Sér ekki eftir því að hafa valið Marokkó fram yfir Frakkland Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. júlí 2026 07:02 Hinn ungi Ayyoub Bouaddi skýlir boltanum fyrir Kylian Mbappe í leik Marokkó og Frakklands í átta liða úrslitum HM. Getty/Lars Baron Marokkóska undrabarnið Ayyoub Bouaddi sér ekki eftir því að hafa valið að spila fyrir Marokkó í stað Frakklands þrátt fyrir 2-0 tap Marokkómanna á móti Frökkum í fjórðungsúrslitum heimsmeistaramótsins á fimmtudag.
Mörk frá Kylian Mbappé og Ousmane Dembélé tryggðu Frökkum sigur á Norður-Afríkubúunum í endurteknum leik frá undanúrslitum 2022 og munu þeir nú mæta Spáni í undanúrslitum. Hinn átján ára gamli Bouaddi sló í gegn á þessu heimsmeistaramóti en hann ákvað í maí að spila fyrir Marokkó á alþjóðavettvangi eftir að hafa spilað fyrir yngri landslið Frakklands og jafnvel verið fyrirliði U-21 liðsins í mars síðastliðnum. ❤️🇲🇦 Ayyoub Bouaddi: “Regrets not to represent France? Not at all. I made my choice, no regrets. I’m proud to represent Morocco”. pic.twitter.com/fH6935tAoQ— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) July 10, 2026 Þrátt fyrir tapið á fimmtudag fullyrðir hann að hann sé fullkomlega viss um ákvörðun sína um að spila fyrir Marokkó í stað fæðingarlands síns. Ákvörðun sem kom frá hjartanu „Ég sé alls ekki eftir því að hafa valið Marokkó. Ég hef alltaf sagt að þetta væri ákvörðun sem kom frá hjartanu og ég er mjög stoltur af því að spila fyrir Marokkó, sama hvað gerist,“ sagði Bouaddi. „Það mikilvægasta núna er að við vitum – leikmennirnir, starfsliðið, allir – að sama hvað gerist, munum við alltaf gefa allt fyrir treyjuna,“ sagði Bouaddi. Vita meira núna „Við erum stoltir, þótt við höfum vonast til að gera marokkósku þjóðina eins stolta og mögulegt er. Fyrir komandi keppnir munum við vita hvað við þurfum enn að bæta til að komast eins langt og hægt er,“ sagði Bouaddi. Þessi átján ára gamli miðjumaður Lille, sem fæddist og ólst upp í norðurhluta Frakklands, hefur verið einn af þeim sem hafa komið mest á óvart á heimsmeistaramótinu. Hann stóð sig frábærlega í fyrsta keppnisleik sínum fyrir Marokkó, gegn Brasilíu, og hefur síðan þá fest sig í sessi sem einn af fyrstu mönnum á blað hjá liðinu. View this post on Instagram A post shared by FC MOTIVATE | Football Motivation | Football Training (@_fcmotivate) Eitt af umræðuefnunum fyrir leikinn var hvort Frakkar myndu sjá eftir því að hafa ekki tryggt sér Bouaddi til framtíðar, þótt hann hafi átt erfitt með að láta til sín taka í Boston þar sem lið Didier Deschamps vann öruggan sigur. Svona er fótboltinn „Fyrir leikinn vissum við að við værum að fara að mæta mjög góðu frönsku liði. Ég held að við höfum gefið allt sem við áttum, við gáfum 100 prósent, en svona er fótboltinn, maður getur ekki alltaf unnið,“ sagði Bouaddi. „Ég held að þessi leikur muni hjálpa okkur að vaxa. Hann mun sýna okkur hvað við þurfum að taka með okkur inn í næstu keppnir og á hvaða sviðum við þurfum enn að bæta okkur. Það eru þessi litlu smáatriði sem við þurfum að vinna í ef við viljum komast enn lengra,“ sagði Bouaddi sem er svo sannarlega maður framtíðarinnar enda gæti hann vel spilað á fjórum heimsmeistaramótum í viðbót. Næsta HM verður líka á heimavelli.
Marokkó Mest lesið Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport Æfir blindandi og skýtur á eigandann Sport „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Íslenski boltinn „Þetta er búið, við erum góðir“ Enski boltinn Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham Enski boltinn Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Fótbolti Fór grátandi af velli Sport Fleiri fréttir Salah mættur til Tyrklands Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Sjáðu markið sem lyfti Þór af botninum Diljá með tvennu í öruggum Evrópusigri Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham FH fær danskan framherja Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Það er erfitt að eiga við okkur“ Infantino boðar neyðarfund Trabzonspor í formlegum viðræðum við Salah „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Sakar Infantino um fjárkúgun Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Þúsundir syrgðu Baresi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Stefán Teitur er nýr fyrirliði Hannover Arsenal nálgast kaup á Guimaraes HM hetjan fékk magnaðar móttökur hjá nýju liði Paredes hleypti öllu aftur í bál og brand Uppgjörið: Breiðablik - Aktobe 1-3| Klúðruðu öllum fjórum vítaspyrnunum Wenger tjáir sig loks: Segist ekkert hafa vitað af áætlunum Infantinos Kristall sá til þess að viðtalið fór aldrei í loftið FIFA segir ekkert til í fréttum af neyðarsímtölum Infantinos til Trumps Metfjöldi nýrra þjálfara Sjá meira