Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Bjarki Sigurðsson skrifar 16. ágúst 2026 22:04 Helga Kristjánsdóttir við Kaupangur. Húsið var hannað af Guðjóni Samúelssyni. Vísir/Bjarki Hús hannað af Guðjóni Samúelssyni byggt þar sem talið er að Helgi magri hafi haft vetrarsetu í Eyjafjarðarsveit fær nú mikla yfirhalningu. Eigandinn segir mikilvægt að varðveita gömul hús.
Kaupangur var byggt árið 1920 eftir teikningum Guðjóns Samúelssonar sem var sama ár skipaður húsameistari ríkisins. Helgi Magri og kona hans Þórunn hyrna eru sögð hafa haft vetrarsetu þar sem húsið var reist og því um sögufræga jörð að ræða. „Þetta þótti svolítið framúrstefnulegt. Menn voru að fara úr torfbæjum í steinsteypu. Það eru ávalir gluggar í risi því fólk hafði velt því fyrir sér að hafa torf á þakinu svo ásýndin félli betur inn í myndina,“ segir Helga Kristjánsdóttir, eigandi Kaupangurs. Helga segir það dýrmætt fyrir menningararf Íslendinga að varðveita gömul hús og hefur hún leitað til Minjastofnunar til að tryggja að húsið sé varðveitt á sem bestan máta. „Þetta var eiginlega spurning um að annaðhvort varðveita húsið eða láta það fara sinn veg. Við vildum varðveita það og þess vegna þurfti að vinna að endurbótum. Styrkja það hérna í horninu og við ákváðum að laga kjallarann í leiðinni,“ segir Helga. Helga er alin upp í Kaupangi og á þaðan góðar minningar. „Þetta er fyrir mér mjög dýrmætt hús og mér þykir afar vænt um það. Skipulag glugga og rýma og uppleggið, það er allt mjög skemmtilegt. Það sem er líka gaman er að það hefur að mestu leyti haldið sér. Húsinu hefur ekki verið breytt eins og tíðkast sums staðar,“ segir Helga.
Menning Hús og heimili Eyjafjarðarsveit Húsavernd Mest lesið Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Erlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Innlent Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Innlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Innlent Fleiri fréttir Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Bein útsending: Fyrsta skóflustunga að Stóra-Hrauni Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Komi ekki til greina að hætta við talnakvarðann Kallað eftir rannsóknum vegna geðrofslyfs og áskorun til ráðherra Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Brikk lokað í óákveðinn tíma Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Sjá meira