Gæti kólnað fyrir austan þegar líður á vikuna Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 20. júlí 2026 08:19 Tjaldsvæðið á Kirkjubæjarklaustri var fullt um helgina. Vísir/Vilhelm Hlýjast verður á Austurlandi í dag þar sem hitinn gæti farið upp í 25 gráður en kólnað gæti þar seinni hluta vikunnar. Á vestanverðu landinu verður rigning eða súld.
Hitinn á landinu verður á milli 11 og 25 stig. Íbúar á vestanverðu landinu geta búist við rigningu en fyrir austan verður þurrt og skýjað með köflum. Í hugleiðingum veðurfræðings segir að öflug hæð suður af landinu haldi áfram að stýra veðrinu og valda þrálátri vætu vestantil á landinu en miklum hlýindum fyrir austan. Einhver breyting gæti orðið á því seinni hluta vikunnar, hæðin hörfar til suðurs en lægðin hreiðrar um sig norðaustur af landinu og beinir svalara lofti úr norðri yfir landið. „Við þetta mun kólna talsvert á Norður- og Austurlandi á föstudag, en sunnan heiða verður áfram milt. Það verður hins vegar fagnaðarefni fyrir marga að njóta sólarinnar loksins aftur vestantil á landinu um næstu helgi ef að líkum lætur,“ segir í hugleiðingunum. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag:Gengur í sunnan og suðvestan 8-15 m/s með rigningu, en úrkomulítið austantil fram á kvöld. Hiti 11 til 23 stig, hlýjast austanlands.Á fimmtudag:Suðvestan 5-13. Súld með köflum um vestanvert landið, stöku skúrir norðaustanlands, en þurrt suðaustantil. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast á Austurlandi.Á föstudag:Norðvestan 5-13 og dálítil væta norðan- og austanlands, en víða bjart á Suður- og Vesturlandi. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast sunnan heiða.Á laugardag:Hæg breytileg átt og bjart með köflum, en sums staðar skúrir síðdegis. Hiti 10 til 18 stig.Á sunnudag:Útlit fyrir austlæga átt með lítilsháttar vætu í flestum landshlutum.
Veður Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Katla skelfur Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Fleiri fréttir Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Sjá meira