Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 23. júlí 2026 14:49 Stuart Little var dulnefni þess sem fékk Darren og Angelu til að flytja 32 kíló af amfetamíni til Íslands frá Englandi. Tveir breskir ríkisborgarar hafa verið dæmdir í sex ára fangelsi fyrir umfangsmikinn innflutning á amfetamíni. Bæði voru burðardýr sem gerð voru út af örkinni af óþekktum aðila sem kallaði sig Stúart litla (e. Stuart Little) eftir þekktri teiknimyndapersónu.
Dómur var kveðinn upp í dag í Héraðsdómi Reykjaness. Þau Angela Louise Derbyshire og Darren Christopher Rollison hafa sætt gæsluvarðhaldi frá því þau voru handtekin á Keflavíkurflugvelli við komuna til landsins með flugi frá Manchester sunnudaginn 12. apríl. Í tveimur ferðatöskum þeirra, vínrauðri og svartri, fundust við gegnumlýsingu og nánari skoðun samanlagt tæplega 32 kíló af amfetamíni sem reyndust af styrkleika á bilinu 35 til 50 prósent. Meðal gagna málsins voru WhatsApp-samskipti milli Angelu og Darrens en líka samskipti þess síðarnefnda á WhatsApp við mann undir dulnefninu Stuart Little. Um er að ræða teiknimyndapersónu, nánar tiltekið mús sem getur talað og lendir í ýmsum ævintýrum. Flest bendir til þess að þessi Stuart Little hafi verið allt annað en mús heldur sá sem fékk fólkið til að flytja efnin til Íslands. „Iceland, that's cold ain't it?“ Darren sagðist hafa vegna fjárhagserfiðleika og hótana um að börn hans yrðu meidd tekið að sér að flytja fíkniefni til landsins. Hann hefði talið að um gras væri að ræða eða önnur veikari fíkniefni. Hann vildi ekki gefa upp hverja hann hefði rætt við og gerði lítið úr þætti Angelu sem hefði ekki vitað af ferðatöskunum. Samskipti Darrens og Angelu á WhatsApp sögðu þó aðra sögu. Darren nálgaðist Angelu eftir samskipti við Stuart Little nokkrum dögum fyrir brottför og reyndi að fá hana með. Þar sammæltust þau um að skipta 1500 pundum fyrir verkefnið sem aldrei var nefnt beinum orðum hvert væri auk þess sem hún sá um að bóka fyrir þau flug og gistingu. Þegar Darren sagði Angelu að förinni væri heitið til Íslands svaraði hún: „Okay Iceland, thats cold ain't it fuck me yeah fuck let's do it“ sem mætti þýða til dæmis með mildilegum hætti og eðlilegum greinarmerkjum: „Allt í lagi, Ísland? Það er svakalega kalt. Jeremías og meira með! Látum vaða!“ Ótrúverðugur framburður Angelu Angela tjáði lögreglu og ítrekaði fyrir dómi að þau Darren hefðu ætlað að gera upp hús. Skilaboð þeirra á milli hefðu snúist um það. Hins vegar var margt sem ekki gekk upp í framburði hennar. Hjá lögreglu sagði hún þau Darren nýlega hafa hætt með mökum sínum og ætlað að kanna hvernig gengi þeirra á milli með ferð til Íslands til að skoða Norðurljósin og Bláa lónið. Fyrir dómi sagði hún ekkert rómantískt við samband þeirra án þess þó að gefa nokkra skýringu á ferðalagi þeirra til Íslands. Darren sagði þau Angelu hins vegar aldrei hafa rætt að fara í frí til Íslands og auk þess hefði hann ekki heilsu til að taka að sér að gera upp hús. Þau hefðu aldrei rætt að taka slíkt verkefni að sér. Var það metið Darren til refsimildunar að hann játaði innflutninginn. Þá hefur Angela ekki orðið uppvís að refsiverðri háttsemi. Hins vegar var litið til þess að þótt þau væru burðardýr væri ljóst að af innflutningnum hefði ekki orðið án þeirrar aðkomu. Sex ára fangelsi var niðurstaðan að frádregnu fjögurra mánaða gæsluvarðhaldi síðan þau komu til Íslands.
Lögreglumál Dómsmál Keflavíkurflugvöllur Fíkniefnabrot Smygl Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Fleiri fréttir Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Sjá meira