Hver gætir barnanna þegar kerfið bregst? Inga Sæland skrifar 17. júlí 2026 08:31 Ný skýrsla Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála (GEV) um stöðu barna í fóstri er alvarleg. Hún er ekki skýrsla sem við eigum að leggja ofan í skúffu, ræða í nokkra daga og gleyma síðan. Hún kallar á viðbrögð. Athugun GEV sneri að því hvort barnaverndarþjónustur sveitarfélaganna hefðu sinnt lögbundnu eftirliti með börnum í fóstri. Hún tók til virkra fósturmála frá 4. mars til 1. apríl síðastliðins og byggði bæði á gögnum barnaverndarþjónustna og samtölum við 20 ungmenni sem voru eða höfðu nýlega verið í fóstri. Niðurstaðan er skýr um að innra eftirliti er víða ábótavant. Af 290 heimilum þar sem börn voru í fóstri voru 46% án gilds fósturleyfis frá GEV. Alls voru 164 af 436 börnum vistuð hjá aðilum sem ekki höfðu slíkt leyfi. Skráningu var jafnframt víða ábótavant, lögbundnar heimsóknir voru of fáar og í mörgum tilvikum var ekki hægt að sjá hvort rætt hefði verið við barnið sjálft. Ekki hlustað á börnin Það sem snertir mig þó hvað mest eru frásagnir barnanna. Of mörg þeirra fengu ekki raunverulegt tækifæri til að ræða einslega við starfsmann barnaverndar. Sum upplifðu að ekki væri hlustað á þau. Önnur þekktu ekki réttindi sín. Meirihluti ungmennanna í úrtakinu nefndi að þau hefðu ekki treyst starfsmanni barnaverndar og því kosið að segja lítið eða ekkert frá líðan sinni. Þau sem höfðu sagt frá neikvæðri reynslu eða komið öðrum upplýsingum á framfæri við barnaverndarstarfsmann upplifðu mörg hver að ekki hefði verið hlustað á þau eða að ekkert hefði verið aðhafst í málinu. Barn í fóstri á ekki að þurfa að velta því fyrir sér hvort einhver sé raunverulega að fylgjast með líðan þess. Barnið á að vita hver stendur með því, hvert það getur leitað og að rödd þess skipti máli. Við skulum líka hafa ábyrgðina á hreinu. Tilmæli GEV beinast fyrst og fremst að barnaverndarþjónustunum. Þær eru reknar af sveitarfélögunum. Það eru sveitarfélögin sem fara með mál barnanna, gera fóstursamninga og bera lögbundna ábyrgð á reglulegu eftirliti. Það má ekki rugla þeirri ábyrgð saman eða reyna að vísa henni eitthvert annað. Sveitarfélögin krafin úrbóta Hluti stöðunnar kann að eiga sér skýringar. Við tilkomu GEV féllu eldri ótímabundin fósturleyfi úr gildi í árslok 2024 og sumir virðast ekki hafa endurnýjað þau. Einnig getur verið um bráðavistun að ræða, til dæmis hjá ættingjum sem margir hverjir taka að sér ómetanleg verkefni við að sinna börnum í neyð. Það er einnig mikilvægt að hafa í huga fórnfýsi hinna óteljandi fósturforeldra sem börnin og kerfin reiða sig á. Hins vegar þarf að laga það sem skýrsla GEV bendir á og gera það hratt og vel. Í skýrslu sinni óskar GEV eftir því að barnaverndarþjónustur sveitarfélaganna upplýsi stofnunina um hvernig brugðist verði við þeim tilmælum sem beint er til sveitarfélaganna. GEV kallar jafnframt beinlínis eftir sérstakri úrbótaáætlun frá barnaverndarþjónustum, sem skal skila innan sex mánaða. Ríkið verður jafnframt að sinna sínu. Í mennta- og barnamálaráðuneytinu vinnum við að nýrri reglugerð um fóstur og er víðtækt samráð á lokametrunum. Stefnt er að birtingu hennar í Samráðsgátt í haust. Sérstaklega er verið að skoða inntak og framkvæmd eftirlits á