Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 8. júlí 2026 18:38 Rúv efstaleiti RÚV ríkisútvarpið Vísir/Vilhelm Siðanefnd Blaðamannafélags Íslands telur Ríkisútvarpið ekki hafa brotið gegn siðareglum blaðamanna. Páll Steingrímsson kærði umfjöllun fjölmiðilsins frá því í apríl.
Páll Steingrímsson kærði umfjöllun Ríkisútvarpsins með fyrirsögninni „Blaðamaður segir Pál og Pál hafa varað sig við því að fjalla um íslenskan sjávarútveg“ sem birt var á vefsíðu Rúv í apríl 2026. Páll taldi að með umfjölluninni hefði verið brotið gegn 2., 3. og 6. grein siðareglna blaðamanna. Fréttin er um grein danska fjölmiðilsins Berlingske þar sem Eire Frerk Olsen, blaðamaður Berlingske, ræddi við nítján heimildarmenn um íslenskan sjávarútveg, kvótakerfið og Samherjamálið. Þar er haft eftir Helga Seljan, blaðamanni Rúv, að Páll Steingrímsson hafi sent sér og öðrum blaðamönnum óbeinar hótanir. Fyrst um sinn stóð að Páll hefði átt í hótunum í tengslum við umfjöllun hans um Samherja. Rangt að hann hefði hótað Í rökum Páls segir hann að í fréttinni sé því haldið fram að hann hafi hótað Helga Seljan og öðrum blaðamönnum þrisvar sinnum en í rauninni sé það alrangt. „Slík fullyrðing felur í sér alvarlega ásökun sem geti haft áhrif á mannorð viðkomandi og gefið lesendum til kynna að viðkomandi hafi gerst sekur um refsiverða, eða í það minnsta mjög ámælisverða háttsemi,“ segir Páll í rökunum sínum. Einnig segir hann blaðamanninn ekki hafa gert skýran greinarmun á staðreyndum og skoðunum, ekki gengið úr skugga um áreiðanleika upplýsinga og ekki hafi honum sjálfum verið gefinn kostur á andsvörum áður en greinin var birt. Einnig hafi hann óskað eftir leiðréttingu klukkustund eftir að greinin var birt en ekki borist svar fyrr en átta dögum síðar og þá var greinin leiðrétt. Grunlaust um breytinguna Siðanefndin gaf Ríkisútvarpinu tækifæri til að svara kærunni og er í svörum þess því lýst hvernig Rúv fékk drög að frétt sem til stóð að birta í dagblaði Berlingske. Umfjöllunin hafi þar með verið endursögn á frétt þeirra í stað frumvinnslu á frétt. „Hins vegar hafi þau drög sem kærðu unnu úr haft eftir Helga Seljan að kærandi hafi hótað honum og öðrum blaðamönnum minnst þrisvar sinnum, en að í lokaútgáfu greinar Berlingske hafi orðalagi að þessu leyti verið breytt á þá leið að þar var talað um óbeinar hótanir,“ segir í rökum þeirra. Páll hafi haft samband og neitað að hann hafi hótað Helga en ekki tekið fram að það væri í ósamræmi við frétt Berlingske. „RÚV hafi því verið grunlaust um þá breytingu sem gerð var á frétt Berlingske frá þeim drögum sem hin kærða umfjöllun var unnin úr og fram að birtingu endanlegrar útgáfu Berlingske. Því hafi fréttastjóri tjáð kæranda að hin kærða frétt væri unnin upp úr umfjöllun Berlingske og að hann þyrfti að beina umkvörtunum sínum þangað. Hins vegar, þegar kærandi hafi svarað því til að ósamræmi væri á milli umfjöllunar RÚV og umfjöllunar Berlingske, hafi hin kærða frétt verið leiðrétt eftir nánari eftirgrennslan, ásamt því að birt var afsökunarbeiðni.“ Fá ekki séð að fullyrt sé um hótanir „Af kæru má ráða að helsta umkvörtunarefni kæranda sé að í hinni kærðu umfjöllun hafi verið fjallað um hótanir en að í þeirri útgáfu fréttar Berlingske sem birt var hafi verið fjallað um óbeinar hótanir,“ segir í umfjöllun siðanefndarinnar. Nefndin fái því ekki séð að í hinni kærðu umfjöllun sé neitt fullyrt um að Páll hafi haft í hótunum heldur sé einungis haft eftir Helga að Páll hafi hótað honum. Að hennar mati hafi það því takmarkaða þýðingu hvort að orðinu óbeinar sé sleppt þegar talað er um óbeinar hótanir. „Þannig er rangt, sem byggt er á í kæru, að í hinni kærðu umfjöllun hafi kærðu sett fram „ranga og alvarlega fullyrðingu um að [kærandi] hafi hótað blaðamönnum“. Fullyrðingar í hinni kærðu umfjöllun lutu að þessu leyti að því sem Berlingske hafði eftir viðmælanda sínum. Sú misfella sem varð í úrvinnslu RÚV á frétt Berlingske var svo, samkvæmt því sem gögn málsins bera með sér, leiðrétt svo fljótt sem RÚV hafði gengið úr skugga um hvernig í pottinn var búið.“ Siðanefndin áréttar að ekki leiði sérhver ónákvæmni í umfjöllun til þess að brotið sé á siðareglunum heldur þurfi að meta eðli og vægi ónákvæmninnar. Það sé eðlilegur hluti fréttamiðlunar að endursegja fréttir sem hafi birst í öðrum miðlum en það þýði ekki að fjölmiðill leysi sig þannig undan siðareglunum. „Í máli þessu verður ekki séð að sú ónákvæmni sem varð í upphaflegri útgáfu umfjöllunarinnar, eða viðbrögð kærðu í kjölfar athugasemda kæranda, hafi verið þess eðlis að kærðu hafi farið gegn framangreindum skyldum. Þá verður ekki séð að kærðu hafi með umfjöllun sinni farið út fyrir það svigrúm sem fjölmiðlar verða að hafa til að segja fréttir af málum sem varða almannahagsmuni, enda þótt slík umfjöllun kunni að vera íþyngjandi eða óþægileg fyrir nafngreinda einstaklinga.“ Niðurstaða nefndarinnar var því að Ríkisútvarpið hefði ekki brotið gegn siðareglum blaðamanna.
Ríkisútvarpið Fjölmiðlar Samherjaskjölin Sjávarútvegur Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Erlent Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Innlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira