Úr öskunni í eldinn Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar 20. október 2026 10:02 Árið er 2010, Íslendingar nýbúnir að ganga í gegnum efnahagskreppu, goslok í Eyjafjallajökli nýafstaðin og margir sem muna betri tíð. Sprettan var hins vegar góð það árið fyrir bændur, ótrúlegt en satt, og þegar uppi var staðið blessaðist þetta svo sem allt saman. Hugsunarháttur landans var enda heldur klassískur, þetta reddast, eftir goslok, sem og það gerði. Eyjafjallajökull vakti heimsathygli þegar öskufall úr gosinu stoppaði flugumferð í Evrópu og auðvitað í ljósi þess hve torvelt nafn jökulsins reyndist í framburði útlendinga. Evrópubúar og aðrir gátu skemmt sér konunglega yfir kostulegum hrakförum fréttamanna og viðmælanda þeirra, en á meðan gosinu stóð voru erlendir fréttamenn alls staðar að úr heiminum staddir hér á landi til þess að flytja fréttir af þessum merka atburði. Íslendingar uppskáru vel í formi ókeypis landkynningar ef svo má að orði komast. Upprisan úr öskunni Úr öskunni varð verkefnið „Inspired by Iceland“ til, verkefni sem gekk út á það að snúa vörn í sókn. Í kjölfar alls þessa og hagfelldra skilyrða tók ferðaþjónustan stakkaskiptum og úr varð ein af meginstoðum efnahags okkar Íslendinga, okkar stærsta útflutningsgrein. Ferðamenn flykktust til Íslands í stórum stíl, og gera enn, til þess að skoða þetta fallega land okkar. Árið 2025 sóttu tæplega 2,3 milljónir ferðamanna Ísland heim og ferðaþjónustan stóð fyrir um 9% af verðmætasköpun landsins. Frá árinu 2010 höfum við Íslendingar verið einstaklega útsjónarsöm, okkur tókst fyrst og fremst með einstaklingsframtakinu og seiglu að byggja upp ferðaþjónustuna hratt og vel. Við sköpuðum þennan jarðveg og höfum uppskorið samkvæmt því. Ferðaþjónustan hefur ekki aðeins skapað störf og skilað þjóðarbúinu umtalsverðum gjaldeyristekjum, hún hefur líka auðgað þá þjónustuflóru sem blasir við Íslendingum þegar þeir ferðast landið. Segja má að ferðaþjónusta sé einhver sú farsælasta byggðastefna sem sést hefur hér á landi. Þá hefur atvinnugreinin sömuleiðis aukið tekjur ríkissjóðs svo um munar enda leggur hún eins og aðrar mikið til samfélagsins í formi skattgreiðslna, allt frá tekjuskatti til fasteignaskatta. Árið 2024 var skattspor ferðaþjónustunnar tæplega 200 milljarðar króna skv. skýrslu sem Reykjavík Economics vann fyrir Samtök ferðaþjónustunnar. Um þriðja hver króna af sköpuðum gjaldeyristekjum ferðaþjónustunnar skilaði sér þannig til samfélagsins í formi skatta og gjalda, til ríkis og sveitarfélaga. Skattspor greinarinnar er augljóslega umfangsmikið. Til mikils að vinna Rétt eins og aðrar útflutningsgreinar er íslensk ferðaþjónusta í ötulli alþjóðlegri samkeppni og mikilvægt að gæta þess í hvívetna að greininni sé skapað rekstrarumhverfi sem gerir henni kappið kleift. Þar skiptir regluverk máli, skattalegt umhverfi og fleira. Meðal annars vegna þessa er í dag innheimtur 11% virðisaukaskattur af ferðaþjónustu hér á landi en ekki 24%. Er það í línu við það sem t.a.m. viðgengst á Norðurlöndunum en bæði Noregur og Svíþjóð leggja 12% virðisaukaskatt á ferðaþjónustu og Finnland 13,5%. Ríkisstjórnin hefur nú hins vegar sýnt á spilin hvað ferðaþjónustuna varðar með framlögðu fjárlagafrumvarpi og ætlar sér að ná 10 til 11 milljörðum aukalega í ríkissjóð á einu bretti á næsta ári út úr atvinnugreininni. Undir yfirskyni hallalausra fjárlaga. Flestum þykir þó orðið morgunljóst að fjárlögin verða ekki hallalaus þegar upp er staðið. Hverju sem því líður verður að gjalda varhug við þessum áforum, ekki vegna þess að stefnt er að hallalausum fjárlögum, þvert á móti, heldur vegna þeirra áhrifa sem aukin skattheimta getur haft í för með sér. Samkeppnishæfni greinarinnar er lögð að veði til þess að skila hallalausum fjárlögum. Ferðaþjónustan er ekki aðeins okkar stærsta útflutningsgrein, heldur einnig ein af okkar bestu byggðarstefnum. Fjöldi starfa í ferðaþjónustu hefur t.a.m. fjórfaldast á Suðurlandi og þrefaldast á Suðurnesjum frá 2008. Aukningin er minni í öðrum landshlutum en þó talsverð enda munar sannarlega um hvert nýtt starf. Það er ekkert launungarmál að skattar og aðrar opinberar álögur letja einkaframtakið og geta skapað óheppilega hvata, dregið úr fjárfestingu og verðmætasköpun. Þetta á við um allar atvinnugreinar. Illa ígrunduð gjaldtaka mun svo augljóslega hafa enn meira íþyngjandi afleiðingar. Áform ríkisstjórnarinnar nú munu ekki leiða til þess að ferðamenn dreifast jafnar um landið né yfir árið. Loforð um að þessir fjármunir komi til með að renna í innviðauppbyggingu á vinsælum ferðaþjónustustöðum, vegasamgöngur eða annað líklegt til vinsælda meðal almennings, eru á sandi byggð ef tekið er mið af afrekaskrá ríkisstjórnarinnar til þessa. Þetta mun einfaldlega hverfa í hítina og standa straum af kostnaðarsömum kosningaloforðum Flokks fólksins til þess að halda ríkisstjórninni saman. Atvinnuvegaráðherra hefur ekki gengið fram með góðu fordæmi yfir sínum málaflokkum. Af verkum af dæma má sjá að ráðherrann, Hanna Katrín Friðriksson, og ríkisstjórnin í heild, virðist hafa meiri áhuga á gjaldtöku og skattahækkunum en að tryggja blómlega atvinnu- og verðmætasköpun, sem á endanum skilar sér í sameiginlega sjóði og stendur undir velferð okkar allra. Árangurinn sem okkur Íslendingum og íslenskri ferðaþjónustu hefur tekist að ná frá árinu 2010, frá goslokum í Eyjafjallajökli, er aðdáunarverður og langt í frá sjálfsagður, honum má ekki kasta á glæ. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ingveldur Anna Sigurðardóttir Ferðaþjónusta Mest lesið Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Skoðun Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal skrifar Skoðun Veitingageiranum var hent undir vagninn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar Skoðun Úr öskunni í eldinn Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Heimilin eiga ekki alltaf að borga brúsann Alexander M. Árnason skrifar Skoðun Fleiri krónur taldar – fáar nýjar Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og fisks Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Orkan í ólgusjó efnahagsmála Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Loksins get ég notið þess að vera heima Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Sama fötlun en ólík réttindi - Aldurinn ræður úrslitum - Ásta Ólafsdóttir skrifar Skoðun Umskiptingar Flokks fólksins á Alþingi Júlíus Valsson skrifar Skoðun Okkar fé í Heimum Bergur Hauksson skrifar Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir skrifar Skoðun Er alveg sama hvað Ísland er dýrt? Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Krossinn er ekki matseðill Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Við mælum hávaða en mælum við óskýrleikann? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Hvað gerist í síðari hálfleik? Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson skrifar Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson skrifar Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Arfurinn og réttur ríkisins til skattheimtu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Undir sömu stjörnu – ópera fyrir alla þjóðina Sævar Þór Halldórsson skrifar Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Ísland á ekki að verða land gjaldhliða Þórir Garðarsson skrifar Sjá meira
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar
Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun