Melabúðin fagnar sjötíu árum Sigurgeir Þorkelsson skrifar 4. júlí 2026 17:21 Brotið var blað í íslenskri verslunarsögu þegar Melabúðin opnaði fyrst dyrnar árið 1956. Innsent „Ég svara bara: Til hamingju með afmælið sömuleiðis,“ segir Dýrleif Birna Sveinsdóttir, verslunarstjóri Melabúðarinnar, sem staðið hefur í ströngu í dag meðan haldið var upp á sjötíu ára afmæli búðarinnar. Boðið var upp á vöfflukaffi fyrir gesti og gangandi í tilefni dagsins.
Melabúðin hefur fyrir löngu síðan unnið sér inn sess sem einn af stólpum Vesturbæjar og Dýrleif segir að fyrir mörgum sé réttast að lýsa búðinni sem félagsheimili. Hún segir að fleiri hundruð manns hafi sótt búðina heim í dag, mögulega hátt í þúsund, og þar hafi bæði mátt sjá andlit fastakúnna auk gamalla Vesturbæinga sem hafi viljað kíkja á búðina í tilefni dagsins. Eftir sjötíu ára farsælt starf er Melabúðin orðin eins og menningarstofnun í Vesturbænum.Innsent „Ég er búin að reyna að spjalla við eins marga og ég mögulega get,“ segir Dýrleif sem hefur bæði séð gömul og ný andlit. Þekkt er hve mikilli tryggð viðskiptavinir halda við búðina en hið sama á einnig við um starfsfólkið. Dýrleif hefur starfað sem verslunarstjóri búðarinnar síðastliðin fimm ár og segist hafa reynt að slíta sig frá henni en það hafi aldrei tekist. Þá hafi aðrir starfsmenn haldið áfram sem helgarstarfsmenn eftir að hefja vinnu annars staðar og meira að segja er einn starfsmaður sem ferðast hálfsmánaðarlega frá Vestmannaeyjum til að missa ekki tengslin við sína kæru Melabúð og viðskiptavini hennar. Dýrleif Birna Sveinsdóttir er verslunarstjóri Melabúðina. Hún segir að sumt starfsfólk búðarinnar hafi unnið þar í fleiri áratugi. Innsent „Við erum öll svo stolt af Melabúðinni,“ segir Dýrleif. Þá hefur búðin lagt mikla áherslu á að ráða ungt fólk úr hverfinu í vinnu og hafa margir Vesturbæingar stigið sín fyrstu skref á vinnumarkaði innan búðarinnar. Melabúðin hefur alla tíð lagt áherslu á gott kjötborð. Innsent „Við viljum ekki breytast í eitthvað annað heldur halda í Melabúðina sem allir elska,“ segir Dýrleif, sem þykir vænt um að hugsa um að búðin sé hluti af hversdagsleika margra. Eins og fyrr segir er aðsóknin búin að vera góð í dag en auk afmælisins er búðin þessa dagana með villtan lax til sölu, fáséð lostæti á tímum laxeldis. Þá opnaði Vesturbæjarlaug í gær eftir að hafa verið lokuð vegna viðhalds sem eykur enn á aðsóknina en mörgum finnst gaman að líta við í búðinni eftir að hafa tekið sundsprett í lauginni. Dýrleif segir að í dag tali gárungar oft um hina heilögu þrenningu Vesturbæjarins: Vesturbæjarlaug, Melabúðina og Kaffi Vest. Nauðsynlegt þótti að útskýra skipulag verslunarinnar fyrir viðskiptavinum þegar hún opnaði fyrst.Innsent Melabúðin braut blað þegar hún var opnuð árið 1956 en hún var fyrsta verslunin á Íslandi þar sem fólk tíndi sjálft matvöru í innkaupakörfu. Fyrir það hafði fólk staðið við afgreiðsluborðið og sagt hvað það vildi kaupa á meðan afgreiðslufólk tók hlutina til. Gefinn var út sérstakur bæklingur þar sem viðskiptavinum var leiðbeint hvernig þeir skyldu bera sig að þegar búðin opnaði. Gott flæði er mikilvægt í rekstri verslana. Innsent Í dag er þó öldin sannarlega önnur og ekki þarf að útskýra fyrir landanum hvernig slíkar búðir virka.
Verslun Matvöruverslun Tímamót Reykjavík Mest lesið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Fleiri fréttir Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Sjá meira