Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts Samúel Karl Ólason skrifar 5. ágúst 2026 13:32 Jared Kushner, tengdasonur Donalds Trump, er meðal fjárfesta í hópi sem leiddur er af opinberum fjárfestingasjóði Sádi-Arabíu. EPA/LUDOVIC MARIN Hópur fjárfesta, sem leiddur er af PIF, opinberum fjárfestingasjóði Sádi-Arabíu og inniheldur meðal annars Jared Kushner, tengdason Donalds Trump, hefur lokið kaupunum á leikjafyrirtækinu Electronic Arts. Fyrirtækið er hvað þekktast fyrir leiki eins og FIFA, Madden og aðra íþróttaleiki, auk Sims, Battlefield og Mass Effect, svo einhverjir séu nefndir.
Fjárfestarnir eru að taka EA af markaði fyrir um 55 milljarða dala, sem samvarar um 6,8 billjónum króna (tólf núll). Talið er að um stærstu skuldsettu yfirtökuna í sögunni sé að ræða, samkvæmt BBC. Það þýðir að yfirtakan er að miklu leyti fjármögnuð með lántökum sem EA mun þurfa að greiða í framtíðinni. PIF tók til að mynda 20 milljarða dala lán frá JPMorgan til að fjármagna yfirtökuna, sem mun að miklu leyti lenda á EA að greiða, eða um átján milljarða dala. Jason Schreier, blaðamaður Bloomberg, segir að árleg EBITDA EA sé um 1,5 milljarður dala og að það ætti að duga til að greiða vexti af láninu. Hins vegar standi til að spara um 700 milljónir dala árlega hjá fyrirtækinu og þá meðal annars með uppsögnum. EA's annual Ebitda is around $1.5 billion, which should be enough to service the interest payments. But the publisher has told debt investors that it will cut $700 million in annual costs including $170 million in "organizational efficiencies," per Bloomberg. In other words: mass layoffs— Jason Schreier (@jasonschreier.bsky.social) 5 August 2026 at 00:34 Viðskiptamiðillinn CNBC hefur eftir greinendum að líklega muni forsvarsmenn EA einbeita sér sérstaklega að vinsælustu leikjaseríum fyrirtækisins eins og Sims, Battlefield og íþróttaleikjunum í stað þess að taka áhættu á nýjum leikjum. Þá er talið líklegt að reynt verði að kreista meira fé úr vinsælu leikjunum, með því að auka á það að selja hluti aukalega inni í leikjunum. Slíkir viðskiptahættir hafa lengi farið verulega í taugarnar á leikjaspilurum. Einnig telja sérfræðingar sem CNBC ræddi við að EA gæti lokað leikjaframleiðslufyrirtækjum og jafnvel selt réttinn að tölvuleikjaseríum. Kaupin á EA eru þau næststærstu í sögu leikjaframleiðslu. Þau stærstu eru kaup Microsoft á Activision Blizzard en þau kostuðu 69 milljarða dala.
Leikjavísir Sádi-Arabía Mest lesið Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Viðskipti innlent Starfsfólk lagt inn á spítala með AI-geðrof Atvinnulíf Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts Viðskipti erlent Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Viðskipti innlent Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Viðskipti innlent Bílastæðafyrirtækin sektuð um hundruð þúsunda Neytendur Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Viðskipti erlent Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Viðskipti innlent Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Viðskipti innlent Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Viðskipti innlent Fleiri fréttir eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira