Skoða stækkun á öryggismyndavélaneti Sunna Sæmundsdóttir skrifar 3. ágúst 2026 11:53 Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri, segir Reykjavík hafa verið meðal öruggustu borga heims og vill að þannig verði það áfram. vísir/Lýður Valberg Til skoðunar er að stækka það svæði í miðborginni sem vaktað er með öryggismyndavélum að sögn borgarstjóra. Ráðist verður í nágrannavörsluátak í Reykjavík í kjölfar innbrotahrinu.
Blásið var til íbúafundar meðal miðborgarbúa í vikunni í kjölfar innbrotahrinu. Þar kynnti Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri, meðal annars fyrirhugað átak í nágrannavörslu. Hún segir það fela í sér að nágrannar geri með sér samkomulag um að líta eftir eigum annarra og fylgjast með grunsamlegum mannaferðum. Hægt verði fá sérstök nágrannavörsluskilti í götur þar sem íbúar hafa tekið sig saman. „Við erum komin með nýtt útlit á skiltin og við munum á næstu dögum og vikum bjóða íbúum að panta sér svona skilti og við aðstoðum þá við uppsetningu,“ segir Hildur og tekur fram að skiltin verði í boði gegn vægu gjaldi. „Við létum líka framleiða nágrannavörslulímmiða sem stóðu til boða á íbúafundinum um daginn og þeir gætu átt við í heilu götunum en líka kannski í minni stigagöngum og í fjölbýli þar sem fólk hefur tekið sig saman um svona nágrannavörslu.“ Einnig stendur til að efla eftirlitsmyndavélakerfi borgarinnar. „Það hefur um nokkurt skeið verið gildandi samningur milli Reykjavíkurborgar, lögreglunnar og neyðarlínu um öryggismyndavélakerfi í miðborginni og þetta kerfi hefur verið notað við að upplýsa um innbrot, ofbeldisbrot og jafnvel manndráp. Við höfum núna síðustu vikur verið að ræða endurnýjun á þessum samningi. Einhverjar af vélunu eru komnar á tíma og það getur verið ástæða til að stækka jafnvel svæðið, það er ekki allt svæði miðborgarinnar undir í núverandi kerfi. Til skoðunar er að bæta við öryggismyndavélum á Skólavörðustíg.vísir/Lýður Valberg Hvað felur stækkun í sér, hversu langt gæti það náð? Til að mynda hefur ekki verið uppi öryggismyndavélakerfi á Skólavörðustíg. Þar er fjöldi ferðamanna og hefur verið nokkuð um vasaþjófnað til að mynda. Þannig að það svæði gæti hugsanlega verið undir.“ Innbrotum hefur fækkað á síðustu dögum eftir að þrír sem grunaðir eru um að standa að baki stórum hluta þeirra voru úrskurðaðir í síbrotagæsluvarðhald. Hildur segir innbrotahrinuna ekki líðandi. „Reykjavík hefur verið ein öruggasta borg heims og það viljum við vera áfram.“
Reykjavík Lögreglumál Borgarstjórn Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Katla skelfur Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira