Tjakkurinn, ljóstíran og tækifærin Dóra Magnúsdóttir skrifar 21. júlí 2026 08:03 Einu sinni var maður á akstri út á landi um vetur, í niðamyrkri og kulda. Hann varð þess skyndilega var að sprungið hafði dekk á bílnum. Eftir panik leit komst hann að því að hann var ekki með tjakk og því voru góð ráð dýr. Sér til nokkurs léttis sá hann ljóstíru í húsi í nokkurri fjarlægð, sem hann áleit að hlyti að vera nálægur bóndabær og hans eina von um aðstoð. Hann ákvað að ganga þangað og fá lánaðan tjakk. Leiðin var ekki greið. Mikill snjór var og erfitt færi, og okkar manni var þungt í skapi. Hann áleit í fyrstu að bóndinn hlyti að vera greiðvikinn við ókunnan mann í vandræðum utan alfaraleiðar, en eftir því sem hann öslaði snjóinn þyngdist í honum sinnið. „Kannski er bóndinn ekki hjálplegur maður og neitar mér um tjakk,“ hugsaði maðurinn. „Kannski er bóndanum illa við aðkomufólk og tekur ekki vel í erindi mitt.“ „Kannski eru allir farnir að sofa,“ hugsaði hann áfram á sömu nótum. „Ef allir eru farnir að sofa verður bóndinn pirraður að ég sé að banka upp á hjá honum.“ Og áfram gekk hann að bænum og yfir hann helltust hugsanir um þau neikvæðu viðbrögð sem myndu dynja á honum við það eitt að banka á dyr og óska eftir að fá lánaðan tjakk. Þegar hann loksins bankaði opnaði bóndinn dyrnar og sagði: „Gott kvöld, hvað get ég gert fyrir þig?“ Þá öskraði maðurinn: „Þú mátt bara eiga þennan helvítis tjakk! Ég hef ekkert við hann að gera!“ Og stormaði burt. Íslendingar sitja uppi með sprungið dekk. Almenningur og lítil fyrirtæki, sem ekki gera upp í evrum, borga mun hærri vexti en þær þjóðir sem við berum okkur gjarna saman við. Reyndar mun hærri vexti en margar þjóðir sem við berum okkur almennt ekki saman við. Vextir lántakenda eru ekkert annað en kostnaður við að fá peninga lánaða, sem við þurfum að gera ef við viljum mennta okkur og eignast húsnæði. Ef þú skuldar peninga, eins og íslensk alþýða gerir almennt, þá eru afborganir af lánunum okkar mun hærri en í löndum með alvöru gjaldmiðil. En ef þú átt peninga er dásamlegt að vextir séu háir því þú græðir á því. Fólkið sem á peninga er því verulega mikið á móti því að evra verði tekin upp. Stundum er þetta sama fólkið og á fyrirtæki sem gerir upp í evrum, en þau eru núna 257 talsins, enda er erfitt að stunda alvöru viðskipti með íslenska krónu. Þetta eru ekki litlu fjölskyldufyrirtækin út um allt land og einyrkjabissnessinn. Nei, þetta eru stóru og stöndugu fyrirtæki landsins. Þetta fólk vill að þú kjósir nei 29. ágúst og að allt varðandi fjármál og vexti á Íslandi haldist óbreytt. Því er reyndar oft haldið fram að við getum einfaldlega lækkað vexti sjálf, það þurfi bara viljann, kjarkinn og rétta fólkið. Staðan er þó sú að í meira en heila öld hefur íslensk þjóð verið þjökuð af alltof háum vöxtum og allar ríkisstjórnir á tímabilinu hafa reynt en ekki tekist að lækka vexti. Einhverjir myndu því segja að þessi tilraun væri fullreynd. Þar sem myndlíking er þema í þessari grein má segja að Íslendingar séu að byggja hús með skrúfjárni þegar kemur að vaxtamálum. Þeir hafa einfaldlega ekki aðgang að hamri og nagla og því gengur hvorki né rekur. Ef Íslendingar ætla að eiga möguleika á að losna undan vaxtaþrælkuninni verða þeir að nota önnur verkfæri. Eina verkfærið sem er í boði er evra. Fjöldi fólks vill alls ekki feta þessa leið og banka á dyrnar hjá bóndanum. Þetta verði hvort eð er allt ömurlegt, ekkert í boði, bóndinn ómögulegur, hann sé einráður og erfiður viðureignar. Affarasælast sé að ræða bara ekkert við hann. En það er ljóstíra fram undan í vaxtamyrkrinu. Við getum valið að ganga að henni, bjóða góða kvöldið og spyrja hvort við getum fengið lánaðan tjakk. Það eru allar líkur á að tekið verði vel í erindi okkar. Það er þó ekki víst, en við vitum það ekki nema við göngum brött að ljósinu og segjum já 29. ágúst næstkomandi. Höfundur situr í stjórn Evrópuhreyfingarinnar. PS. Réttur ritháttur er ljóstíra með einföldu í-i skv. Árnastofnun. PS 2: Höfundur hefur sérlega jákvæða reynslu af viðmóti bænda alls staðar á landinu og myndi aldrei hika við að biðja þá um að lána sér tjakk. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Dóra Magnúsdóttir Mest lesið Halldór 5.9.2026 Halldór Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Skoðun Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar