„Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 4. júlí 2026 15:44 Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. vísir/arnar/vilhelm „Það er auðvitað óheppilegt og það mátti lágmarka skaða og hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta þeirra sem eru að starfa á skipum Hvals ef Matvælastofnun hefði nú kannski farið eftir því sem kalla má vandaða stjórnsýsluhætti.“
Þetta segir Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS), innt eftir viðbrögðum við fréttum gærdagsins um að Matvælastofnun hafi deilt upplýsingum sem innihéldu staðsetningu og hnit veiðilendna hvalveiðibáta Hvals hf. Greint var frá því í gær að MAST hafi deilt eftirlitsskýrslu sinni varðandi hvalveiðar með þeim sem óskuðu eftir henni eins og þeim er skylt að gera á grundvelli upplýsingalaga. Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf., sendi erindi á Hrönn Ólínu Jörundardóttur, forstjóra Matvælastofnunar, í gær þar sem hann fordæmdi umrædd vinnubrögð og gagnrýndi það harðlega að ekki hafi verið haft samband við fyrirtækið áður en upplýsingunum var deilt. Hann sagðist hafa rökstuddan grun fyrir því að áhafnarmeðlimir Paul Watson-samtakanna um borð í Bandero hafi komist á snoðir um veiðisvæði Hvals vegna hnita sem voru í skýrslunni. Hvalur hafi því neyðst til að leita á önnur hafsvæði sem séu ekki jafn gjöful. Kristján hefði heldur viljað að umræddar upplýsingar hefðu verið afmáðar í skýrslunni. Matvælastofnun brást umsvifalaust við í gær og breytti verklagi. Hér með mun staðsetning hvalveiðibáta við veiðar ekki vera gefin upp í skýrslum. Kristján segir starfsmönnum sínum stefnt í hættu með upplýsingagjöfinni. „Auðvitað hefði átt að fylgja leiðbeiningum sem Hæstiréttur hefur gefið stofnuninni um að þeim beri að bera það undir fyrirtæki ef það stendur til að afhenda viðkvæm gögn. Og gefa þá fyrirtækjum kost á því að afmá upplýsingar sem eru viðkvæmar áður en þessar upplýsingar eru afhentar. Þannig að það hefði auðvitað að einhverju leyti mátt koma í veg fyrir skaða með því að huga betur að stjórnsýslunni, alla vega á þessu stigi,“ segir Heiðrún Lind og vísar til dóms í Brúneggjamálinu svokallaða. Fyrir Hæstarétti var fallist á að Mast hafi verið skylt að afhenda gögn í Brúneggjamálinu en þó er tekið fram að það hefði verið góð stjórnsýsluframkvæmd að óska eftir áliti Brúneggja á þeim tíma áður en gögnin voru afhent. Það hefði hins vegar ekki breytt neinu um skyldu stofnunarinnar til að veita gögnin. Heiðrún segir í ljósi þessa að Matvælastofnun hefði átt að vita betur. Málið sé að sumu leyti klúðurslegt. „Matvælastofnun af öllum stofnunum hefði auðvitað átt að vita betur hafandi farið í gegnum þetta svokallaða brúneggjamál, þar sem að leiðbeining Hæstaréttar er mjög skýr um þetta að það beri að veita aðilum færi á að kynna sér eða afmá upplýsingar sem eru viðkvæmar áður en að gögn eru afhent þriðja aðila.“ Bandero er enn statt innan íslenskrar lögsögu en Rod Corenado, leiðangursstjóri Bandero, staðfesti í samtali við fréttastofu í gær að skipið væri nú 40 sjómílum frá Íslandsströndum á því svæði þar sem fimm af síðustu tíu hvölum hafa verið veiddir. Samtökin hafa ítrekað hótað að binda enda á hvalveiðar með einum eða öðrum hætti. Heiðrún segist líta málið alvarlegum augum. „Það er auðvitað mikið áhyggjuefni ef fólk getur ekki stundað lögmæta starfsemi þegar ógn stafar að þeirri starfsemi vegna fólks er að mótmæla en ætlar sér að gera það með ólögmætum og jafnvel skaðlegum hætti. Það er auðvitað bara mjög mikið áhyggjuefni,“ segir hún og tekur fram að hún jafnt og sjómenn beri mikið traust til Landhelgisgæslunnar. „Maður leyfir sér að vona að það verði ekki látið til skarar skríða af þeirra hálfu að fara í lögbrot, að þetta séu nú fyrst og fremst hótanir. Þær eru nú kannski ekki síður alvarlegar, því að það getur stafað alveg jafnmikil ógn af hótunum eins og að láta verða af hótunum. Þannig að við verðum bara að bíða og sjá hvað verður.“
Hvalveiðar Hótanir Paul Watson vegna hvalveiða Íslendinga Mest lesið Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Innlent „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Innlent Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Erlent Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Innlent Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Innlent Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Innlent Lýsa eftir þekktum öfgamanni Erlent Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Innlent Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí Erlent Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Innlent Fleiri fréttir Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Strandaglópar á Spáni og vont veður á Brennslunni Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Evrópumálin, sala áfengis og kjarasamningar á Sprengisandi Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Sjá meira