Sport

Dag­skráin: Opna breska, Reykjavíkurslagur og For­múla 1

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Valsmenn eru í vandræðum og þurfa hagstæð úrslit á móti Fram í Reykjavíkurslag á laugardagskvöldi.
Valsmenn eru í vandræðum og þurfa hagstæð úrslit á móti Fram í Reykjavíkurslag á laugardagskvöldi. Vísir/Diego

Það eru beinar útsendingar á sportstöðvunum í dag og kvöld eins og vanalega á laugardögum.

Það eru beinar útsendingar á sportstöðvunum í dag og kvöld eins og vanalega á laugardögum.

Opna breska meistaramótið í golfi, The Open, heldur áfram og nú er komið að deginum fyrir kylfinga til að koma sér í góða stöðu fyrir lokadaginn á morgun.

Besta deild karla í fótbolta fer aftur af stað og tveir leikir verða í beinni útsendingu í dag.

Þór Akureyri tekur á móti Víkingum sem eru nýkomnir heim frá Ungverjalandi.

Valsmenn taka síðan á móti Fram í Reykjavíkurslag á laugardagskvöld.

Formúla 1 er komin til Belgíu og í dag verður sýnt frá þriðju æfingu og svo sjálfri tímatökunni eftir hádegi.

Hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir beinar útsendingar á sportstöðvunum í dag.

SÝN Sport Ísland

Klukkan 15.50 hefst bein útsending frá leik Þórs og Víkings í fimmtándu umferð Bestu deildar karla í fótbolta.

Klukkan 19.00 hefst bein útsending frá leik Vals og Fram í fimmtándu umferð Bestu deildar karla í fótbolta.

SÝN Sport

Klukkan 09.00 hefst útsending frá Opna breska risamótinu í golfi, The Open.

Klukkan 14.00 hefst útsending frá Opna breska risamótinu í golfi, The Open.

SÝN Sport Viaplay

Klukkan 10.25 hefst bein útsending frá þriðju æfingu fyrir belgíska kappaksturinn í Formúlu 1.

Klukkan 13.55 hefst bein útsending frá tímatökunni fyrir belgíska kappaksturinn í Formúlu 1.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×