„Sannarlega áhugaverð gjöf“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir og Agnar Már Másson skrifa 10. júlí 2026 15:02 Kristrún Frostadóttir telur gjöfina vera virðingarvott. Vísir/Vilhelm Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir skammbyssuna sem hún fékk að gjöf frá Tyrklandsforseta vera sannarlega „áhugaverða gjöf“. Gripurinn verður gerður óvirkur í Noregi. „
Ég hef ekki fengið þetta afhent beint sjálf heldur frétti af þessu eins og aðrir. Það er búið að koma byssunni til Noregs, hún var skilin eftir í Tyrklandi og síðan flutt til Ósló þar sem við erum með okkar sendiráð gagnvart Tyrklandi. Þar verður hún móttekin og gerð óvirk og síðan verður hún flutt til landsins sem sýningargripur fyrir íslensku þjóðina,“ sagði Kristrún aðspurð um gjöfina eftir ríkisstjórnarfund í morgun. Sjá nánar: Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan „Þessi byssa mun ekki vera í mínu fangi, ekki notuð sem vopn. Þetta er minjagripur ef svo má segja.“ Tyrklandsforseti telji slíka gjöf vera ákveðinn virðingarvott og taki hún því sem svo. Gjöfin verði skráð líkt og aðrar gjafir sem berast forsætisráðherranum en enn liggur ekki fyrir hvar hún verður geymd. „Það er ekkert ólíklegt að hún fari á safn á vegum lögreglunnar eða þess háttar,“ segir Kristrún. Fylgendafjöldinn gott mál Kristrún vakti ekki einungis athygli fyrir handabandið sem hún ein fékk frá Donald Trump Bandaríkjaforseta heldur hefur fylgjendafjöldi hennar á samfélagsmiðlinum Instagram fimmfaldast á fjórum dögum. Flestir af nýju fylgjendunum virðast vera Tyrkir. „Ég varð aðeins vör við þetta. Þetta streymdi inn á mína samfélagsmiðla og ég var meðvituð um það að ég hefði vakið athygli þarna,“ segir hún. Kristrún telur það jákvætt að ásýnd Íslands erlendis sé góð enda er hún fyrst og fremst fulltrúi íslensku þjóðarinnar. „Þannig að ef að við komum út af svona fundi með jákvæða ímynd af okkar landi, jákvæða ímynd af okkar diplómasíu, hvernig við komum fram við fólk og ræðum við erlenda leiðtoga um þjóð þeirra, þá er það gott mál.“
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Tyrkland Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Fleiri fréttir „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Sjá meira