Fyrsti sigur Leclerc í tvö ár Andri Broddason skrifar 5. júlí 2026 16:03 Charles Leclerc sigraði breska kappaksturinn en þetta er fyrsti sigur hans í tvö ár. Formula 1 Charles Leclerc vann sína fyrstu keppni í tvö ár eftir dramatískan breska kappakstur í Formúlu 1. Mikil dramatík var í keppninni en bíll Kimi Antonelli bilaði undir lok kappakstursins ásamt því að þurfti að senda út öryggisbíl.
Kimi Antonelli, ökumaður Mercedes, byrjaði kappaksturinn fremstur en hann missti báða Ferrari ökumenn fram úr sér sem byrjuðu í öðru og þriðja sæti. Lewis Hamilton hjá Ferrari var hins vegar klaufi og hreyfði sig áður en hann mátti fara af stað og fékk fimm sekúndna refsingu. Þrátt fyrir slæma byrjun var Antonelli kominn í góða stöðu og náði að keyra lengi á hörðu dekkjunum sem hann byrjaði á. Eftir að Ferrari-bílarnir tóku þjónustuhlé var Antonelli orðinn fremstur. Þegar Antonelli tók sitt þjónustuhlé var eitthvað að bílnum hans en Mercedes vissi ekki hvað það var. Antonelli keyrði mjög hægt og tók tvö önnur þjónustuhlé þar sem liðið reyndi að komast að því hvað var bilað. Þeir fundu ekki út úr því og Antonelli datt óvænt úr forystunni úr stigasætum. Undir lok keppninnar var Charles Leclerc með forystuna og Lewis Hamilton annar og Max Verstappen þriðji. Dramatíkin var þó ekki búin því upp úr þurru missti Max Verstappen stjórn á Red Bull-bíl sínum og endaði fastur í mölinni. Öryggisbíllinn kom út en Ferrari-ökumennirnir sóttu sér ný dekk til þess að klára keppnina á þegar keppnin hæfist aftur. Leclerc náði að halda fyrsta sætinu en þjónustuhlé Lewis Hamilton var hægt og missti hann George Russell fram úr sér. Russell tók áhættu með því að setja ekki ný dekk undir bílinn en hann myndi vera mun hægari í endurræsingunni. Það tók hins vegar brautarstarfsmenn aðeins lengri tíma að fjarlægja bíl Max Verstappen en búist var við og náði keppnin ekki að fara af stað aftur. Kappaksturinn kláraðist fyrir aftan öryggisbíl og Leclerc gat rúntað rólega í mark. Þetta var fyrsti sigur Leclerc síðan í bandaríska kappakstrinum árið 2024. Liðsfélagi hans hjá Ferrari, Lewis Hamilton, má vera svekktur yfir því að hafa misst Russell fyrir framan sig eftir að hafa tekið ný dekk. George Russell náði því að minnka forskot Kimi Antonelli í heimsmeistarakeppni ökumanna niður í 25 stig og getur hann náð forystu heimsmeistaramótsins í næsta kappakstri. Hamilton er aðeins sjö stigum fyrir aftan Russell og því er toppslagur heimsmeistaramótsins mjög jafn. Charles Leclerc náði með sigrinum í dag að hoppa yfir Lando Norris í fjórða sæti heimsmeistaramótsins.
Mest lesið „Eyðileggur íþróttina“ Sport Fær hjartaáfall við að horfa á varnarleik KR Íslenski boltinn Dregur stuðning við Infantino til baka og krefst rannsóknar Fótbolti Freyr fagnaði eins og óður maður í leikslok Fótbolti Aflýsa síðustu keppninni og framtíð mótaraðarinnar í uppnámi Golf Jeff Bezos kaupir hlut í Liverpool Enski boltinn Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út Körfubolti „Dásamleg manneskja með risastórt hjarta“ Fótbolti Sjáðu geggjað mark Gylfa í sigri Víkings Íslenski boltinn Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Körfubolti Fleiri fréttir Rússar og Belarússar fá að keppa aftur Nýliðarnir skipta um liðsstjóra Ætlar að blanda sér í baráttuna við Ferrari og Mercedes Fór á skeljarnar í sumarfríinu Ökumaður Formúlu 1 vann sér keppnisrétt á heimsmeistaramóti á miðju tímabili Formúla 1 leitar til Evrópu ef stríðsátökin halda áfram Hamilton kvartar undan ákvörðunum Ferrari: „Þetta var frekar slæmt“ Ungverski kappaksturinn myndaður af forseta Norris kom sér aftur á sigurbraut Endurkoma Formúlu 1 til Malasíu staðfest vegna stríðsátaka Byrjar á ráspól eftir ótrúlegan lokahring Hefur fundið lausn á vandamálinu í Belgíu Keyrir gamla bíla til að viðhalda ást sinni á Formúlu 1 Antonelli aftur á sigurbraut eftir harða keppni Sjáðu árekstur Hamilton og Russell á fyrsta hring Hamilton klessti og Ferrari í kapphlaupi við tímann Verstappen breytir bílnum eftir tvo árekstra Fyrsti sigur Leclerc í tvö ár Ökumenn léku sér með Lego fyrir breska kappaksturinn Ætla að vinna saman til að reyna að skáka Antonelli Antonelli á ráspól en liðsfélagi hans fór í vegginn Antonelli skákaði Hamilton í sprettkeppninni Heldur áfram að vera hraðastur í Bretlandi Ökumenn hræddir um að verða batteríslausir á miðjum hring Sjá meira