Lýsti mikilli örvæntingu áður en hún myrti börnin sín Samúel Karl Ólason skrifar 4. ágúst 2026 13:02 Lindsay Clancy í dómsal í gær. Lögmenn hennar neita því ekki að hún hafi myrt þrjú börn sín en segja hana hafa átt við mikinn geðrænan vanda að stríða. AP/Greg Derr, Patriot ledger Kona sem myrti þrjú börn sín árið 2023 hafði lýst yfir áhyggjum af geðheilsu sinni í aðdraganda morðanna. Í aðdraganda þess að hún myrti þrjú ung börn sín skrifaði Lindsay Clancy í dagbók sína að hún upplifði fjarlægð frá börnunum og þáverandi eiginmanni sínum. Hún sagðist vera kvíðin og ekki ráða við móðurhlutverkið. Hún ætti erfitt með að svæfa Callan, átta mánaða son sinn, og óttaðist að verða veik.
Þar að auki sagðist Clancy hræðast það að snúa aftur til vinnu sem hjúkrunarfræðingur á fæðingardeild. Þetta er meðal þess sem kom fram í dómsal í Massachusetts í gær, þar sem réttarhöldin gegn Clancy fara fram. Í síðustu viku voru vitnaleiðslur þar sem þáverandi eiginmaður hennar og viðbragðsaðilar báru meðal annars vitni og var einnig hlustað á símtal eiginmannsins til neyðarlínunnar. Í gær snerust réttarhöldin að miklu leyti um dagbókarfærslur Linsday á mánuðunum fyrir morðin. Fyrir það hafa þau að miklu leyti snúist um geðræna heilsu Linsday á þessum tíma. Lögmenn Clancy hafa ekki neitað því að hún hafi myrt börnin en segja hana hafa þjáðst af miklum geðrænum vanda vegna fæðingarþunglyndis. Hún sé með geðhvarfasýki og að þunglyndislyf sem hún fékk eftir fæðingu þriðja barnsins hafi valdið því að geðheilsa hennar versnaði til muna. Þegar hún framdi morðin sagðist hún hafa heyrt rödd sem sagði henni að bana börnunum og svo sjálfri sér. Börnin voru fimm ára, þriggja ára og átta mánaða. Við vitnaleiðslur í síðustu viku sagði Patrick Clancy, fyrrverandi eiginmaður hennar, að geðheilsa hennar hefði versnað verulega í aðdraganda dauða barnanna. Hún hafði þá sagt honum frá því að hún hefði hugsað um að skaða sjálfa sig og börnin. Skömmu áður hafði hún lagt sjálfa sig inn á geðdeild. Hún var útskrifuð þaðan nítján dögum áður en hún myrti börnin. Sagðist vilja hjálp Farið var yfir dagbókarfærslur Clancy þrjá mánuði aftur í tímann. Á þeim tíma leitaði hún til ýmissa lækna sem gáfu henni þunglyndislyf, svefntöflur, geðlyf og ýmislegt annað sem átti að hjálpa henni að ráða úr geðrænum vanda hennar. Samkvæmt dagbókinni fór henni sífellt versnandi, þar sem hún lýsti því að eiga erfitt með svefn, vera mjög kvíðin og á köflum virðist hún hafa átt erfitt með að greina hvað væri raunverulegt og hvað ekki. „Ég vil hjálp. Ég vil vera heilbrigð,“ skrifaði hún í eina færslu, samkvæmt AP fréttaveitunni. Þá lýsti hún mikilli sorg og mikilli sektarkennd yfir því að geta ekki veitt yngsta barni sínu brjóstgjöf. Hún sagðist með gífurlega heilaþoku og að hún gæti ómögulega skipulagt sig með nokkrum hætti. Hér að neðan má sjá þegar dagbókarfærslur hennar voru lesnar upp í dómsal í gær. Bæði hún og eiginmaður hennar, Patrick, hafa höfðað mismunandi mál á grunni þess að heilbrigðisstarfsfólk sem hún leitaði til hafi brugðist henni og að kerfið hefði átt að grípa inn í. Einhver hefði átt að sjá að hún gæti verið hættuleg. Saksóknarar málsins hafa viljað halda athyglinni á Clancy sjálfri en ekki heilbrigðisstéttinni. „Þetta er ekki umræða um geðheilsu kvenna og hvernig heilbrigðiskerfið meðhöndlar konur,“ sagði Shana Buckingham, saksóknari, til að mynda í upphafsávarpi sínu. Verði hún fundin sek stendur Lindsay frammi fyrir lífstíðarfangelsi án möguleika á reynslulausn. Hún gæti einnig verið vistuð á stofnun. Áhugasamir geta fylgst með réttarhöldunum í dag í spilaranum hér að neðan.
Bandaríkin Erlend sakamál Mál Lindsay Clancy Mest lesið Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Innlent Fleiri fréttir Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Sjá meira