„Við unnum í nágrannalottóinu“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 12. júlí 2026 19:51 Litla fjölskyldan nýtur sín í Danmörku. Aðsend Thelma Hrund Hermannsdóttir segist hafa unnið í „nágrannalottóinu“ en nágrannar hennar í Danmörku hafa orðið eins konar amma og afa sonar hennar. Sambandið hófst með einu bananabrauði.
Thelma Hrund flutti með kærastanum sínum til Horsens í Danmörku í ágúst 2024. Þrátt fyrir að stefnan hafi verið, eins og Thelma orðaði það, að lifa lífinu komst hún að því mánuði seinna að hún ætti von á barni. „Við vorum búin að koma okkur fyrir í lítilli íbúð en hugsuðum að við gætum ekki boðið litlu barni upp á það. Svo við ákváðum að flytja í nýja íbúð í janúar,“ segir Thelma í samtali við fréttastofu. Fyrstu vikurnar í húsinu rakst Thelma ítrekað á manninn sem bjó í íbúðinni við hlið þeirra þegar hann lagði leið sína út til að reykja. „Ég hugsaði að hann væri ekkert rosalega hress karakter, gæfi ekki mikið af sér. Þannig að ég hugsaði ó nei, við erum að fara fá barn. Hvað ef það væri kveisubarn eða mikill grátur? Ég vildi vinna hann inn á okkar band og bakaði bananabrauð fyrir þau hjónin,“ segir hún. „Við fórum með þetta bananabrauð og þau voru svo ótrúlega þakklát. Svo byrjuðum við að spjalla meira og meira.“ Kærasti Thelmu stundaði nám úti en hún var atvinnulaus og varði vegna þessa löngum stundum í kaffi á heimili nágrannanna sem meðal annars hjálpuðu henni að bæta dönskukunnáttuna. Aðsend Einkabílstjórar í fæðingunni Þegar leið á meðgöngu Thelmu sögðu hjónin henni að þau vildu skutla Thelmu og kærasta hennar upp á sjúkrahús þegar kæmi að fæðingunni þar sem þau ættu ekki bíl. „Svo kemur á daginn að ég byrja í hríðum og það stendur yfir í nokkra daga. Ég missi vatnið aðfaranótt þriðjudags og hann kemur í heiminn á fimmtudag. Ég fór örugglega fjórum eða fimm sinnum upp á spítala,“ segir hún. „Þau voru alltaf reiðubúin að skutla, þetta var eins og við værum með einkabílstjóra þessa daga þegar við fórum fram og til baka.“ Aðsend Þegar sonur þeirra, sem fékk nafnið Bjarki, kom loks í heiminn höfðu hjónin tekið sig til og skreytt hurðina að heimili Thelmu að dönskum sið. Slíkt er gert þegar stórir hlutir á við brúðkaup eða barnseignir gerast. „Þau voru búin að hengja lítinn stork á hurðina með blárri slaufu og búin að kaupa fæðingargjöf fyrir okkur og frá því þá vissi ég að þau yrðu smá eins og amma og afi fyrir hann, sem er mjög dýrmætt.“ Allt bakland þeirra sé á Íslandi en með bananabrauðinu hafi þau fengið auka ömmu og afa fyrir Bjarka. „Þau dýrka hann og hann dýrkar þau. Þau eru búin að vera viðstödd öll stóru tímamótin, þegar hann byrjaði að rúlla, skríða og labba. Þau koma í alvörunni fram við hann eins og hann sé barnabarnið þeirra, við unnum í nágrannalottóinu.“ Aðsend Plönuðu „afmælishurðina“ mánuðum fyrr Bjarki varð eins árs í vor og þegar Thelma var á leiðinni með hann á leikskólann að morgni dags var enn og aftur búið að skreyta hurðina að heimili þeirra, þá með íslenskum fánum. „Ég fór strax að hugsa í kjölfarið hvar þau fengu íslenskan fána í Danmörku. Ég hitti svo á nágrannann þegar hann var úti að reykja og hann segir að mamma mín, sem kom í heimsókn mánuði fyrr, hafi komið með þá. Hann hafði sent á hana í febrúar til að fá hana til að koma með íslenska fána, þau voru búin að vera að leggja á ráðin um þetta.“ Bjarki leiti sjálfur í hjónin og bendir hann á hurð þeirra þegar hann langar að fara í heimsókn. Þá fari þau oft með hann út í göngutúr og jafnvel fari með hann eða sæki í leikskólann. „Við ákváðum í sameiningu að þau gætu komið með og sótt á leikskólann. Við skráðum þau sem ömmu og afa, við nenntum ekki að útskýra það nánar,“ segir hún og hlær. „Mér finnst það segja sitt. Þau horfa ekki á þetta sem kvöð, þau langar að gera þetta.“
Danmörk Íslendingar erlendis Ástin og lífið Mest lesið Stjörnulífið: „Fer þér ekki vel, þessi drjóli“ Lífið Sonur Cindy Crawford er látinn Lífið Sjóðurinn tómur Lífið Heyrir aftur hljóð sem höfðu verið horfin í mörg ár Lífið Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Lífið 50+: Ósjálfráða vinahreinsunin eftir fimmtugt Áskorun Stjörnum prýdd fyrsta frumsýning vetrarins Lífið Einstakt einbýli Sigurðar og Láru Lífið Myndaveisla: „Við sprengjum þetta hús í loft upp“ Tónlist Fjögurra ára fyrirsætusonur stal senunni Tíska og hönnun Fleiri fréttir Ein heitasta leikkona landsins á lausu Einstakt einbýli Sigurðar og Láru Stjörnum prýdd fyrsta frumsýning vetrarins Heyrir aftur hljóð sem höfðu verið horfin í mörg ár Sonur Cindy Crawford er látinn Stjörnulífið: „Fer þér ekki vel, þessi drjóli“ Sjóðurinn tómur Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Örvar og María Elísabet nýtt listapar Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi „Maður getur varla beðið um meira“ Bakaríið í beinni útsendingu „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Macklemore svarað Staðgöngumóðir var það Yfir sjöhundruð manns keypt af Guðna í forsölu Lilja í Cosmo selur aðra perlu Kjartans Korter í fæðingarþunglyndi en fór út að hlaupa viku eftir fæðingu Spurt var um dýr með það harðan skjöld að byssukúlurnar fljúga af þeim Ekkert náð að æfa sig en ætlar að kýla á Bakgarðshlaupið Barnastjarnan orðin tveggja barna móðir Hvað veistu um... fræga menn sem heita Robert? Ísak Bergmann og Agnes Perla eiga von á barni „Bakkus nær ekki þeim verstu af okkur, virðist helst velja þá bestu“ Skorar á Kraft að jafna framlag sitt til neyðaraðstoðar á Gasa Ef þú ert í þessum hópi ættir þú ekki að taka lýsi Sjá meira