Meðferð ríkisvaldsins á máli lífslokalæknisins Eva Hauksdóttir skrifar 29. júlí 2026 15:32 Skúli Tómas Gunnlaugsson mun vera kominn aftur til starfa á Landspítalanum. Ekki af því að hann hafi verið sýknaður af morðákæru heldur af því að héraðsdómarinn í málinu telur að hann sé búinn að taka út refsingu fyrir glæpinn. Framganga ríkisvaldsins í þessu máli hefur verið með ólíkindum. Hvort sem litið er til löggjafans, framkvæmdarvalds eða dómsvalds, hafa viðbrögðin við máli lífslokalæknisins verið slík að ég stórefast um að við ráðum við það verkefni að halda uppi réttarríki. 1 Landlæknir Embætti landlæknis er stjórnvald og það má þáverandi landlæknir, Alma Möller, eiga að málið fékk vandaða meðferð. Vinnubrögð læknisins í máli móður minnar, Dönu Jóhannsdóttir, voru rannsökuð og niðurstaðan sú að Skúli hefði sett hana í lífslokameðferð sem ekki var forsenda fyrir og að líkur væri á að sú meðferð hefði flýtt fyrir dauða hennar. Viðbrögð embættisins við þessari niðurstöðu voru aftur á móti sérkennileg. Skúli Tómas var réttilega sviptur lækningaleyfi án áminningar en sú svipting stóð ekki nema 15 vikur og einn dag. Ekki 15 mánuði, heldur 15 vikur. Líklega er þetta réttlætt með því að hann lagði sjálfur inn lækningaleyfi sitt einhverjum mánuðum áður. Hann fékk svo takmarkað lækningaleyfi eftir það og síðan rýmkun og að lokum fullt starfsleyfi. Það gerðist þótt rannsókn landlæknis á fleiri kvörtunum vegna Skúla leiddi til þeirrar niðurstöðu að brotið hefði verið gegn verklagsreglum um ákvörðun og framkvæmd lífslokameðferðar fyrir fleiri sjúklinga, og jafnvel talið að hún hafi ekki verið tímabær. Þegar fullt starfsleyfi var gefið út hafði læknirinn stöðu sakbornings í lögreglurannsókn, grunaður um fjölda manndrápa. Ég hef ákveðna samúð með landlækni. Embættið hefur engar refsiheimildir og lög gera ekki ráð fyrir þessari aðstöðu. En að landlæknir hafi talið 15 vikna leyfissviptingu hæfilegan tíma áður en lækninum var gefið annað tækifæri, það er ekki til þess fallið að auka traust almennings á heilbrigðiskerfinu. 2 Landspítalinn Þótt Skúli væri sviptur starfsleyfi var hann hreint ekki atvinnulaus þessar 15 vikur sem hann var leyfislaus með öllu. Sex dögum eftir að landlæknir upplýsti aðstandendur Dönu um að Skúli hefði verið sviptur starfsleyfi fréttum við að hann væri að vinna á bráðalyflækningadeild Landspítalans. Hann hafði hrökklast frá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og fengið vinnu hjá Landspítalanum, sem er stjórnvald. Landspítalinn neitaði því reyndar að hann væri í samskiptum við sjúklinga en viðurkenndi síðar að hann sinnti sjúklingum „í neyðartilvikum“. Skúli vann á Landspítalanum allt þar til héraðssaksóknari ákærði hann fyrir manndráp af ásetningi þann 30. mars síðastliðinn. Þá var hann sendur í frí en er nú kominn aftur til starfa. 3 Heilbrigðisráðherra og Alþingi Maður hefði búist við því að í siðmenntuðu ríki, þar sem kemur í ljós að læknir getur verið í vinnu á ríkisspítala þótt hann sé til rannsóknar sem raðmorðingi, myndi heilbrigðisráðherra láta semja frumvarp til laga, með það fyrir augum að tryggja öryggi sjúklinga ef slík aðstaða kemur upp. Það hefði t.d. mátt kveða á um heimild landlæknis til að svipta heilbrigðisfólk starfsleyfi á meðan mál er í lögreglurannsókn. Það gerði heilbrigðisráðherra ekki og þótt ég færi fram á fund, fyrir hönd áhugafólks um öryggi sjúklinga, til að ræða tillögur um lagabreytingar, var áhuginn ekki nógu mikill til að taka á móti okkur. Á meðan þetta mál stóð yfir, og fleiri sakamál þar sem heilbrigðsstarfsfólk var grunað um manndráp í starfi, lagði heilbrigðisráðherra hinsvegar fram frumvarp til breytinga á lögum um landlækni og lýðheilsu, þar sem lagt var bann við því að nota gögn frá landlæknisembættinu í sakamálarannsókn gegn heilbrigðisstarfsfólki. Alþingi samþykkti frumvarpið og það varð að lögum. 4 Lögregla og héraðssaksóknari Málið var á rannsóknarstigi í rúm fimm ár. Lögreglan hafði aldrei fyrir því að upplýsa fjölskyldu Dönu eða réttargæslumann hennar um gang mála. Við fréttum af farbannskröfu og dómsúrskurðum um hana í fjölmiðlum. Við vorum ekki upplýst um að óskað hefði verið eftir dómkvaðningu matsmanna og réttargæslumaðurinn þurfti sjálfur að biðja um matsgerðina þegar fjölmiðlar greindu frá því að hún lægi fyrir. Héraðssaksóknari var með málið í biðstöðu í tvö ár eftir að rannsókn var lokið. Allan þann tíma var lífslokalæknirinn starfandi á ríkisspítala. Lögreglurannsókn á máli Skúla var lokið áður en lög um bann við því að gögn landlæknis séu notuð í sakamálarannsókn tóku gildi. Engu að síður ákvað ákæruvaldið, að eigin frumkvæði, að leggja ekki fram álitsgerð Landlæknis af sinni hálfu í dómsmálinu. Margir hafa viðrað við mig þá hugmynd að læknirinn hljóti að eiga vini innan lögreglunnar eða embættis héraðssaksóknara. Hafi unnið sér velvild með því að kaupa málverk af listamanni í fjölskyldu lögreglustjóra eða eitthvað í þá veru. Ég trúi ekki á slíkar kenningar. Þetta er bara því miður ekkert óvenjulegur dratthalagangur hjá þessum embættum. 5 Dómsvaldið Nú hefur Héraðsdómur Reykjaness komist að þeirri niðurstöðu að mál ákæruvaldsins gegn lífslokalækninum eigi ekki erindi við dómstóla. Rökin eru þau að málsmeðferð landlæknis hafi jafngilt sakamálarannsókn og Skúli sé búinn að taka út refsingu. Þegar niðurstaðan virðist fráleit er það vísbending um að forsendurnar séu rangar. Dómarinn vísaði í nokkra dóma Mannréttindadómstóls Evrópu, frávísunarúrskurði sínum til stuðnings, dró af þeim víðáttuvitlausar ályktanir og vék ekki einu orði að meðferð Mannréttindadómstólsins á kærum lækna sem töldu sig hafa sætt tvöfaldri saksókn og refsingu. Eins og ákæruvaldið hafði bent á hefur Mannréttindadómstóllinn hafnað því að taka slík mál til efnismeðferðar þar sem það telst ekki refsing að takmarka aðgang lækna að sjúklingum þegar þeir hafa brotið gróflega gegn starfsskyldum sínum eða siðareglum lækna. Saksóknari kærði úrskurð héraðsdóms til Landsréttar. Búast má við langri bið þar til Landsréttur tekur afstöðu til kærunnar. Aðeins almennir borgarar eru í reynd bundnir af málshraðareglu en hvorki stjórnvöld né dómstólar virða slík lög. Þegar Landsréttur hefur skoðað málið er líklegast að undið verði ofan af ruglinu og málið sent heim í hérað til efnislegrar meðferðar. Á meðan við bíðum hefur lífslokalæknirinn fullt lækningaleyfi og sinnir því í skjóli stjórnvalds, (þ.e. landlæknis, heilbrigðisráðherra og Landspítalans) með blessun Alþingis og Héraðsdóms Reykjaness. Þess má geta að dómarinn sem vísaði málinu frá héraðsdómi er varaformaður siðanefndar Læknafélags Íslands, félags sem Í nóvember 2021 lýsti yfir stuðningi við umræddan sakborning sem var til lögreglurannsóknar vegna gruns um fjölda manndrápa í starfi. Höfundur er lögmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Eva Hauksdóttir Læknamistök á HSS Mest lesið Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson Skoðun Skoðun Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar