Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Agnar Már Másson skrifar 4. júlí 2026 20:37 Einar Þorsteinsson formaður borgarráðs segir þetta í kommenti undir færslu Andrésar Jónssonar almannatengils. Samsett Mynd Formaður borgarráðs lýsir áhuga á að endurskoða áform um sparkvöll á Landakotstúni í Vesturbæ Reykjavíkur, sé það vilji íbúa í hverfinu. Áform um uppbyggingu vallarins voru samþykkt árið 2023. Hann var sjálfur formaður borgarráðs þegar tillagan var samþykkt.
Andrés Jónsson almannatengill stakk niður penna í hverfishóp Vesturbæinga á Facebook þar sem hann greindi frá óformlegri könnun sinni þar sem hann hafði skrásett hvernig Landakotstúnið hafi verið nýtt síðustu mánuði. Þar hafi það meðal annars verið nýtt undir lautarferðir, jóganámskeið, karate, garðveislur og boltaleiki, svo eitthvað sé nefnt. Andrés Jónsson almannatengill. Til hefur staðið að byggja fótboltavöll á túninu frá því að borgarráði samþykkti slík áform árið 2023 og hefur málið verið í ferli síðan þá. Þessi teikning Landmótunar frá 2021 sýndi hverig völlurinn kynni að líta út.Landmótun Í samtali við Vísi setur Andrés þann fyrirvara að hann sé ekkert endilega mótfallinn því að breytingar séu gerðar í hverfinu, en telur sparkvöllinn ekki bjóða upp á eins fjölbreytta nýtingu á blettinum. Grenndarkynningu er þegar lokið, að sögn Andrésar. „Ég hef engar áhyggjur af hávaða eða neinu slíku, en þetta er svo rosalega vel heppnaður staður og notaður af öllum kynslóðum og eiginlega öllum saman þarna. Þetta er eiginlega vanhugsað,“ segir Andrés við Vísi. Einar Þorsteinsson, formaður borgarráðs, ýjar að því í ummælum undir færslu Andrésar að endurskoða þurfi áformin. Börn að leik á Landakotstúni.Andrés Jónsson „Takk fyrir þetta innlegg. Kannski er rétt að staldra aðeins við þessi áform ef íbúar óska þess. Lagfæra bara núverandi fótboltavöll. Þetta er svæði fyrir ykkur,“ skrifar Einar, sem var einnig formaður borgarráðs þegar tillagan um völlinn var samþykkt. Í fjárhagsáætlun Reykjavíkur fyrir árið 2026 er gert ráð fyrir að sparkvöllurinn kosti um 70 milljónir króna. Teiknistofan Landmótun vann að hönnun og skipulagi á vellinum árið 2021. Tillaga um sparkvöll var fyrst lögð fram af Sjálfstæðismönnum í borgarstjórn 2018, en Sjálfstæðismenn eru nú í meirihlutasamstarfi með Framsókn og Viðreisn í höfuðborginni.
Borgarstjórn Fótbolti Reykjavík Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Erlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Innlent Fleiri fréttir Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Sjá meira