fósturheimilum. Reglugerð um innra eftirlit barnaverndarþjónustna, þar á meðal heimsóknir á fósturheimili, er í forgangi. Þar er hlutverk Barna- og fjölskyldustofu (BOFS) einnig mikilvægt. BOFS sinnir fræðslu til fósturforeldra og heldur námskeið sem eru sérstaklega ætluð þeim. Þá miðla sérfræðingar fósturteymis stofnunarinnar fróðleik til fagaðila og styðja þá í störfum sínum. Á vinnustofu sem mennta- og barnamálaráðuneytið stóð fyrir síðastliðið vor kom fram skýrt ákall um aukinn stuðning frá BOFS. Það ákall þarf að taka alvarlega samhliða því að skýra ábyrgð sveitarfélaganna og styrkja eftirlit með börnum í fóstri. Pólitísk hrossakaup stjórnarandstöðunnar Stóra breytingin fælist hins vegar í nýjum heildarlögum um barnavernd sem ég einmitt lagði fram á Alþingi í mars. Frumvarpið hefði orðið umfangsmesta endurnýjun barnaverndarlaga í rúma tvo áratugi. Frumvarpið mætir í raun mörgum af þeim ábendingum sem skýrsla GEV beinir nú til ríkisins. Í barnaverndarfrumvarpinu er fóstur barna ekki aukaatriði en þar er minnst 106 sinnum á fóstur, fósturbörn og fósturforeldra. Þar er lögð meiri áhersla á stöðugleika barns, tengsl þess við fósturfjölskyldu og vandað val á heimili. Einnig er lögð áhersla á stuðning og eftirfylgd eftir að vistun lýkur, svo börn falli ekki milli kerfa. Skýrari reglur eiga að gilda þegar aðstæður fósturforeldra breytast og barnavernd á að bregðast tafarlaust við ábendingum um að umönnun sé ekki fullnægjandi. Við sáum öll hörmulegar afleiðingar þess þegar kerfin klikka í hinu skelfilega Bakkakotsmáli. Barnaverndarfrumvarpið fjölgar lágmarksheimsóknum á fósturheimili úr tveimur í fjórar fyrsta árið og úr einni í tvær árlega eftir það. Það heimilar óboðað eftirlit. Það kveður á um að rætt skuli einslega við barnið við hlutlausar aðstæður og tryggir barninu skýrari upplýsingar og rétt til talsmanns. Þessar breytingar náðu hins vegar ekki fram að ganga í vor vegna þess að stjórnarandstaðan valdi að stöðva málið, rétt fyrir þinglok. Það er óásættanlegt. Börn eiga ekki að verða fórnarlömb pólitískra hrossakaupa stjórnarandstöðu. Málefni barna eiga að vera hafin yfir hefðbundinn skotgrafahernað. Þegar pólitíkin stoppar barnaverndina eru það börnin sem líða fyrir það. Hagsmunir barna ofar flokka Barnaverndarfrumvarpið snýst þó um miklu meira en eftirlitsheimsóknir og stöðu fósturbarna. Það styrkir rétt allra barna til samþættrar þjónustu, þátttöku og upplýsinga. Það leggur niður umdæmisráð og setur á fót eitt barnaverndarráð til að auka samræmi, sérþekkingu og jafnræði um land allt. Það skýrir einnig reglur um þvingunarúrræði, eykur samfellu milli barnaverndar, félagsþjónustu og heilbrigðisþjónustu og bætir úrræði fyrir börn með flóknar og fjölþættar stuðningsþarfir. Skýrsla GEV og höfnun stjórnarandstöðunnar á afgreiðslu nýrra barnaverndarlaga í vor sýna að við höfum ekki efni á frekari töfum. Það er kominn tími til að setja hagsmuni barna ofar hagsmunum flokkanna. Málefni barna mega aldrei verða skiptimynt í pólitískum leikjum. Þessar breytingar mega ekki bíða lengur. Höfundur er mennta- og barnamálaráðherra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Börn og uppeldi Fósturbörn Fósturfjölskyldur Inga Sæland Mest lesið Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun