Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Birgir Olgeirsson skrifar 11. júlí 2026 12:11 Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra. Vísir/Anton Brink Áfengisgjöld verða til skoðunar við gerð næstu fjárlaga, að sögn fjármálaráðherra. Veitingamenn segja gjöldin íþyngjandi og benda á að ríkið innheimti tvöfalt meira með þeim en veiðigjöldum. Ráðherra segir hins vegar að erfið áfengissala geti sýnt að gjöldin þjóni tilgangi sínum.
Veitingamenn hafa þrýst á stjórnvöld að lækka áfengisgjöld og segja þau leggjast þungt á rekstur veitingastaða. Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra fundaði nýlega með fulltrúum greinarinnar og sagðist ætla að ræða málið við Daða Má Kristófersson fjármálaráðherra. Hann gefur engin fyrirheit um lækkun en segir gjöldin koma reglulega til mats. „Þetta eru ákvarðanir sem teknar eru á hverju ári um það hvort áfengisgjöld hækki eða ekki. Sú umræða verður tekin núna í tengslum við fjárlagafrumvarpið eins og hún hefur alltaf verið tekin,“ segir Daði Már. Veitingamenn segja há gjöld bætast við aukinn launa-, húsnæðis- og innkaupakostnað. Þeir hafa meðal annars borið tekjur ríkisins af áfengisgjöldum saman við veiðigjöld og benda á að áfengisgjöldin skili ríkinu um tvöfalt hærri fjárhæð. Daði Már segir gjöldin leggjast jafnt á alla seljendur áfengis. Þau séu jafnframt frábrugðin flestum öðrum opinberum gjöldum að því leyti að tekjuöflun sé ekki eina markmið þeirra. „Markmið þeirra er auðvitað að draga úr neyslu og það er alveg ljóst að þessi skattlagning er þess vegna öðruvísi heldur en mjög mörg önnur skattlagning. Það er beinlínis markmið ríkisins með þessum gjöldum og hefur alltaf verið að draga úr neyslu. Það að gangi illa að selja áfengi er þá til merkis um að þetta beri árangur.“ Ráðherra segir engu að síður þurfa að meta sanngirni opinberra gjalda og áhrif þeirra á rekstur fyrirtækja. „Síðan getum við verið og haft aðra skoðun á því hvort að eðlilegt sé að skattheimta beinist sérstaklega að ákveðnum atvinnugreinum, sérstaklega ef að róðurinn þar er þungur og það eru sjónarmið sem við horfum líka til,“ segir Daði Már. Endanleg afstaða til áfengisgjaldanna liggur því ekki fyrir en málið verður tekið upp við vinnslu fjárlagafrumvarpsins.
Áfengi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Skattar, tollar og gjöld Mest lesið Kourani farinn úr landi Innlent Systir Haraldar er látin Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla Innlent Fleiri fréttir Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Sjá meira