Fótbolti

Siggi Raggi einu stigi frá titlinum

Sindri Sverrisson skrifar
Sigurður Ragnar er við það að landa meistaratitli í fyrstu tilraun með NSÍ.
Sigurður Ragnar er við það að landa meistaratitli í fyrstu tilraun með NSÍ.

Lærisveinar Sigurðar Ragnars Eyjólfssonar í NSÍ Runavík þurfa aðeins eitt stig úr síðustu tveimur umferðunum í Betri deildinni til þess að tryggja sér færeyska meistaratitilinn í fótbolta.

NSÍ vann 07 Vestur í dag, 1-0, en Siggi Raggi og hans menn þurftu þó að bíða lengi eftir sigurmarkinu sem Aron Knudsen skoraði á 83. mínútu.

Liðið er nú með 54 stig á toppnum, sex stigum á undan KÍ Klaksvík sem er eina liðið sem mögulega gæti náð titlinum af NSÍ.

Næsti leikur NSÍ er á heimavelli gegn HB Þórshöfn, liðinu í 3. sæti, næsta sunnudag og í lokaumferðinni sækir liðið svo botnlið B68 Toftir heim.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×