Innlent

Eldur kviknaði á Fiski­slóð

Eiður Þór Árnason skrifar
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út í kvöld vegna elds við Granda í Reykjavík.
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út í kvöld vegna elds við Granda í Reykjavík. Aðsent

Eldur kviknaði í smáhýsi við Fiskislóð á Granda í Reykjavík í kvöld. Búið er að ráða niðurlögum eldsins en smáhýsið, sem er á vegum Reykjavíkurborgar, er talið ónýtt. Ekki urðu slys á fólki.

Þetta segir Stefán Kristinsson, varðstjóri hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, í samtali við fréttastofu. Tilkynning hafi borist um tuttugu mínútur yfir tíu í kvöld og greiðlega gengið að slökkva eldinn. 

Áfram er unnið að því að reykræsta á svæðinun og kæla eldsmatinn. Ekki er vitað um eldsupptök og verður málið rannsakað af lögreglu.

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×