Óreiða á samviskunni Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar 30. júlí 2026 09:01 Óhætt er að segja að umræðan í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB hafi að verulegu leyti einkennst af lygabrigslum. Nei-sinnar saka þau sem eru jákvæð kerfisbundið um upplýsingaóreiðu. Og já-sinnar saka andstæðinga aðildar sömuleiðis um villandi málflutning og ósannindi. Það er líklega til marks um það hve umræðan hefur ratað í alvarleg öngstræti að látið er að því liggja að einhver ágreiningur ríki um það hvað verði kosið um þann 29. ágúst. Í þingsályktunartillögu utanríkisráðherra kemur fram að atkvæðagreiðslan snúist um það hvort ganga eigi til viðræðna við ESB. Andstæðingar viðræðna halda því hins vegar stöðugt fram að kosið verði um aðild að ESB. Sigurður Kári Kristjánsson, lögmaður, hefur verið fremstur í flokki þeirra sem halda þessu fram. Í færslu á Facebook gerði hann athugasemd við dreifingu utanríkisráðuneytisins á blaðagrein eftir utanríkisráðherra, þar sem segir (í beinni endursögn Sigurðar): „Er verið að kjósa um aðild að Evrópusambandinu? Svarið er nei. Umrædd þjóðaratkvæðagreiðsla snýst einvörðungu um hvort íslensk stjórnvöld eigi að hefja að nýju aðildarviðræður við ESB sem þáverandi stjórnvöld ákváðu að setja á ís árið 2013. Íslenska þjóðin mun ávallt hafa síðasta orðið um mögulega aðild að ESB, sem yrði sömuleiðis borin undir þjóðina í þjóðaratkvæðagreiðslu að undangengnum aðildarviðræðum.“ Sigurður Kári kallar eftir því að umboðsmaður Alþingis skerist í leikinn vegna upplýsingamiðlunar ráðuneytisins. Það er bara prýðileg hugmynd hjá honum að umboðsmaður taki málið upp að eigin frumkvæði. Og svo er ekkert sem bannar Sigurði Kára að senda umboðsmanni ábendingu þess efnis, sem borgari og kjósandi. En ég ætla nú ekki að hengja mig í formreglur stjórnsýslu hér. Ég hef meiri áhuga á efnislegu inntaki upplýsinga um atkvæðagreiðsluna. Sigurður segir enda ágreining uppi um mörg efnisatriði greinarinnar og nefnir sérstaklega að harðar deilur hafi staðið um það hvort kosið verði um aðild eða ekki. Það kann að vera rétt, því Sigurður Kári hefur jú sjálfur verið ötull í því að kynda undir þeirri „deilu“, en spurningin er hvort ágreiningurinn er marktækur eða ekki. Feneyjanefndin hefur talað Utanríkismálanefnd Alþingis leitaði eftir áliti Feneyjanefndarinnar svokölluðu um orðalag spurningarinnar sem lögð verður fyrir þjóðina þann 29. ágúst. Feneyjanefndin er ráðgefandi sérfræðinganefnd Evrópuráðsins um stjórnarskrármálefni, lýðræði og réttarríkið. Hún er því alfarið hafin yfir flokkadrætti á Íslandi. Álit nefndarinnar er um margt fróðlegt. Hún leggur til að mynda mjög mikla áherslu á mikilvægi skýrrar upplýsingamiðlunar vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Og það sem meira er, hún ávarpar ágreiningsefnið, sem Sigurður Kári kallar svo, beint og með ótvíræðum hætti. Ekki bara einu sinni í framhjáhlaupi heldur margítrekað. Segja má að það sé rauður þráður í álitinu. Best er að hafa bara orðrétt eftir nefndinni, þó svo að það kalli á umtalsverðar endurtekningar: Í 38. gr. álitsins segir: „Í þessu tilviki geta aðildarviðræður við ESB leitt til margvíslegra niðurstaðna, bæði hvað varðar innihald mögulegs aðildarsamnings og möguleikann á því að enginn samningur náist að lokum. Við þessar aðstæður tryggir jákvætt svar við spurningunni í þjóðaratkvæðagreiðslunni enga aðra niðurstöðu en framhald viðræðnanna.