Þjóðin á að njóta vafans Snorri Másson skrifar 29. júlí 2026 13:45 Kjarni heilbrigðrar og þjóðlegrar stjórnmálastefnu á okkar tímum er að skapa þannig umgjörð fyrir samfélagið að hún þjóni heildarhagsmunum þjóðarinnar en ekki aðeins afmörkuðum hagsmunum fjármagnsins. Með því er ekki horfið frá frjálsu markaðshagkerfi en þó viðurkennt að þessir hagsmunir fara ekki alltaf saman. Þegar þeir rekast á, skal þjóðin njóta vafans. Í gegnum EES-samninginn höfum við Íslendingar notið góðs af aðgangi að innri markaði Evrópu, sem hefur skapað tækifæri fyrir útflutningsgreinar okkar. Sá samningur hefur því augljósa kosti, þótt aðra þætti hans verði að skoða í gagnrýnu ljósi. Frjáls för fólks á svæðinu hefur hentað ágætlega þeim Íslendingum sem hafa viljað búa annars staðar í Evrópu. Að mínum dómi hefur þó sama frelsi annarra til að setjast að á Íslandi þróast með algerlega ósjálfbærum hætti, sem var ekki stefnt að við samþykkt samningsins fyrir þrjátíu árum. Grundvallarhugtak í EES-samstarfinu er frelsi en þegar vel er að gáð hefur það þrönga, kapitalíska merkingu sem er bundin við frelsi fyrir vörur, þjónustu og fjármagn. Þar með er horft framhjá því hve mjög þetta tiltekna frelsi þrengir að öðru frelsi, nefnilega frelsi smáþjóðar til að lifa sínu sjálfstæða lífi án yfirvofandi tilvistarógnar. Í því ljósi er ekki úr vegi að spyrja sig hvaða þýðingu það hefði fyrir Íslendinga að skerða enn frelsi sitt á þessu sviði með fullri aðild að Evrópusambandinu. Innflytjendamál innan Evrópusambandsins Nú er það almennt viðurkennt að inngöngu Íslands í Evrópusambandið fylgir líklega aukið atvinnuleysi hér á landi. Slíkt ástand er okkur Íslendingum eitur í beinum af fjölmörgum ástæðum. Þó hefur verið gefið í skyn að við þessa breytingu kynni hið hreyfanlega vinnuafl að leita síður til Íslands. Þar má því sannarlega velta fyrir sér hvort með því fengist betra jafnvægi í þennan þátt innflytjendamála. Það bendir þó fátt til þess. Í fyrsta lagi bendir reynsla annarra velmegandi þjóða ekki til þess að aðild að Evrópusambandinu dragi úr aðflutningi frá fátækari ríkjum sambandsins. Í nokkrum af efnuðustu aðildarríkjunum er hlutfall fólks frá öðrum ESB-ríkjum sambærilegt við Ísland eða töluvert hærra. Í öðru lagi byggist þessi von í raun á að ná stjórn á innflytjendastraumnum með því að gera Ísland að ófýsilegri dvalarstað. Aðrar leiðir ættu að koma sterklegar til greina, sem bitna ekki eins illa á heimamönum, og er þar af mörgu að taka. Í þriðja lagi er er ekki útilokað að aðrar þær breytingar sem orðið gætu með aðild að Evrópusambandinu yrðu til þess að ýta frekar undir fólksflutninga til landsins. Þá væri sú breyting hins vegar orðin, að leiðir okkar Íslendinga til að bregðast við væru orðnar enn takmarkaðri en þær eru nú þegar. Nægt er aðgerðaleysi okkar nú innan EES. Hér hefur til dæmis ekki komið til umræðu að æskja sambærilegrar undanþágu og Liechtenstein, sem takmarkar dvalarleyfi fyrir aðra EES-borgara með kvótasetningu. Slík athugun væri eðlilegra skref en að afsala sér slíkum rétti með varanlegum hætti. Innflytjendur utan Evrópusambandsins Þegar litið er til aðflutnings fólks úr öðrum heimshlutum inn til Evrópu, er ekki til fyrirmyndar sú stjórn sem ESB hefur haft á þeirri þróun, ef stjórn skyldi kalla. Um langt skeið hefur landamæravarsla verið í molum, hæliskerfið boðið upp á kerfisbundna misnotkun og lögmætri brottvísun ekki verið framfylgt nema alltof sjaldan. Úr því að víða er ekki lengur grímulaust hægt að hunsa alveg vaxandi ákall almennings, hefur ESB á undanförnum árum boðað eða unnið að ýmsum umbótum sem ætlað er að styrkja landamæravörslu. Það eru enn sem komið er aðallega fyrirheit, sem hafa ekki borið þann árangur að treysta megi raunverulegri grundvallarbreytingu fram undan. Víða byggist hagvöxtur í Evrópusambandinu á ódýru vinnuafli að utan án þess að sjálfbær lýðfræðileg stefna sé mótuð til framtíðar. Það er því ekki beint stefnuleysi, heldur er þetta beinlínis stefnan, sem væri þá líkleg til að móta enn frekar nálgunina á Íslandi um ókomna tíð. Í hælismálum má lesa pólitískan vilja æðstu stjórnenda Evrópusambandsins úr þeirri staðreynd að þjóðir eins og Pólverjar og Ungverjar fá – með ákúrum, dómsmálum og sektum – bágt fyrir að vilja gæta sinna landamæra. Það vekur hins vegar ekki sömu viðbrögð þegar Spánverjar taka upp á verulegum tilslökunum á sínum landamærum og lögfesta dvöl milljóna manna sem komust inn í landið ólöglega. Þar með grafa þeir undan sameiginlegum ytri landamærum og senda þau skilaboð til umheimsins að leiðin inn í Evrópu sé bara að smygla sér inn. Þessi ólíku viðbrögð undirstrika þann veruleika að Evrópusambandið hefur á undanförnum árum og áratugum mun frekar verið notað sem tæki til þess að knýja áfram vanhugsaðar og skaðlegar hugmyndir inn í stefnumótun aðildarríkjanna, frekar en að vera sanngjarnt og lýðræðislegt samstarfsbandalag stoltra og sjálfstæðra Evrópuþjóða. Á meðan svo er, tel ég hagsmunum okkar betur borgið utan ESB. Fyrir mér er stóra málið það sem Miðflokkurinn lagði áherslu á fyrir síðustu þingkosningar: að Ísland verði áfram Ísland. Höfundur er þingmaður Miðflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Snorri Másson Miðflokkurinn Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Innflytjendamál Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Skoðun Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar