Körfubolti

Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“

Valur Páll Eiríksson skrifar
Eden Rochford, móðir Kinu, syrgir son sinn sem hún segir hafa verið á röngum stað á röngum tíma.
Eden Rochford, móðir Kinu, syrgir son sinn sem hún segir hafa verið á röngum stað á röngum tíma. Vísir/CBS

Lögregluyfirvöld í New York leita vitna að morði Kinu Rochford, fyrrverandi leikmanns Þórs Þorlákshafnar og Hamars hér á landi. Móðir hans syrgir son sinn og tjáði sig við CBS.

Rochford tók þátt á götuboltamóti í Harlem í fyrrakvöld en var þar skotinn í höfuðið og lést. Tveir aðrir voru skotnir og liggja á spítala í stöðugu ástandi.

Enginn hefur verið handtekinn. Lögregla leitar vitna sem og árásarmannsins sem gengur laus. CBS fjallar um málið vestanhafs og ræddi við móður Rochford.

„Hann veitti ánægju og mun ávallt gera það. Hann elskaði körfubolta. Hann útskrifaðist úr háskóla og fór erlendis að spila. Nú spilar hann hér á sumarmótunum. Því miður var hann á röngum stað,“ segir móðir hans Eden Rochford.

Morðið hefur vakið hörð viðbrögð og samfélagið í Harlem sagt syrgja. Körfuboltasamfélagið á svæðinu sem og aðrir samfélagshópar kalla eftir því að lausn verði fundinn á ofbeldi sem þessu. Að fastar tekið verði á byssuglæpum í Harlem.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×