Neytendur

Lygi­legri bar­áttu gegn easyJet lauk með ó­væntum sigri

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Aðalsteinn má vera stoltur af baráttu sinni fyrir hönd neytenda. Koma verður í ljós hvort flugfélagið geri breytingar á mæligrind sinni víðar en á Gatwick-flugvelli í London.
Aðalsteinn má vera stoltur af baráttu sinni fyrir hönd neytenda. Koma verður í ljós hvort flugfélagið geri breytingar á mæligrind sinni víðar en á Gatwick-flugvelli í London.

Akureyringur gafst ekki upp eftir að hafa talið flugfélagið easyJet hafa svínað á sér og rukkað vegna handfarangurstaskna sem virkuðu of stórar. Hann taldi brögð í tafli og eftir heilmikla þrautargöngu hafði hann að lokum óvæntan sigur.

Aðalsteinn Svan Hjelm lýsir hremmingum sínum og baráttu í færslu á Facebook frá því í maí síðastliðnum þegar hann var á leiðinni frá London til Grikklands með flugfélaginu EasyJet ásamt dóttur sinni. Þau voru stöðvuð við hlið flugfélagsins á Gatwick-flugvelli og beðin um að setja handfarangurstöskur sínar í málmgrind til að staðfesta að þær væru innan stærðarmarka.

„Þarna var búið að kalla út í vél, allir komnir í röð og hver fyrir sig beðinn um að máta handfarangurinn,“ segir Aðalsteinn í samtali við Vísi.

Um var að ræða Samsonite-handfarangurstösku sem Aðalsteinn segist hafa ferðast með víða um heim án vandræða en ekki í þetta skiptið. Taskan passaði ekki í grindina. Var hann krafinn um greiðslu sem nam um sextán þúsund krónum samanlagt fyrir tvær töskur og skipti engu um mótmæli hans.

„If it does not fit, you pay!“

Honum hafi fundist þetta allt svo undarlegt. Allir voru látnir setja farangurinn í mæligrindina, starfsfólkið var svo strangt og enginn að nenna að tala við hann.

„Auðvitað gefst maður upp og borgar til að missa ekki af vélinni,“ segir Aðalsteinn. Með óbragð í munni sneri hann við í rananum og fékk leyfi til að taka myndir af mæligrindinni. Svo var flogið til Aþenu.

Gat ekki sofið

Aðalsteinn náði ekki að hrista pirringinn úr sér í sólinni í Grikklandi og fyrstu nóttina settist hann upp í rúminu og hugsaði: „Nei, þetta er ekki rétt.“

Hann fór að gúggla og komst að því að fleiri höfðu svipaða sögu að segja. Einhverjir höfðu tekið slagið og sumir fengið greitt. Þó voru engin dæmi þess að easyJet viðurkenndi að eitthvað væri ekki í lagi. Aðalsteinn ákvað að láta reyna á rétt sinn og sýna fram á að eitthvað væri að umræddri mæligrind á Gatwick-flugvelli.

Hann hóf formlegt kæruferli hjá easyJet. Það skilaði engu og heldur ekki kvörtun til Gatwick-flugvallar sem annaðhvort gat ekki eða vildi ekki aðhafast. Að lokum fór málið til óháðs úrskurðaraðila sem hafnaði einnig kröfu hans.

Enginn aðili tók til greina að hreinlega mæla málmgrindina til að komast að því hvort hún væri af réttri stærð. Hann var ekki tilbúinn að kyngja því og fann áhugaverðar greinar sem vörpuðu ljósi á að easyJet hafði útvistað umræddri þjónustu til verktaka. Tekjur hans voru árangurstengdar að því leyti að því fleiri töskur sem kæmust ekki í grindina, því meiri tekjur. Því til viðbótar eru aukatekjur easyJet heilmiklar af hverri tösku sem reynist of stór. Aukagjöld af ýmsu tagi hafi numið verulegum hluta af heildartekjum easyJet á síðasta fjárhagsári samkvæmt ársreikningi félagsins.

Ætlar með málið lengra

En Aðalsteinn gafst ekki upp. Í umræðum um tengt mál fann hann ummæli þar sem einhver hafði sett inn netföng á háttsetta stjórnendur hjá easyJet. Hann hugsaði að hann hefði engu að tapa, bjó til kurteisan póst þar sem hann lýsti ánægju af fyrri ferðum í gegnum árin. Hann bjóst ekki við neinu en honum barst svar.

Taska Aðalsteins við mæligrindina á Gatwick-flugvelli.

Starfsmaður hjá easyJet afsakaði allt vesenið, staðfesti að eitthvað hefði verið að mæligrindinni á Gatwick og að stálplötur hefðu verið fjarlægðar úr grindunum að lokinni innri rannsókn. Hann fengi sextán þúsund krónurnar endurgreiddar.

„Einhver hefur sent erindið áfram,“ segir Aðalsteinn og vísar til stjórnenda easyJet. 

Neytendasamtök komin í málið

Aðalsteinn segir um ótrúlega niðurstöðu að ræða og finnst í raun ótrúlegt að easyJet hafi viðurkennt að eitthvað hefði verið að. Hann svaraði póstinum um hæl, þakkaði fyrir og spurði hvað flugfélagið ætlaði að gera varðandi alla aðra sem hefðu verið ofrukkaðir vegna farangurs sem mögulega var ekki of stór. Hann hefur ekki fengið svar.

Svarið sem Aðalsteinn fékk frá easyJet.

„Ég ímynda mér að það séu einhverjir neyðarfundir í gangi,“ segir Aðalsteinn sem er enn hissa á því að easyJet hafi viðurkennt brögð í tafli enda gætu verið miklir fjárhagslegir hagsmunir fyrir flugfélagið undir.

Hann ætlar áfram með málið.

Hann hefur þegar komist í samband við stór neytendasamtök í Englandi sem hafa sýnt málinu mikinn áhuga og fengið leyfi Aðalsteins til að deila upplýsingum um málið með þarlendum fjölmiðlum. Fróðlegt verður að sjá hvað verður og hvort sextán þúsund krónurnar skili sér á endanum inn á reikning hans.

Hann bendir líka á þá sérstöku staðreynd að mæligrindurnar á Gatwick séu ekki vottaðar. Þannig hafi easyJet lausan tauminn auk þess sem stálplöturnar virðast hafa verið þannig gerðar að hægt var að skrúfa þær í og úr.

Grind sem búið er að eiga við til vinstri. Rétt stilling til hægri að sögn Aðalsteins.

Hann hefur þegar dregið einn lærdóm af málinu: Að ferðast aldrei aftur án þess að vera með málmband á sér.

„Ég fann málmband sem passar á lyklakippu,“ segir Aðalsteinn en ekkert vesen kom upp á leiðinni heim frá Grikklandi. Hann flaug heim með easyJet frá Ítalíu.

„Þar smellpassaði taskan!“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×