Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir, Erlingur Erlingsson, Helen María Ólafsdóttir, Páll Ásgeir Davíðsson, Rakel Anna Boulter, Viktoría Valdimarsdóttir, Þorvarður Atli Þórsson og Þórður Kristinsson skrifa 24. október 2026 08:31 Þann 24. október eru liðin 81 ár frá því að sáttmáli Sameinuðu þjóðanna gekk í gildi. Í skugga tveggja heimsstyrjalda sammæltust þjóðir heims um að alþjóðalög og samvinna skyldu koma í stað valds hins sterka, að mannréttindi væru algild og að friður væri sameiginlegt verkefni. Í ár eru jafnframt 80 ár síðan Ísland gerðist aðili að Sameinuðu þjóðunum, þann 19. nóvember 1946. Tímamótin gefa tilefni til að spyrja hvað Sameinuðu þjóðirnar hafa fært okkur, hvað er í húfi og hvaða augum við lítum þær í dag. Hvers vegna skipta Sameinuðu þjóðirnar máli? Staða heimsmálanna hefur leitt til aukinnar, og að einhverju leyti réttmætrar, gagnrýni á Sameinuðu þjóðirnar. Það er flestum ljóst að stofnunin glímir við þá áskorun að öryggisráðið er ítrekað lamað af neitunarvaldi sem kemur í veg fyrir upprunalegan tilgang þess – að stuðla að friði og hindra átök. Vopnuð átök í heiminum hafa ekki verið fleiri frá lokum síðari heimsstyrjaldar. Starf SÞ snertir daglegt líf um allan heim. Á vettvangi þeirra eru mótaðar reglur og unnið að samstarfi um mannréttindi, hafrétt, náttúruvernd, loftslagsmál, lýðheilsu, vinnuréttindi, fjarskipti og samgöngur svo eitthvað sé nefnt. Þar sem neyðin er mest færa stofnanir og starfsfólk SÞ tugum milljóna manna mat á hverju ári, útvega bóluefni fyrir nærri helming barna heimsins, vernda fólk á flótta, sinna friðargæslu á átakasvæðum og styðja ríki við að byggja upp réttarríki og traustar stofnanir að loknum átökum. Ekkert eitt ríki gæti unnið slíkt starf á eigin spýtur. Fyrir smáríki á borð við Ísland er alþjóðakerfi sem byggir á lögum ekki aðeins hugsjón, heldur forsenda til þess að geta varið fullveldi okkar og lykilhagsmuni. Hafréttarsamningur Sameinuðu þjóðanna, sem tryggir rétt okkar til auðlinda hafsins, er skýrt dæmi um slíka hagsmuni. Herlaus þjóð á allt sitt undir því að landamæri, samningar og alþjóðalög séu virt. Þegar reglurnar veikjast finna smáríkin fyrst fyrir því. Lýðræði og mannréttindi eru ekki sjálfgefin Mannréttindayfirlýsing Sameinuðu þjóðanna frá 1948 kveður á um að vilji þjóðarinnar skuli vera grundvöllur að valdi stjórnvalda. Sú hugsjón á nú undir högg að sækja. Samkvæmt nýjustu skýrslu V-Dem stofnunarinnar við Gautaborgarháskóla búa 74 prósent jarðarbúa við einræðisstjórn af einhverju tagi og einræðisríki eru nú orðin fleiri en lýðræðisríki. Þessi þróun er ekki bundin við fjarlæg lönd. Hún birtist einnig í rótgrónum lýðræðisríkjum, þar sem þrengt er að frjálsum fjölmiðlum, sjálfstæðum dómstólum og borgaralegu samfélagi. Upplýsingaóreiða grefur undan trausti og réttindi kvenna og hinsegin fólks eiga undir högg að sækja. Lýðræði hrynur sjaldnast á einni nóttu. Það veikist smám saman. Það veikist þegar grafið er undan sjálfstæði stofnana, eftirliti með valdhöfum og réttindum fólks. Þess vegna skiptir alþjóðlegt eftirlit eins og mannréttindakerfi Sameinuðu þjóðanna máli. Það setur sameiginleg viðmið og gerir þá kröfu að öll ríki standi reikningsskil gerða sinna, þetta á líka við um okkur. Ísland á sæti í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna árin 2025 til 2027. Sú seta er bæði viðurkenning og ábyrgð. Málflutningur Íslands í þágu jafnréttis og mannréttinda er því aðeins trúverðugur svo lengi sem við stöndum sjálf undir þeim kröfum sem við gerum til annarra ríkja. Samtök á krossgötum Sameinuðu þjóðirnar standa óneitanlega á tímamótum. Samtökin glíma við alvarlegan fjárhagsvanda enda hafa ríki heims dregið úr framlögum sínum og sagt sig frá stofnunum sem hafa þurft að skera niður mannúðaraðstoð á sama tíma og neyðin vex. Um áramót lýkur