Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð Árni Sæberg skrifar 10. júlí 2026 12:49 Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Vísir/Ívar Fannar Kröfunni um auglýsingu starfsleyfis og fjögurra vikna umsagnatíma áður en leyfi er veitt eða því breytt hefur verið létt af öllum flokkum atvinnustarfsemi sem heilbrigðisnefnd gefur út starfsleyfi fyrir. Þannig hefur afgreiðslu starfsleyfa verið flýtt um allt að fjórar vikur.
Í tilkynningu þess efnis á vef Stjórnarráðsins segir að þetta leiði af frumvarpi Jóhanns Páls Jóhannssonar, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, um breytingar á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, sem samþykkt var á Alþingi 19. júní síðastliðinn. Ráðherra hafi nú fylgt lagabreytingunni eftir með breytingu á reglugerð um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnaeftirlit og reglugerð um hollustuhætti. Aflétting auglýsingaskyldunnar nái til ólíkra flokka atvinnustarfsemi á borð við gististaði, brugghús, skólahúsnæði, sund- og baðstaði, dvalarheimili, æfingasvæði slökkviliðs, sjúkrastofnanir, þvottahús og framleiðslu af ýmsu tagi. Gildir um feigar nefndir Með reglugerðarbreytingunni sem ráðherra undirritaði í dag sé hnykkt á því, í samræmi við umræddar lagabreytingar, að þrátt fyrir að breytingarnar á framkvæmd eftirlits taki gildi 1. janúar 2027 sé heilbrigðisnefndum strax heimilt að gefa út eða breyta starfsleyfum fyrir atvinnurekstur sem fellur undir viðauka IV við lög um hollustuhætti og mengunarvarnir án þess að auglýsa tillögu að starfsleyfi eða drög að breytingu á starfsleyfi og veita frest til athugasemda. Heilbrigðisnefndum sé þó heimilt að viðhafa slíka málsmeðferð ef ætla má að starfsemin geti haft veruleg grenndaráhrif, svo sem ef starfsemi fellur undir lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana.Heimildin sé tímabundin í ljósi þess að heilbrigðisnefndir sveitarfélaga verði lagðar niður með umræddum lagabreytingum frá og með 1. janúar 2027. Færist þá útgáfa starfsleyfa samkvæmt lögunum til Umhverfis- og orkustofnunar, sem verði heldur ekki skylt að auglýsa starfsleyfi í fjórar vikur áður en það er gefið út nema starfsemi falli undir lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana, en þó heimilt að hafa þann háttinn á ef ætla má að starfsemin geti haft veruleg grenndaráhrif. Enn eitt skrefið „Þetta er enn eitt skrefið sem núverandi ríkisstjórn tekur til þess að vinda ofan af íþyngjandi kröfum sem lagðar voru á fólk og fyrirtæki á undanförnum árum, og margt smátt gerir eitt stórt. Einhvern veginn virtist það hafa gleymst að þegar settar eru kvaðir á atvinnulíf þá verður slíkt að vera stutt málefnalegum rökum – og sönnunarbyrðin liggur alltaf hjá stjórnvöldum. Með þessum laga- og reglugerðarbreytingum eyðum við óþarfa töfum og sköpum sveigjanlegra umhverfi fyrir fólk og fyrirtæki sem eru að hefja nýja starfsemi eða færa út kvíarnar. Þetta skiptir máli,“ er haft eftir ráðherra.
Heilbrigðiseftirlit Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Stjórnsýsla Mest lesið Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Vance biðlar til ungra reiðra manna Erlent Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Fleiri fréttir Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Sjá meira