Mótmælt í Kænugarði vegna uppsagnar varnarmálaráðherrans Hólmfríður Gísladóttir skrifar 17. júlí 2026 08:04 Fedorov nýtur mikilla vinsælda og sumir vilja meina að Selenskí hafi litið á hann sem pólitískan keppinaut. Getty Komið hefur til mótmæla í Úkraínu vegna ákvörðunar Vólódimírs Selenskís forseta um að láta varnarmálaráðherrann Mykhailo Fedorov taka pokann sinn. Forsetinn segir valið hafa staðið á milli Fedorov og yfirherforningjans Oleksandr Syrskyi. „
Ég myndi vilja sjá einingu. Aðilar hafa ekki fundið hana. Og vandamálin liggja ekki bara hjá þeim, heldur líka hjá mér,“ saðgi forsetinn á blaðamannafundi með Keir Starmer, fráfarandi forsætisráðherra Bretlands, í gær. „En staðan er eins og hún er. Og í svona stöðu þá hefur maður val: annað hvort þessi eða hinn,“ bætti Selenskí við. Ákvörðun forsetans er sögð hafa vakið mikla reiði meðal almennings og bandamanna Úkraínu en Fedorov nýtur mikilla vinsælda og þykir eiga stóran þátt í velgengni Úkraínuhers gegn Rússum á síðustu mánuðum. Yfir þúsund manns söfnuðust saman við forsetaskristofuna í Kænugarði í gær og hrópuðu meðal annars „Syrskyi út“. Þetta er í annað sinn sem mótmælt er í Úkraínu frá því að Rússar réðust inn í landið. Í fyrra skiptið var það vegna ákvörðunar Selenskís um að leggja niður tvær stofnanir sem rannsökuðu spillingarmál og neyddist forsetinn til að draga þá ákvörðun til baka. Selenskí að losa sig við mögulegan keppninaut? Fedorov boðaði einnig til blaðamannafundar í gær, þar sem hann ásakaði yfirmenn í hernum um að koma í veg fyrir umbætur og beita „sovéskum“ aðferðum. Hann sagði ákvarðanir teknar útfrá tengslum, frekar en gögnum. Þá hefðu háttsettir menn innan hersins hefðu komið í veg fyrir nauðsynlegar breytingar. Varnarmálaráðherrann fyrrverandi sagðist meðal annars hafa lagt til að Syrskyi yrði skipt út, sem er mögulega það sem varð Fedorov að falli. Mótmælendur gerðu því skóna í gær að Fedorov hefði verið látinn fjúka vegna vinsælda sinna og að Selenskí sæi hann sem keppinaut. Forsetinn hefur áður verið sakaður um að losa sig við mögulega áskorendur, til að mynda þegar hann sendi hershöfðingjann Valerii Zaluzhnyi úr landi árið 2024 og gerði að sendiherra í Lundúnum. „Syrskyi er gamaldags hershöfðingi,“ hefur Guardian eftir einum mótmælenda. „Sumt af fólkinu í kringum hann er sagt spillt og með sín eigin drónaverkefni í gangi. Vandamálið er að Selenskí er á móti öllum sem sýna einhvern pólitískan metnað.“
Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Mest lesið „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Fleiri fréttir Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Sjá meira