skipunartíma António Guterres og nýr aðalframkvæmdastjóri tekur við þessu mikilvæga embætti. Valið mun ekki aðeins snúast um hver leiðir samtökin næstu árin heldur hvers konar forystu Sameinuðu þjóðirnar þurfa á að halda í breyttum heimi. Þar þarf forystu sem byggir upp traust, getur leitað sátta þvert á vaxandi átök og ólíka hagsmuni og heldur fast í mannréttindi, jafnrétti og friðsamlega lausn deilumála. Eftir meira en átta áratugi þar sem eingöngu karlar hafa gegnt embætti aðalframkvæmdastjóra er jafnframt tímabært að spyrja hvort næsti kafli í sögu samtakanna verði skrifaður undir forystu konu. Yfirskrift allsherjarþingsins í ár snýst einmitt um að endurreisa traust og byggja upp sterkari og samheldnari Sameinuðu þjóðir sem skila árangri fyrir alla. Það verkefni hvílir þó ekki á einum leiðtoga eða stofnuninni einni. Það tekst aðeins ef aðildarríkin leggja sitt af mörkum. Ríki sem trúa á alþjóðlega samvinnu, og Ísland er eitt þeirra, þurfa að standa við skuldbindingar sínar, verja framlög til þróunarsamvinnu og mannúðarmála og tala skýrt þegar alþjóðalög eru brotin. Sameinuðu þjóðirnar eru ekki fullkomnar, en þær eru eini vettvangurinn þar sem allar þjóðir heims sitja við sama borð. Þar geta ríki byggt upp samstarf og bandalög, leitað sameiginlegra lausna og kallað hvert annað til ábyrgðar. En Sameinuðu þjóðirnar eru ekki aðeins vettvangur ríkja. Orðin sem sáttmálinn hefst á „Vér, hinar sameinuðu þjóðir“, minna okkur á að samtökin sækja tilgang sinn fyrst og fremst til fólksins sjálfs. Þar kemur borgarasamfélagið til sögunnar og þar liggur einnig hlutverk Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi. Framlag Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi var stofnað árið 1948 og hefur í tæpa átta áratugi unnið að því að efla þekkingu, skilning og umræðu um gildi og starf Sameinuðu þjóðanna. Við trúum því að lýðræði og mannréttindi verði best varin með menntun, þátttöku og sameiginlegri þekkingarsköpun. Þess vegna leggjum við sérstaka áherslu á að tengja starf Sameinuðu þjóðanna við íslenskt samfélag og skapa fólki, ekki síst ungu fólki, tækifæri til að taka þátt. Menntun og fræðsla eru meðal mikilvægustu verkfæra lýðræðis og mannréttinda. Í gegnum UNESCO skólanetið vinnur Félag Sameinuðu þjóðanna með leik-, grunn- og framhaldsskólum um land allt að því að efla friðarmenningu, mannréttindi, sjálfbærni og alþjóðlega samábyrgð. Samhliða því stendur félagið fyrir námskeiðum, málþingum, alþjóðlegum dögum og fjölbreyttri miðlun sem miðar að því að styrkja upplýsta umræðu um alþjóðamál. Hlutverk félagsins er jafnframt að skapa vettvang fyrir gagnrýna umræðu um starf Sameinuðu þjóðanna og framlag Íslands og hvetja stjórnvöld til að standa við alþjóðlegar skuldbindingar sínar. Á tímum þar sem rangfærslur og skautun eiga auðvelt með að dreifast er sérstaklega mikilvægt að efla gagnrýna hugsun, alþjóðlega samkennd og skilning á þeirri staðreynd að áskoranir samtímans verða aðeins leystar í samstarfi. Þjóðir heims stofnuðu Sameinuðu þjóðirnar í þeirri trú að samvinna væri betri leið en átök og að virðing fyrir mannréttindum væri forsenda varanlegs friðar. Sú sannfæring er ekki síður mikilvæg í dag. Það er einmitt þessi sannfæring sem starf Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi byggir á; að þekking, samtal og virk þátttaka séu forsenda þess að fólk geti staðið vörð um lýðræði og mannréttindi. Á tímum aukinnar óvissu, stríðsátaka og lýðræðislegrar afturfarar er stærsta áskorunin ekki hvort við höfum efni á öflugum Sameinuðu þjóðum, heldur hvort við höfum efni á heimi þar sem þær eru ekki til staðar. Höfundar eiga sæti í stjórn Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sameinuðu þjóðirnar Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Sjá meira
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar