag og 30-faldur miðað við nettóframlag Baldur Pétursson Skoðun Við viljum ekki ganga í ESB Jón Ívar Einarsson Skoðun Leiftursókn gegn lýðheilsu Árni Guðmundsson Skoðun Er Ísland í alvöru svo miklu ríkara en umheimurinn? Egill Almar Ágústsson Skoðun Rauða rútan er mætt! Varist rauðu rútuna Þórður Snær Júlíusson Skoðun Hver er munurinn fyrir vinstrið á EES og ESB? Jökull Sólberg Auðunsson Skoðun Er EES biðstofa eða endastöð? Skoðun Að vinna rökræður án röksemda, Þekkir þú Gish gallop tæknina? Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Skoðun Skoðun Sjáum hvað landsbyggðunum býðst Sæunn Gísladóttir skrifar Skoðun Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal skrifar Skoðun Leiftursókn gegn lýðheilsu Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Er Ísland í alvöru svo miklu ríkara en umheimurinn? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Hvers vegna ég segi nei 29. ágúst Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þjóðin er alltaf klofin Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Auðlindirnar eru okkar, hvort sem við erum í EES eða ESB Lárus M. K. Ólafsson skrifar Skoðun Bændur á bremsunni Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar Skoðun Vilt þú að Ísland ábyrgist 250 ma.kr. af skuldum ESB? Eiríkur S. Svavarsson skrifar Skoðun Hver er munurinn fyrir vinstrið á EES og ESB? Jökull Sólberg Auðunsson skrifar Skoðun Við viljum ekki ganga í ESB Jón Ívar Einarsson skrifar Skoðun Málþing bændasamtakanna frá sjónarhóli bónda Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Rauða rútan er mætt! Varist rauðu rútuna Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Er EES biðstofa eða endastöð? skrifar Skoðun Að vinna rökræður án röksemda, Þekkir þú Gish gallop tæknina? Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Þegar kennivald kemur í stað raka Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisbaráttan hættir aldrei Anton Kristinn Guðmundsson skrifar Skoðun Kostnaður og ávinningur af ESB-aðild – um 15-faldur miðað við brúttóframlag og 30-faldur miðað við nettóframlag Baldur Pétursson skrifar Skoðun „Ég er bara að vera hreinskilinn“ Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Lífsgæði og samheldni íslenskrar þjóðar Bjarni Herrera skrifar Skoðun Loddaralist í aðdraganda 29. ágúst Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Norðmenn eru farnir að horfa á okkur Baldur Johnsen skrifar Skoðun Dánaraðstoð án laga, en ekki án veruleika Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Meira en bara reglur og byrðar Jóna Þórey Pétursdóttir skrifar Skoðun Þegar fyrrverandi forseti stjórnlagadómstóls stærsta hagkerfis Evrópu varar við því að ríkið sé komið að vendipunkti er ástæða til að hlusta Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Eftir almyrkvann – þakklæti og stolt Gerður B. Sveinsdóttir skrifar Skoðun Erum við að fóðra glæpaheiminn og bótakerfin? Davíð Bergmann skrifar Skoðun „Voðalega er hún Anna orðin erfið“ Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Um skuldir – og þakkarskuldir Jón Baldvin Hannibalsson skrifar Skoðun Hver á hugmyndina um tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar Sjá meira
Reikningsdæmi handa Ögmundi Ögmundur Jónasson skrifar betur en flestir sem eru honum sammála og margir sem eru það ekki. Nýjasta grein hans um ÁTVR og Íslandspóst er engin undantekning: hún er vel byggð, einlæg og röng. Ekki röng í smáatriðum. Röng í bókhaldinu. 1. júlí 2026 23:32
Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal Skoðun
Kostnaður og ávinningur af ESB-aðild – um 15-faldur miðað við brúttóframlag og 30-faldur miðað við nettóframlag Baldur Pétursson Skoðun
Skoðun Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal skrifar
Skoðun Kostnaður og ávinningur af ESB-aðild – um 15-faldur miðað við brúttóframlag og 30-faldur miðað við nettóframlag Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Þegar fyrrverandi forseti stjórnlagadómstóls stærsta hagkerfis Evrópu varar við því að ríkið sé komið að vendipunkti er ástæða til að hlusta Erna Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Hver á hugmyndina um tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar
Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal Skoðun
Kostnaður og ávinningur af ESB-aðild – um 15-faldur miðað við brúttóframlag og 30-faldur miðað við nettóframlag Baldur Pétursson Skoðun