“ Í 40. gr. kemur eftirfarandi fram: „Það sem einnig ætti að vera kjósendum ljóst er að „já-atkvæði“ myndi ekki sjálfkrafa leiða til aðildar að ESB heldur aðeins opnunar nýs samningaferlis og að ef þær yrðu árangursríkar yrði haldin önnur þjóðaratkvæðagreiðsla um raunverulega aðild, byggð á niðurstöðu þessarar nýju samningaviðræðna.“ Feneyjanefndin bendir jafnframt á, í 42. gr., að íslenskir stjórnmálaflokkar ættu að vera vel upplýstir um áform stjórnvalda ef af þjóðaratkvæðagreiðslunni yrði og vísar til upplýsinga á vef ríkisstjórnarinnar, þess efnis að önnur þjóðaratkvæðagreiðsla verði haldin þar sem spurt verði hvort Ísland eigi að ganga í ESB. Nefndin áréttar þó: „að þessum upplýsingum ætti að fylgja skýr vísbending um að þessi þjóðaratkvæðagreiðsla muni ekki leiða til sjálfvirkrar aðildar að ESB og að önnur þjóðaratkvæðagreiðsla um þetta mál yrði byggð á niðurstöðum og samkvæmt skilmálum þess samnings sem ríkisstjórn Íslands og ESB hefðu komið sér saman um í lok samningastigsins.“ (Áherslan er í upprunalega textanum). Í niðurstöðukaflanum, nánar tiltekið í 60. gr., segir loks: „Feneyjanefndin leggur áherslu á að ekki sé hægt að fjalla um skýrleika spurningarinnar í þjóðaratkvæðagreiðslunni óháð skyldunni til að upplýsa kjósendur ítarlega um þær aðgerðir sem stjórnvöld grípa til í kjölfar þjóðaratkvæðagreiðslunnar á grundvelli hennar. … Það verður einnig að vera kjósendum ljóst að „já-atkvæði“ myndi ekki sjálfkrafa leiða til aðildar að ESB heldur aðeins til opnunar samningaferlis, og að ef þær viðræður yrðu árangursríkar yrði önnur þjóðaratkvæðagreiðsla um raunverulega aðild haldin á grundvelli niðurstaðna viðræðnanna.“ Skýrar og réttar upplýsingar Álit Feneyjanefndarinnar er ákaflega skýrt og tilmæli hennar um upplýsingamiðlun, að því marki sem þau láta sig varða efnislega hlið upplýsinganna, eru ótvíræð. Af álitinu má t.d. ráða að ekki sé hægt að segja til um það hverjar verði endanlegar forsendur mögulegrar aðildar að ESB áður en aðildarviðræður hefjast. Eða, m.ö.o., það þarf aðildarsamning til þess að taka afstöðu til aðildar. Álitið tekur líka af öll tvímæli um að stjórnvöld verði að upplýsa kjósendur um það að þeir muni ekki kjósa um aðild þann 29. ágúst, heldur muni þeir kjósa um að ganga til viðræðna. Það má reyndar segja að þessar tvær hliðar á álitinu haldist röklega í hendur. Það er því ekki bara verjanlegt að stjórnvöld kynni spurninguna sem lögð verður fyrir þjóðina með þessum hætti. Að mati Feneyjanefndarinnar væru stjórnvöld beinlínis að bregðast skyldu sinni ef þau gerðu það ekki. Álit nefndarinnar er vitaskuld ekki bindandi. En það endurspeglar alþjóðleg og viðurkennd viðmið um lýðræði og réttarríki. Fáheyrt er að alvarlegt fólk í þroskuðum lýðræðissamfélögum véfengi þessi viðmið eða skelli skollaeyrum við boðskap Feneyjanefndarinnar. Sigurður Kári hefur líklega ekki lesið þetta mikilvæg innlegg sem álit nefndarinnar er og þar með ekki kynnt sér málið með fullnægjandi hætti. Því hafi hann gert það er engu líkara en að hann sé með einhverja óreiðu á samviskunni. Og því trúi ég ekki. Höfundur situr í stjórn Evrópuhreyfingarinnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Páll Rafnar Þorsteinsson Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Skoðun Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar