„Fólk bara skammast sín svo rosalega mikið“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 21. júlí 2026 12:39 Ástarsvikin hófust inn á einkamal.is. vísir/getty Sakleysislegu daðri og samskiptum á stefnumótasíðunni Einkamál.is lauk með því að maður á áttræðisaldri missti aleigu sína í hendur svikara og sérsveitin var kölluð á heimili hans. Ástarsvik hafa verið sérstaklega algeng síðustu vikur samkvæmt Landsbankanum sem hvetur fólk til að varast grunsamleg samskipti á stefnumótaforritum.
Fréttastofa hefur á síðustu dögum fjallað um mál manns á áttræðisaldri sem tapaði 108 milljónum til þriggja óprúttinna aðila sem héldu úti fjárkúgunum og svikum umfjórtán mánaða skeið. Samkvæmt heimildum fréttastofu hófust fjársvikin sem ástarsvik inni á einkamál.is þar sem maðurinn átti í samskiptum við kúgara sína sem sigldu undir fölsku flaggi á síðunni. Ástarsvik eru þegar einhver myndar ástar- eða vinatengsl við viðkomandi til þess að geta haft af honum fé eða persónuupplýsingar. Þau hefjast oft á samskiptum á netinu eða samfélagsmiðlum. Ástarsvik algengari en áður Brynja M. Ólafsdóttir, sérfræðingur í regluvörslu hjá Landsbankanum, segir í ástarsvik hafa verið sérstaklega algeng undanfarið. „Ástarsvikin hafa alltaf verið viðloðandi og það hefur verið mikið um þau en undanfarnar vikur hafa komið upp óvenju mörg mál. Þetta getur bæði verið einmanaleiki og fólk er meira farið að nýta sér þessi stefnumótaforrit og svo er fólk bara að nýta sér tæknina. Svo kemur gervigreindin inn í sem glæpamennirnir fara að nýta sér til að aðstoða við það að búa til persónur sem eru bara ekki til.“ Ástarsvik séu sérstaklega varasöm og oft erfitt að eiga við. „Málið er það með ástarsvikin að þau eru ekkert endilega alltaf tilkynnt til okkar af því að fólk bara skammast sín svo rosalega mikið. Það kemur upp þessi skömm að það hafi einhver komist inn fyrir þitt persónulega traust. Þú kynnist einhverjum á internetinu og þið eruð búin að vera í samskiptum í einhverja daga, vikur og mánuði og svo einhvern veginn ertu farinn að treysta viðkomandi það mikið að þú ert farinn að senda honum pening.“ Erlendir aðilar herja á Íslendinga á Facebook Málin sem koma upp og til skoðunar séu í raun bara toppurinn á ísjakanum. Flest mál komi upp á Facebook. „Við erum að sjá bæði kyn falla fyrir þessu og þetta eru yfirleitt kannski eldri einstaklingar mestmegnis. Það er ómögulegt að segja af því að það er líka mjög mikið af málum sem koma ekki upp á yfirborðið.“ Spurð um hve háar upphæðir sé að ræða segir Brynja: „Þetta er allt frá því að vera kannski frá tugum þúsunda upp í tugi milljóna. Oftast eru þetta lægri fjárhæðir af því að það er hugsanlega verið að hjálpa í einhverjum erfiðleikum og þá er verið að hjálpa við að greiða einhvers konar kostnað. Til dæmis ferðakostnað eða lækniskostnað. Þetta eru oft kannski margar greiðslur sem að safnast upp í stærri upphæð.“ Hún segir oftast erlenda aðila standa að baki svikunum en íslenskir hópar hafa einnig verið að sækja í sig veðrið. Brynja biðlar til fólks að hafa varann á í samskiptum á netinu. „Það er mjög mikilvægt að hugsa sig vel um. Það er náttúrulega mjög eðlilegt fyrir fólk að tala saman á stefnumótaforritum. Þetta eru bara hlutir sem eru að gerast í lífinu og er ekkert óeðlilegt við það. En um leið og það fara að skapast einhver tilvik þar sem fjármunir fara á milli, að þá er svo mikilvægt að fólk geri sér grein fyrir því að ef þú ert að senda peninga eða fjármuni á fólk sem að þú hefur aldrei hitt og bara tengst í gegnum internetið, að það getur alltaf verið þannig að það sé ekki raunveruleg manneskja á bak við. Fólk þarf bara að meta þá áhættu. Er ég til í að senda peninga sem ég er búin að afla á einhvern aðila sem ég þekki ekki neitt?“
Lögreglumál Eldri borgarar Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Fleiri fréttir Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Sjá meira